Frjáls verslun - 01.02.2001, Blaðsíða 24
FORSÍÐUGREIN TVÍKEPPNI í VIÐSKIPTflLÍFINU
stýra Baugi. Og takið efdr að ekki eru nema tólf ár síðan að
feðgarnir Jón Asgeir og Jóhannes Jónsson stofnuðu Bónus í afar
fábrotnu húsnæði við Skútuvoginn. Þess má geta að Eignarhalds-
félagið Alþýðubankinn, EFA, keypti öll hlutabréfin í Kaupási á
síðasta ári og er Gylfi Arnbjörnsson, tramkvæmdastjóri EFA, nú
sþórnarformaður Kaupáss.
Einar Benediktsson, forstjóri Olís, Geir Magnússon, forstjóri ESSO, og
Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs.
Skeljungur, ESSO og OIÍS í áratugi hafa verið þrjú olíufélög á ís-
landi, Oliufélagið, Skeljungur, og Oliuverslun íslands, Olís. Þótt
eflaust megi færa rök iýrir því að um þríkeppni sé að ræða á þess-
um markaði þá telja margir eðlilegra að ræða um tvflœppni,
keppni tveggja blokka, þ.e. á milli Skeljungs og Olíufélagsins, því
á vormánuðum árið 1995 keypti Oliufélagið meirihlutann í Olís
ásamt Texaco í Danmörku og áhrif Oliufélagsins í Olis eru þvi
ótviræð og afgerandi. Þau eiga og reka sameiginlegt innkaupa-,
birgða- og dreifingariýrirtæki, Olíudreifingu. Kristinn Björnsson
er forstjóri Skeljungs, Geir Magnússon er forstjóri Olíufélagsins
og Einar Benediktsson er forstjóri Olís. Þess má geta að Irving
iyrirtækið í Kanada, sem íhugaði lengi að brjóta sér leið inn á ís-
lenska olíumarkaðinn, treysti sér ekki í þann slag, taldi hagnað-
arvon sína litla eftír að möndullinn á milli Oliufélagsins og Olís
varð að veruleika. Irving feðgarnir töldu að þeir næðu ekki
„sanngjörnum" hluta af markaðnum, eins og þeir orðuðu það.
Eimskip og Samskip Höfúðandstæðingarnir á markaði skipa-
flutninga eru Eimskip og Samskip. Eimskip hefur í áratugi verið
langsterkasta félagið í skipaflutningum og skákað öðrum skipa-
félögum. í byijun níunda áratugarins var harðasta keppnin á milli
Eimskips, Hafskips og Skipadeildar Sambandsins. Hafskip varð
gjaldþrota á seinni hluta níunda áratugarins. Þegar Sambandið
lognaðist út af og starfsemi þess var skipt upp í nokkur hlutafé-
lög voru Samskip stofnuð utan um Skipadeild Sambandsins.
Samskip misstu dampinn á árinu 1993 og lentu þá á bráðadeild-
inni hjá Landsbankanum sem áttí tyrirtækið um tíma. Um mitt
árið 1994 tókst bankanum hins vegar að rétta félagið við og fékk
til þess Olaf Olafsson, núverandi forstjóra þess. Bankinn seldi síð-
an félagið til Olafs Olafssonar, þýska félagsins Bruno Biscoff, 01-
íufélagsins, VIS og nokkurra íslenskra athafiiamanna, eins og
Samheijafrænda, Hofsfjölskyldunnar og Gunnars Jóhannssonar
í Fóðurblöndunni. Ilofsfjiilskyldan seldi síðan hlut sinn ásamt
Gunnari Jóhannssyni eftír nokkur átök innan félagsins. I febrúar
árið 1998 voru Atlantsskip og hið bandaríska systurfélag þess,
TransAtlantic lines, stofiiuð. Síðan hafa Atlantsskip, en fram-
kvæmdastjóri þess er Stefán Kjærnested, verið í samkeppni við
Eimskip og Samskip í Ameríkusiglingum. Núna annast Atlants-
skip vöruflutninga týrir Samskip á Ameríkuleiðinni, auk eigin
flutninga og flutninga týrir Varnarliðið. Erfitt er að átta sig ná-
kvæmlega á hlutdeild Atlantsskipa í Ameríkusiglingunum en þó
er það svo að í viðskiptalífinu lita flestir þannig á að Eimskip og
Samskip séu höfuðandstæðingarnir á markaði skipaflutninga, að
tvíkeppnin birtist á milli þeirra.
Flugleiðir Þótt flugfélagið Atlanta sé eitt af stærstu fyrirtækj-
um landsins með veruleg umsvif erlendis í leiguflugi - sem og
verkefni í leiguflugi týrir innlendar ferðaskrifstofur - er varla
hægt að tala um tvíkeppni á þessum markaði því Flugleiðir eru
meira og minna með allt áætlunarflug til og frá landinu. A síð-
asta sumri kom breska flugfélagið Go, dótturfélag British
Airways, inn á markaðinn yfir sumarmánuðina og bauð flug til
Bretlands. Þá bjóða Heimsferðir ferðir með ítölsku flugfélagi í
sumar. En í stuttu máli hafa Flugleiðir ráðandi stöðu á þessum
markaði og virðast önnur erlend flugfélög ekki treysta sér til
að ryðjast inn á íslenskan markað í áætlunarflugi svo neinu
nemi, þótt SAS hafi reynt það um tíma í afar litlum mæli.
24