Frjáls verslun - 01.02.2001, Blaðsíða 93
GLERAUGNATÍSKAN
um af og til. Ekki eingöngu vegna útlitsins, þó svo það sé auð-
vitað mikilvægt, heldur einnig til tilbreytingar; koma heim úr
vinnunni, fara úr vinnufötunum og setja þá upp ný gleraugu,
í stíl við þau föt sem menn eru í heima við og í tómstundum.
Konur í viðskiptalífinu þurfa einnig að hugsa um að gler-
augun passi við það sem þær eru að gera. Ekki ganga með of
áberandi gleraugu sem ef til vill henta betur þeim sem þurfa
að vekja á sér athygli. Listafólk og arkitektar geta t.d. leyft sér
að vera með áberandi gleraugu, því það er hluti af þeirra
starfi að vera áberandi, en framakonur og menn í viðskiptalíf-
inu þurfa fyrst og fremst að líta út fyrir að vera traustsins
verð. Það fæst með því að útlitið sé hæfilega íhaldssamt en þó
fallegt og í samræmi við persónu og atvinnu viðkomandi.
Gleraugun mega alls
ekki hafa neikvæð áhrif
á þann sem talað er við
hverju sinni.“
Nauðsynlegt að sjá í
augun Þegar um
konur er að ræða kem-
ur fleira til en fötin.
Andlitsfarði þarf að
passa við gleraugun og
þær konur sem nota
litlaus gleraugu þurfa
að farða sig meira og
þær sem eru nærsýnar
þurfa meiri förðun en
hinar fjarsýnu. Eins ef
glerin eru lituð þarf
meiri förðun til mót-
vægis við litinn í gler-
augunum. Anna segir
þó að ekki sé gott að
hafa mikinn lit í gler-
augunum, sérstaklega
ekki ef sá sem þau ber
þarf að hitta marga og
vekja traust þeirra.
„Það er nauðsynlegt að
sjá augu manna ef
traust á að vera til stað-
ar,“ segir hún. „Auk
þess mega mjög sterk
gleraugu ekki vera
mjög stór. Sjónsviðið
er lítið og oft er þetta
bara spurning um
vana.“
Nýja línan er sem
sagt: Aðeins stærri
gleraugu, meira áber-
andi umgjarðir, litir
bæði í umgjörðum og
gleri og helst þarf að
eiga fleiri en ein gler-
augu til notkunar við
hin ýmsu tækifæri. ffl
Anna F. Guðmundsdóttir út-
litshönnuður segir gleraug-
un skapa persónuleika og
miklu máli skipti að þau
henti tilefninu.
FV-myndir: Geir Ólafsson
Áberandi dökkt skegg og mjög dökk gleraugu með breið-
um umgjörðum geta gert það að verkum að viðkomandi líti út
fýrir að vera ekkert nema línur. Hann hefur ef til vill sterk áhrif
á þann sem hann talar við, en sá tekur kannski ekkert eftir per-
sónu hins skeggjaða því útlitið er svo yfirgnæfandi. Sá sem er
hins vegar með ljóst skegg og ljós yfirlitum þolir oft meiri liti í
umgjörðinni.“
Gott að eiga mörg gleraugu Anna segist oft ráðleggja fólki
að kaupa sér tvenn gleraugu. „Karlar ganga yfirleitt ekki með
mikið af skartgripum. Þeir eiga gjarnan fallegt úr, kannski fal-
legan penna og jafnvel einn hring. Því eru gleraugun eins og
einn af skartgripum þeirra og það er við hæfi að geta skipt