Frjáls verslun - 01.02.2001, Blaðsíða 88
4* [ í M A ► | R K |
Pétur Þorsteinsson, prestur Oháða safnaðarins, tekur við verðlaununum fyrir óvenju- Bogi Þór Siguroddsson, forstjóri Húsasmiðjunnar, í
legustu auglýsinguna en Vilhjálmur Egilsson, alþingismaður og framkvœmdastjóri rœðustól en auglýsingaherferð Húsasmiðjunnar - „Lifa,
Verslunarráðs Islands, veitti þau fýrir hönd Verslunarráðs. elska, óska, fá“-var valin athyglisverðasta herferðin.
„Kirkjan er ekki bara hús til að hlusta á orð Drottins í heldur
einnig samfélag og þarna í kirkjukaffinu hittist fólk og sest
yfir heilu fermetrana af hnallþórum og kransæðakítti og
spjallar saman.“
Heiður fyrir kirkjuna Einhvern veginn sér maður ekki fyrir
sér að hefðbundin kirkja auglýsi á sama hátt og Oháði söfn-
uðurinn en Pétur segir það gæfu Fríkirkjunnar að vera lausa
við alla þungavigtarjdirstjórn. „Eg er með beinlínutengingu
við almættið og þarf ekki að spyija neinn neins í starfinu
nema þá himnafeðga og heilagan anda. Safnaðarstjórnin get-
ur rekið og ráðið menn að vild án þess að það kosti miklar
umræður og rekistefnu. Það hentar mér vel og gerir að verk-
um að ýmislegt gerist í starfinu hjá okkur sem ég sé ekki að
geti átt sér stað í alríkiskirkjunni sem hrærist í mun þyngra
kerfi. Það, að þessi auglýsing skuli hafa unnið, þykir mér
heiður fyrir kirkjuna og benda til þess að ef til vill sé komið
að því að fara megi aðrar leiðir til að vekja á henni athygli. Það
á ekki að líta á kirkjuferðir sem eilífa jarðarför - miklu heldur
sem jarðarfjör..."
Æskulýðsfulltrúi á Grund Aðspurður segir Pétur ekki hafa
orðið þess var að auglýsingarnar hafi fælt neinn frá, en hins
vegar hafi félagatala Oháða safnaðarins rúmlega tvöfaldast -
úr 1.040 árið 1995 í 2.269 árið 2000, á þeim 5 árum sem hann
hafi verið prestur - að ekki sé talað um hitt starfið hans, en
hann er æskulýðsfulltrúi á elliheimilinu Grund í fjórðungs-
starfi. H3
Björn Björnsson, hjá Hugsjón og höfundur auglýsingarinnar „Lifa,
elska, óska, fá“ þakkar fyrir sig. Með honum á myndinni eru frá
vinstri.'Jón Örn Þorsteinsson, hönnuður á Islensku auglýsingastofunni,
Ólafur Ingi Olafsson, framkvœmdastjóri Islensku auglýsingastofunnar,
og Ólafur Júlíusson, markaðsstjóri Húsasmiðjunnar.
Þormóður Jónsson, framkvæmdastjóri Fíton, en Fíton fékk verðlaun
fyrir bestu tímaritaauglýsinguna, „Skafið hér“ og einnig fyrir kynning-
arefni annað en markþóst: „Veiddirðu eitthvað elskan?", fyrir Aco.
1000 MB/s?
„Ég er með beinlínutengingu við almættið og þarf ekki að spyrja neinn neins í starfinu nema þá
himnafeðga og heilagan anda.“
88