Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2001, Blaðsíða 84

Frjáls verslun - 01.02.2001, Blaðsíða 84
STJÓRNUNARBÆKUR Brot úr bók Brian Tracy er vœntanlegur til landsins í lok april en hann vakti óskipta athygli á námsstefnu sinni í Borgarleikhúsinu i fyrra. Viö gluggum hér í bók Brians Tracy er nefnist Farsæld er ferbalag. Eftir Vigdisi Stefánsdóttur Leiðin til árangursfelstíþvíaðsetjaséreittmark- mið, eitt lokatakmark og hafa viljann og kraftinn til að ná því að komast yfir alla erfiðleika sem fylgja því að ná þessu tak- marki - hvað sem tautar og raular. (bls. 14) Þeir sem þora ekki að skilja eftir þjóðfélagsskyld- ur sínar og öryggi hafa það alltaf á tilfinningunni að þeir hafi misst af einhverju mikilvægu. (bls. 17) umir eru fæddir til að dvelja heima við. Aðrir eru fæddir til að ferðast. (bls. 23) w I g lærði síðar að öllum miklum ævintýrum fylgja margar áhættur og það sem til þarf er kjarkur til að reyna það sem aðrir hafa ekki reynt. Stundum er það besta sem maður getur gert við erfiðar aðstæður að gera nákvæmlega ekkert. Taka bara aðstæðunum eins og þær eru og bíða síns tíma. Tækifærið kemur um síðir. (bls. 65) Góðu fréttirnar eru að stærstu vandamál manna í dag eru til staðar til að kenna manni eitthvað sem maður verður að læra til að öðlast meiri hamingju og velgengni í framtíðinni. (bls 70) Stundum verður maður að reyna aftur og aftur, hvort heldur sem er í viðskiptum eða lífinu sjálfu - og reyna síðan jafnvel eitthvað allt annað. Höfum hugfast að erfiðleik- ar eru ekki til að hindra okkur heldur til að læra af. Best er að vera ávallt tilbúinn til að laga sig að aðstæðum og bregðast við með því að gera eitthvað annað. (bls. 74) Líttu á stærsta vandamál þitt ogleitaðu að gjöfinni sem það hefur að geyma. Gjöfin er alltaf til staðar. (bls. 79) Það sem einkennir það fólk sem nýtur farsældar er að það horfir til framtíðar og einbeitir sér af öllum mætti að því að finna lausnir þar sem aðrir sáu bara vandamál. (bls. 85) Ein jákvæð frétt færir ijarlægt markmið nær, erfið- leikarnir gleymast og skyndilega eru allir vegir færir. (bls. 88) Mynd: Geir Ólafsson vo lengi sem markmiðið og áætlunin eru ljós og við erum undir það búin að vera sveigjanleg og takast á við ólíkar aðstæður mun okkur ævinlega farnast vel. (bls. 97) Það er ótrúlegt hversu margt gáfað og hæfileikaríkt fólk nær ekki markmiðum sínum og mistekst vegna ónógs undirbúnings. Þau tíu prósent heildartímans sem maður ver til undirbúnings geta í raun verið jafnvirði níutíu prósenta allrar vinnunnar. (bls. 100) w hvert skipti sem maður leggur sig fram, þarf maður að glíma við margs konar lítil vandamál, smáatriði, óvæntar skapraunir og ósveigjanlegt og óheiðarlegt fólk af öllum stærð- um og gerðum. En það er hluti af þessu öllu saman og það er hluti þess gjalds sem maður þarf að greiða fyrir ný afrek eða hvað svo sem þykir ómaksins vert. (bls. 197) Það var einfalt og gagnverkandi samkomulag sem sijórnaði hegðun ökumanna á strjálbyggðum svæðum. Ef við sáum einhvern sem átti í vandræðum námum við staðar og gerðum okkar besta til að hjálpa honum og í staðinn höfðum við gagn af þeim sem námu staðar fyrir okkur. (bls. 112) Því meira sem þú gefur af sjálfum þér og styrk þínum án þess að vænta nokkurs í staðinn, því meira kemur aft- ur til þín úr óvæntustu átt og á ótrúlegasta hátt. (bls. 114) Hiuti af þvf að búa yfir nauðsynlegri aðlögunar- hæfni og því að vera sveigjanlegur er að hægja á sér, draga úr hraðanum, þegar maður þarf á því að halda. Það er ekki gott að leyfa streitunni eða kvíðanum að ná tökum á sér. (bls. 118) Til að ná langt þarf maður að læra að gefa þeim nei- kvæðu ekki gaum, þeir vita einfaldlega ekki betur. Maður þarf að búa yfir því hugrekki sem þarf til að stíga skrefin í átt að markmiðunum, án þess að árangurinn sé tryggður fyrirfram, að komast yfir sérhverja hindrun og halda áfram hvað sem á bjátar. (bls. 119) Við tökum margar rangar ákvarðanir. í mörgum tilfell- um er það skynsamlegasta sem við gerum að staldra við og íhuga málin betur. Oft er nauðsynlegt að hægja aðeins á, hugsa málið og velta fyrir sér öðrum kostum. (bls. 125.) 84
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.