Frjáls verslun - 01.02.2001, Blaðsíða 87
Auglvsingahátíð ímarks
Kransæðakíttiskirkjukaffimessa!
„Ég auglýsti einu sinni: „Hafið tungurótar-
sprengitöflurnar meðferðis í kransæðakíttis-
kirkjukaffimessuna,“ en það fór fyrir brjóstið
á sumum sem ekki þótti þetta við hæfi.“
Þessar unnu til verðlauna
Kvikmyndaðar auglýsingar:
Iifa, elska, óska, fá
Auglýsandi: Húsasmiðjan
Framleiðandi: Islenska auglýsingastofan/Hugsjón
Auglýsing Óháða safnaðarins, ,Áttu erfitt með að
sofna?“, vakti verðskuldaða athygli sem óvenjulegasta
auglýsing ársins. Hún gekk ekki lengi, aðeins í þrjá
daga, því Pétur gerir sérstakar auglýsingar fýrir messu
í Óháða söfnuðinum aðeins tvisvar á ári, þ.e. þegar
kvenfélagskonur í söfnuðinum eru með kirkjukaffi.
„Það sem ég var að vekja athygli á er sú mýta að það
sé svo leiðinlegt í kirkjunni að menn sofni undir prédik-
uninni og ég vildi bara bjóða mönnum upp á það ef þeir
vildu. Að sofa vært í kirkjunni hjá mér og njóta um leið
nærverunnar sem þar er. Ég hef nú reyndar verið vænd-
ur um vörusvik síðan af mönnum sem ekki tókst að
sofna í messunni. Það þarf að vera ofurlítill broddur í
auglýsingum, og svolítið grín líka, til þess að þær veki
athygli.
Annars er nú ekki algengt að fólk sofni undir messu,
að minnsta kosti ekki hjá mér. Ég reyni að fara ekki
langt yfir stundarsjöttunginn í ræðunum vegna þess að
vitað er að fólk heldur athyglinni í hámark 8 mínútur
samfellt áður en hún fer út í veður og vind. Því er betra
að segja það sem maður ætlar að segja á þeim tíma sem
maður hefur til umráða.“
Kransæðakíttiskirkjukaffimessa Pétur hefur áður kom-
ið með óvenjulegar auglýsingar fýrir kirkjuna og hafa
þær stundum farið fyrir brjóstið á fólki. Jafnvel svo að
almættið
Heimir heitinn Steinsson, fyrrverandi útvarpsstjóri, sá
ástæðu til að styðja bann á einstakar auglýsingar. Pétur
leitaði til hans eftir samþykki þegar auglýsingadeildin
neitaði að taka við auglýsingu hans og sagðist Heimir
„standa með sínu fólki.“
„Ég auglýsti einu sinni: „Hafið tungurótarsprengitöfl-
urnar meðferðis í kransæðakíttiskirkjukaffimessuna,“
en það fór fyrir brjóstið á sumum sem ekki þótti þetta
við hæfi. Ég hef alltaf hálft ár til að undirbúa næstu aug-
lýsingu - svo það hefur gengið vel. Maður reynir af veik-
um mætti að fara ótroðnar slóðir, ekki þessar hefð-
bundnu. Ég þoli illa að vera í jakkafötum og með bindi
og finnst hinar settlegu: „Messa kl. 14.00, næsta sunnu-
dag“, auglýsingar of hlédrægar, sérstaklega 1 ljósi þess
að ég auglýsi svo sjaldan." Auglýsingar Péturs eru að-
eins notaðar á föstudegi, laugardegi og sunnudegi fyrir
kirkjukaffimessur og hafa þær því styttri líftíma en flest-
ar auglýsingar. Pétur segist fá viðbrögð við þeim í heita
pottinum í sundlaugunum eftir helgarnar og það sé gott.
Útvarpsauglýsingar:
Mamma
Auglýsandi: Ingvar Helgason og FM957
Framleiðandi: Útvarpssvið Norðurljósa/Hvati
Dagblaðaauglýsingar:
Iifið er ekki þrautalaust
Auglýsandi: Delta
Framleiðandi: Hvíta húsið
Tímaritaauglýsingar:
Skafið hér
Auglýsandi: Fíton
Framleiðandi: Fíton
Umhverfisgrafík:
Nýtt útlit Stöðvar 2
Auglýsandi: Stöð 2
Framleiðandi: Hvíta húsið
Veggspjöld:
Iifa, elska, óska, fá
Auglýsandi:
Húsasmiðjan
Framleiðandi: íslenska auglýsingastofan
Vöru- og firmamerki:
Þú færð meira á XY.IS
Auglýsandi: Islandsbanki
Framleiðandi: Hvíta húsið
m
Auglýsingaherferðir:
Iifa, elska, óska, fá
Auglýsandi: Húsasmiðjan
Framleiðandi: Islenska Auglýsingastofan
Markpóstur:
Pútta, pútta, pútta
Auglýsandi: Vátryggingafélag íslands
Framleiðandi: Gott fólk McCann-Erickson
Kynningarefni annað en markpóstur:
Veiddirðu eitthvað elskan?
Auglýsandi: Aco
Framleiðandi: Fiton
Vefir:
Gottfolk.is
Auglýsandi: Gott fólk McCann-Erickson
Framleiðandi: Gott fólk McCann-Erickson
Óvenjulegasta auglýsingin:
Áttu erfitt með að sofiia?
Auglýsandi: Prestur Óháða safnaðarins
Framleiðandi: Prestur Óháða safnaðarins