Frjáls verslun - 01.11.2002, Side 19
Hálfur heimurinn sem markaður Þegar komið var út til Rúss-
lands var landið að brjótast undan oki kommúnismans og taka
fyrstu skrefin sem lýðræðisríki. Þar var á ferðinni stór
markaður, næstum því „hálfur heimurinn“, eins og þeir orða
það, sem ljóst var að átti eftir að þróast mikið. Tækjunum frá
Islandi fylgdu ágæt viðskiptasambönd sem reyndust vel í Rúss-
landi. „Við Björgólfur Thor vorum þarna um vetur og vorum
ekkert sérlega ánægðir með söluna á drykkjunum," segir
Magnús. í Rússlandi var lítil hefð fyrir því að blanda saman
gosi og áfengi. Þar drukku menn þetta hvort í sínu lagi, glas af
appelsínusafa og glas af vodka. „Við töldum að fólki myndi
sennilega líka forblandaður vökvi, t.d. gin og tónik og gin í
greip. Þetta var smá brjóstbirta og var drukkið í strætó og hvar
sem var,“ segja þeir og Björgólfur eldri bendir á að þetta hafi
talist léttur drykkur, eiginlega bara gosdrykkur. „Við fengum
hugmyndina í Englandi. Við höfðum séð að þar var mikill upp-
gangur í því að selja drykkinn blandaðan. Við byrjuðum með
það í Rússlandi og það gekk mjög vel,“ segir Björgólfur Thor.
Á örfáum árum voru þeir komnir með 40 prósenta mark-
aðshlutdeild í áfengum drykkjum og fóru að leita nýrra vaxtar-
tækifæra. „Við sáum að við þyrftum að fara í aðra framleiðslu
því að dýrt yrði að ná í meiri markaðshlutdeild og halda áfram
þeim vexti sem við vorum vanir. Við höfðum áður velt fyrir
okkur að fara í bjórframleiðslu en aldrei talið tímasetninguna
rétta því að það var miklu flóknari og kostnaðarsamari fram-
leiðsla en við höfðum áður verið í. Þá ákváðum við að rétti
tíminn væri til að helja bjórframleiðslu og þá þurftum við í
fyrsta skipti að fá utanaðkomandi til að leggja okkur lið og
Stefnan hefur verið sett á markað í erlendri kauphöll fyrir fjórða ársfjórðung
2004. Markaðsvirði Pharmaco er um 44 milljarðar og er velta sameinaðs
fyrirtækis um 25 milljarðar króna á þessu ári.
19