Frjáls verslun - 01.11.2002, Síða 21
Björgólfur Thor Björgóljsson, Jjárfestir og stjórnarformabur Heineken Russia og Pharmaco hf. „Það er auðveldara að koma inn i fjármálamarkaðinn
hérna en erlendis því að vaxtarkúrfan er öðruvísi hér. Erlendis gengur illa í þessum geira. ísland er að koma út úr lœgðinni á undan óðrum þjóðum
þannig að þessi tímasetning hentar ágætlega. “
Smám saman heltust fyrirtæki úr lestinni og á endanum voru
það þrjú sem slógust um hituna: Heineken, belgíska fyrirtækið
Interbrew, sem er annað stærsta bjórfyrirtæki í heimi, og
South-African Breweries, sem núna á t.d. Miller, Scottish
Newcastle og Molson í Kanada. Samningaviðræður hófust í
ágúst 2001 og var unnið að þessu sleitulaust þar til samningur
við Heineken var undirritaður 20. febrúar 2002. Kaupverðið,
400 milljónir dollara, hækkaði við samningaborðið og var síðan
að yfirgnæfandi meirihluta greitt út í reiðufé. Kaupsamn-
ingurinn er flókinn og er á við íslensku símaskrána að þykkt.
TÍU ára Útlegð Þessi reynsla, að byggja upp og selja síðan
Bravo International, er þeim minnisstæð því að það var hvorki
einfalt í framkvæmd né undirbúningslaust. Uppbygging fyrir-
tækisins var þrotlaus vinna. „Við þurftum að búa í erfiðu landi
í tíu ár og erum búnir að færa talsverðar fórnir, t.d. í einkalífi,
tíl að koma þessu á. Það er hægara sagt en gert og ofboðslega
mikil vinna sem liggur að baki,“ segir Björgólfur Thor og faðir
hans bætir við að þetta hafi verið „tíu ára útlegð.“ Þeir taka
skýrt fram að þeir höfðu stefnt að því að selja Bravo
International frá upphafi og löguðu þeir reksturinn að alþjóð-
legum staðli. Fyrirtækin voru þá endurskoðuð af
Ernst&Young og síðar PwC og það var einmitt þáttur í undir-
búningi fyrir söluna.
Að sölu sem þessari kemur heil hersing af sérfræðingum
frá ýmsum löndum, t.d. starfsmenn lögfræðifyrirtækja, tækni-
fólk, markaðsfólk og starfsmenn frá endurskoðunarfyrir-
tækjum, sem vinna áreiðanleikakönnun, og má segja að rekst-
urinn hafi þurft að fara í gegnum nálarauga. Magnús rifjar upp
að Heineken hafi eitt sinn komið með 30 manns „og við
höfðum heila hæð í verksmiðjunni undirlagða fyrir þetta fólk
sem kom til þess að grandskoða okkur. Heilt herbergi var upp-
fullt af pappírum sem sögðu sögu fyrirtækisins frá fyrsta degi,“
segir Magnús.
21