Frjáls verslun - 01.11.2002, Side 58
HÚS ATlflNNULÍFSINS
Ari Edwald
Samtök atvinnulífsins
Sveinn Hannesson
Samtök iðnaðarins
Ari Edwald er framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins. Þau voru
stofnuð í september 1999 til þess að
halda fram sjónarmiðum atvinnu-
rekenda og veita fyrirtækjum á
Islandi margvíslega þjónustu. SA
sameina krafta sjö aðildarfélaga
sem starfa á grundvelli atvinnu-
greina og hafa frumkvæði að mál-
efnum fyrirtækja á sínu sviði. Fyrir-
tækin eiga aðild bæði að atvinnu-
greinasamtökum og beina aðild að SA.
Aðildarfyrirtæki SA eru rúmlega 2.600
og innan þeirra starfa um 50% launamanna á almenna vinnu-
markaðnum á íslandi. Meginverkefni SA lúta annars vegar að
kjarasamningum og hins vegar að betra starfsumhverfi fyrir-
tækja, einkum með áherslu á efnahagsstjórnun, skatta- og
samkeppnismál. Sautján starfsmenn eru hjá SA, þar af einn í
Brussel.
SA var áður til húsa að Garðastræti 41.
Sími: 591 OOOO
Veffang: www.sa.is SO
Sveinn Hannesson hefur verið fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
frá stofnun þeirra árið 1993. Starfs-
menn eru 22, þar af einn á Akur-
eyri en félagsmenn eru um 1.250.
Samtök iðnaðarins voru tíl húsa
að Hallveigarstíg 1 í Reykjavík
áður en þau fluttu í Borgartún 35.
Hlutverk samtakanna er að þjóna
íslenskum iðnaði, gæta hagsmuna
hans og vera helstí málsvari á inn-
lendum og erlendum vettvangi.
Fyrirtækin innan SI eru mjög ólík
hvort sem litíð er til stærðar, starfsemi eða markaða. Starf-
semin er því víðfeðm og láta samtökin t.d. til sín taka á sviði
menntamála, útboðsmála, samkeppnismála, umhverfismála og
Evrópumála.
íslenskur iðnaður er í stöðugri framþróun og eykur hlut-
deild sína i landsframleiðslunni. Samkvæmt nýlegum könnun-
um eru menn bjartsýnni en áður um að botninum sé náð eftír
samdráttinn í kjölfar uppsveiflu efnahagslífsins síðustu árin.
Sími: 59 10 100
Veffang: www.si.is S3
Guðjón Rúnarsson Agúst H. Elíasson
Samtök banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) Samtök fiskvinnslustöðva, SF
luðjón Rúnarsson er framkvæmda-
Jstjóri Samtaka banka og verðbréfa-
fyrirtækja. Aðild að samtökunum
eiga viðskiptabankarnir, Spari-
sjóðabankinn, eignaleigu- og
kortafyrirtæki auk nokkurra opin-
berra lánastofnana, samtals 17
aðilar. Tilgangur SBV er að vera
málsvari flármálafyrirtækja í hags-
munamálum og stuðla að sam-
keppnishæfum starfsskilyrðum
þeirra. í því felast samskipti við ráðu-
neyti, Fjármálaeftirlit, Alþingi, önnur hags-
munasamtök og Ijölmiðla. Þá eiga SBV aðild að hagsmunasam-
tökum evrópskra banka, European Banking Federation. SBV
starfa einnig náið með Samtökum atvinnulífsins, gegnum aðild
sína að Samtökum fj árm álafyrir tæ kj a, sem mynda eina af
grunnstoðum SA. Stjórn SBV er skipuð sjö fulltrúum aðildar-
fyrirtækjanna og er Halldór J. Kristjánsson formaður stjórnar.
SBV var áður til húsa að Austurstræti 5.
Sími: 591 0010
Veffang: www.sbv.is 3!]
n gúst H. Elíasson er framkvæmda-
Hstjóri Samtaka fiskvinnslustöðva.
Samtökin eru hagsmunasamtök
fiskvinnslunnar og á vettvangi
þeirra er unnið að margvíslegum
verkefnum í þágu félagsmanna og
greinarinnar í heild. Félagsmenn
SF eru í öllum greinum fiskvinnsl-
unnar, s.s. frystíngu, söltun, fersk-
flakavinnslu, fiskmjölsframleiðslu
og rækju- og skelvinnslu. Afkoma er
misjöfn eftír vinnslugreinum en í heild
starfa um sex þúsund manns í greininni. Á
skrifstofu SF eru fjórir starfsmenn í þremur stöðugildum sem
vinna jafnframt að verkefnum fyrir Landssamband fiskeldis- og
hafbeitarstöðva og Samstarfsvettvang sjávarútvegs og iðnaðar.
SF var áður til húsa að Austurstræti 18.
Sími: 591 0350
Veffang: www.sf.is 33
58