Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2003, Qupperneq 9

Frjáls verslun - 01.03.2003, Qupperneq 9
Nokkrir starfsmenn fyrirtækisins í Kópavogi. Markhópurinn er stór en þó er nokkur sérhæfing. Þjónusta Þekkingar getur hentað hvaða fyrirtæki sem er og á lista yfir viðskiptavini sést að þeir eru margir í verslunarrekstri af ein- hverju tagi. „Það hefur verið okkar meginstoð að þjónusta fyrir- tæki í verslunarrekstri og við höfum lagt áherslu á það,“ segir Stefán. Ákveðna sérþekkingu þarf á því umhverfi og það skiptir miklu máli að þjónustuaðilinn sé þaulkunnugur þeirri starfsemi sem viðskiptavinimir stunda. Fjölmargir kostir Kostirnir eru fjölmargir af þessu fyrirkomulagi, t.d. minni bind- ing á fjármagni, sveigjanleiki og hreint og beint hagræði af því að þurfa ekki að viðhalda sérfræðiþekkingu margra starfsmanna á mörgum og mjög ólíkum kerfum. „Þessi þjónusta hentar fyrir- tækjum af öllum stærðum og gerðum og það er ekki að ástæðu- lausu sem stór fyrirtæki á borð við Baug og Samkaup sjá sér hag í því að kaupa þessa þjónustu," segja þeir. Dryggi og þjónustustig eru þættir sem erfitt er að mæta í lítilli tölvudeild innan fyrirtækis en þessir þættir skipta grfðar- legu máli í þjónustu Þekkingar. Þekking rekur tvo vélasali með fyrsta flokks búnaði þar sem hýsingarþjónusta er veitt. Öryggis- gæslan er öflug og aðeins örfáir starfsmenn hafa aðgang að vélasölunum. Þá er tæknin fyrsta flokks með öllum þeim búnaði sem þarf. Þekking leggur metnað sinn í að veita fullnægjandi sérfræðiþjónustu. Þekking veitir þjónustu um allt land en fyrirtækið er í góðum tengslum við stærstu þéttbýliskjarnana með aðalstöðvum sínum á Akureyri og starfsstöð í Kópavogi. Starfsmenn eru 35 talsins og skiptast nokkuð jafnt á þessa tvo staði. 311 Stefán Jóhannesson, framkuæmdastjéri Þekkingar. Kerfisveita hjá Lyf & heilsu Lyf S. heilsa hf. rekur tvær keðjur af apótekum undir nafninu Lyf & heilsa og Apótekarinn; alls 27 apótek víðs- vegar um landið. Lyf & heilsa hefur verið viðskiptavinur Þekkingar frá upphafi. stjóri fyrirtækisins. Hún segir að upplýsingatæknin sé í aðalhlutverki í lyfja- geiranum. „Upplýsingakerfi Lyf & heilsu er rekið af Þekkingu. Um er að ræða svo- kallaðan kerfisveitusamning sem þýðir að Lyf & heilsa leigir aðgang að mið- lægum hug- og vélbúnaði. Allir notendur keyra á sama miðlæga viðskipta- kerfinu sem auðveldar alla upplýsingasöfnun og upplýsingamiðlum." Mikilvægt er að „uppitími" kerfisins sé sem allra mestur sem og við- bragðsflýtir sérfræðinga ef eitthvað bregður út af. „Þjónustuborð Þekkingar hefur reynst okkur mjög vel, því þar höfum við aðgang að reyndum sérfræð- ingum á flestum sviðum tölvumála allan sólarhringinn." „Öryggismál eru ekki síður mikilvægur þáttur. Þar á ég annars vegar við öryggi í rekstri, þ.e. að afritun og aðgengi gagna sé tryggt, svo og að þau séu heil, og hins vegar að það ríki fullkomið öryggi hvað varðar verndun persónuupplýsinga fyrir óleyfilegri birtingu og aðgangi," segir Hrund. Lyf&heilsa J A P Ó T E K Hmnrl Ri idnlfRtihttir ar rekstrar- Uppitíminn 100% hjá lceland Express Lággjaldaflugfélagið lceland 6>J lceland Express Express flýgur daglega til London og Kaupmanna- hafnar. Netið er lykillinn að vexti og viðgangi lceland Express enda eru neytendur farnir að venjast því vel að kaupa þar flugmiða. Um 75 prósent farmiða lceland Express eru seld á Netinu sem gerir það að verkum að mun færri starfsmenn þarf en hjá hefðbundnum flugfélögum. Starfsmenn eru í netsamskiptum við tugþúsundir viðskiptavina í hverri viku og því er mikið álag á kerfinu. „Þjónusta Þekkingar er okkar bakland, starfsmennirnir eru okkar tölvu- deild. í upphafi fengum við ráðgjöf og leiðbeiningar um hentugt upplýsinga- kerfi og tókum allt sem máli skiptir í einum pakka - hýsingu, hugbúnað og uppsetningu á tölvum. Innifalið var bókhaldskerfi frá Landsteinum, Lotus Notes tölvupóstur, hópvinnukerfi og vefhýsing. Þetta var einn pakki og eitt mánaðargjald og allt tilbúið á nokkrum dögum," segir Gunnar Karl Níelsson, svæðisstjóri internetsölu hjá lceland Express. Torvelt hefði verið að byggja fyrirtækið svo hratt upp og anna allri eftir- spurn ef ekki hefði komið til samstarfið við Þekkingu. Þetta fyrirkomulag telur Gunnar að sé hagstæðara fyrir fyrirtækið en ella. Fjárfestingarkostn- aður sé minni auk þess sem greiður aðgangur sé að sérfræðingum. Uppi- tíminn segir hann að hafi verið 100% frá því vefurinn fór í loftið í byrjun ársins og öryggið til fyrirmyndar. BH 9 KYNNING
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.