Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2003, Síða 62

Frjáls verslun - 01.03.2003, Síða 62
STJORNUN FUNDIR punkta. Dagskrá sé annað og meira. Hún sé áætlun fyrir alla fundarmenn að vinna eftir. I henni eigi að koma fram hvað eigi að ræða og í hvaða tilgangi. Lærdómur: Gefðu upplýsingar um það hvað á að ræða og hver tilgangurinn er. Sjáðu um að þú fáir þær upplýsingar sem þú þarft fyrir fundinn. 3 Raðaðu dagskrárliðum upp Jón stýrir öðrum fundi og þar kemur í ljós að forgangsröðunin er furðuleg. Hann byijar fundinn á því að taka fyrir minniháttar mál, eins og bílastæði, og eyðir miklum tíma í það meðan stóru málin bíða. Þau eru tekin fyrir í lokin og þá vill hann rumpa þeim af, tekur ekki eftir eða vill ekki taka eftir manni sem vill taka til máls undir viðkomandi dag- skrárlið og þegar líður á fundinn kemur í ljós að dagskrárliðirnir eru ekki í réttri röð, ekki er hægt að taka við pöntun áður en vitað er hvort fyrirtækið geti afgreitt hana eða ekki. Dómarinn bendir Jóni á að tímasetja dagskrána þannig að ljóst sé frá upphafi hvaða tíma hver dag- skrárliður fær. „Tímaáætlun þín var einskis virði en röðun dagskrárliða var þó enn verri,“ segir dómarinn. Lærdómur: Finndu eðlilegt samband milli umijöll- unaratriða og raðaðu þeim síðan í rétta röð. Sjáðu til þess að nægur tími sé til að ræða mikilvægustu atriðin enda þótt þau séu ekki brýn. 4 stjórnaðu umræðum Jón er ákærður fyrir að stjórna umræðum illa á stjórnendafundum sínum og í myndbandinu er sýnt dæmi af stjórnendafundi þar sem farið er vítt og breitt og hver og einn segir sína skoðun. Fundarstjórinn grípur inn í öðru hverju en fær engin svör. Fundar- menn eru vanir því að geta valsað um í sínum umræðum og halda því áfram. Þetta telur dómarinn að hafi ekki verið umræður og stjórnandinn samsinnir því, þetta hafi verið hópmeðferð. Dómarinn segir: „Umræður fylgja 62 Undirbúðu fundinn. Undirbúðu þig fyrir fundinn svo að þér og öllum fundarmönnum sé Ijóst til hvers fundurinn er haldinn. Taktu saman dagskrá fundarins fyrirfram. Upplýstu hina fundarmennina. Sendu hinum fundarmönnunum dag- skrá fundarins svo að þeir viti hver tilgangur fundarins er og hvað á að fjalla um á honum. Raðaðu dagskrárliðum í rétta röð. Finndu eðlilegt samband milli um- fjöllunaratriða og raðaðu þeim síðan í rétta röð. Sjáðu til þess að nægur tími sé til þess að ræða mikilvæg- ustu atriðin, t.d. með því að tíma- setja dagskrárliðina. Stjórnaðu umræðum. Skipuleggðu umræður þannig að gögn séu kynnt áður en umræður um þau fara fram, umræður séu á undan ákvarðanatöku og stjórnaðu þessum umræðum. Hafðu skilin skýr þarna á milli. Dragðu saman og skráðu niðurstöðuna. Dragðu saman og skráðu niðurstöð- una í lok fundarins. Láttu einnig fylgja með hver ber ábyrgð á að- gerðinni, ef um slíkt er að ræða. reglum, eins og rétturinn hérna. Fyrst er málið reifað, þá koma gögn, síðan rökræður, loks niðurstaða. Þá fyrst er hægt að ákveða hvað á að gera. Ef ekki þá verður að fresta málinu, fá meiri gögn og fara svo yfir það aftur.“ Lærdómur: Skipuleggðu umræður þannig að gögn séu kynnt áður en umræður um þau fara fram og umræður séu á undan ákvarðanatöku. Stjórnaðu þessum umræðum. Hafðu stigin þarna á milli aðskilin og láttu ekki vaða á milli þeirra. 5 Dragðu saman og skráðu niður- stöðuna Á vikulegum stjórnendafundi fara stjórnendurnir að rífast um það hver hafi orðið niðurstaðan í tilteknu máli á síðasta fundi. Frammi fyrir dómaranum segist Jón hafa haldið að allir hafi vitað hvað var ákveðið á fundinum. Það gengi ekki í réttinum ef einhver óvissa væri um t.d. gamlan dóm eða niðurstöðuna í einhveiju ákæruatriði. Dómarinn benti Jóni því á að draga saman niðurstöður og skrá þær. Gott er að láta fylgja með nafn þess sem á að sjá um þær aðgerðir sem ákveðnar voru. Lærdómur: Dragðu saman niðurstöður og skráðu þær. Láttu fylgja nafn þess sem á að sjá um þær aðgerðir sem ákveðnar voru. Jón viðurkennir að hann er sekur af öllum fimm ákæruatriðunum, sem nefnd voru í upphafi, og fær að vakna ef hann hefur náð undirstöðuatriðunum fimm sem stuðla að styttri og árangurs- ríkari fundum. Hann vaknar svo við vekjaraklukkuna, teygir úr sér og stynur: Fjárans fundir! Þegar honum verður litið niður á bringuna sér hann að hann er í númeruðum fangaklæðum og þá leggst hann niður aftur og segir við konuna að hann ætli að liggja aðeins lengur í rúminu. Hann ætlar að skipu- leggja fund dagsins! 35 Heimild: Video og tölvulausn ehf., dreifingaraðili Video Arts á Islandi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.