Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2003, Síða 87

Frjáls verslun - 01.03.2003, Síða 87
VÍNUMFJÖLLUN SIGMflRS B. unni. Þessi þrúga er í raun í sama gæðaflokki og Cabernet og Pinot Noir. Helstu einkenni Tempranillo eru þau að vín úr þrúgunni þroskast vel með tímanum og springur út, ef svo má segja, við geymslu í eikarámum. Tempran- illovínið frá Rioja eru frekar þurrt, með margslungnu bragði. Hýði þrúgunnar er þykkt, vínið er dimmrautt og frekar áfengt, iðulega 10-11%. Hjá okkur er vínið látið þroskast í eikarámum eins og víð- ast hvar í Rioja. Við höfum reynt að gera vínið okkar aðeins léttara en tíðkast hefur í Rioja, en án þess þó að það tapi bragðeinkennunum." Náttúra og veðurfar Spánar er fjölbreytt. Mikill munur er því á víntegundum hinna ýmsu héraða landsins. Vanilla, þurrkaðir ávextir og eik Ég átti þess kost að bragða á nokkrum víntegundum frá E1 Coto. Sumar þeirra hafði ég að vísu haft nokkur kynni af áður. Fyrsta vínið sem ég bragðaði á var það sem kom mér mest á óvart. Þetta vín er frá fyrirtæk- vínland inu Baron de Ley Rioja sem E1 Coto Rioja rekur nú. Vínið heitir Baron de Ley Finkca Monasterio. Þetta er stórt vín en þrúgusafinn er látinn liggja í þrúguhýðinu rúmar tvær vikur. Þá er það geymt í eikarámum í 2 ár. Þetta er sannkallað steikarvín sem einnig er frábært með villibráð. Munið eftir þessu víni þegar það kemur í verslanir ATVR. Coto de Imaz Reserva er einkar fallegt vín en liturinn er rúbínrauður. Fyll- ingin er jöfn en létt karamellu- og vanillubragð og töluverð eik. Þetta er gott vín með mat, helst kjöti en einnig pasta og austur- lenskum mat. Coto Real Reserva er ekta Rioja vín, kraftmikið vín með mikilli bragðfyllingu. Af þessu víni er milt krydd- bragð, vanilla, negull en einnig vottar fyrir bragði af þurrk- uðum ávöxtum og svo er auðvitað milt en jafnframt gott eikar- bragð af víninu. Flaskan af Coto Real Reserva kostar 2.490 krónur. Það er mjög gott verð miðað við gæði vínsins. E1 Coto Blanco er frískandi og þægilegt hvítvín með yfirgnæfandi bragði af grænum eplum og jafnvel hvitkáli. Þetta er einfalt vin, þægilegt til drykkjar eitt og sér. Önnur spsensk vín Tiltölulega sæmilegt úrval er af spænskum vínum í verslunum ATVR. Þó mætti vera meiri breidd í úrvalinu. Ég sakna víns frá t.d. Montsant, Jumilla og Priorat. Þekktust hafa verið spænsku rauðvínin. Nú eru að koma á markaðinn mjög athyglisverðar hvítvínstegundir, nefna mætti vín sem pressuð eru úr þrúgunni Albarino. Af spænskum víntegundum, sem hægt er að fá í Ríkinu, mætti nefna hið frábæra Torres Vin Mas la Plana. Þá er Beronia Gran Reserva kröftugt vín með mikilli eik. Margbrotið bragð er af víninu, bragð af ávöxtum, hunangi, og kryddi, og þetta vín kallar á góða piparsteik. Fylgist með vínunum frá Spáni Eins og áður sagði bendir allt til þess að á næstunni komi margar áhugaverðar vínteg- undir frá Spáni. Spænskir víngerðarmenn eru í stuði og til alls líklegir enda mikil samkeppni í vínbransanum. Hið virta vín- tímarit Wine Spectator lét á dögunum prófa 47 spænskar vín- tegundir. 10% þessa víns fékk yfir 90 punkta sem er frábær útkoma. Þá ber þess að geta að verð á spænsku víni er frekar hagstætt og mjög hagstætt miðað við gæði. SD Sigmar B. Hauksson mælir með eftirfarandi víntegundum frá Spáni Rauðvín El Coto de Imaz Reserva á 1.380 krónur Torres gran Coronas mas la Plana á 3.850 krónur Beronia Gran Reserva á 1.760 krónur Hvítvín El Coto Blanco á 890 krónur. 87
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.