Almanak alþýðu - 01.01.1930, Blaðsíða 29
vinnu á sjó og landi ályktar verklýðsráðstefn-
an:
1. Qerðar séu strangar kröfur til stjórnarvalda
landsins og trúnaðarmanna við skipaskoðun
ríkisins, að eftirlit með skipum, vélum og
öðrum útbúnaði á sjó og landi, sem pýðingu
hefir fyrir líf og limu verkaiýðsins við
störf sín, sé fullkomnara en nú á sér stað,
og eftirlit meö öryggi skipa, björgunartækja,
véla og verksmiðja sé framkvæmt af mönn-
um, sem sjómanna- og verkanianna-félögin
ákveða.
2. Krefjast skal nákvæmrar lögreglurannsóknar
i hvert sinn, er slys á sér stað, um orsök
þess, svo að hegna megi hverjum peim, sem
valdur kann að vera að slysinu vegna hirðu-
leysis, gáleysis eða gapaskapar.
Jafnframt ályktar ráðstefnan að skora á allan
verkalýð, samtök hans og fulltrúa, að berjast
af öllu megni gegn tilraunum atvinnurekenda
og rikisvaldsins til þess að afnema tryggingu
þá, sem sjómenn hafa nú í sjóveðunum fyrir
kaupi sínu."
4. Atvinnubætur og atvinnuleysistryggingar.
„Verklýðsráðstefnan krefst þess, að gerð
verði áætlun, er nái yfir næstu 5 ár, um bygg-
ingu hafna, rafmagnsstöðva, akbrauta, frysti-
húsa og annara mannvirkja, er vinna má að á
atvinnuleysistímum. Skal barist fyrir skipulögð-
um atvinnubótum af hálfu nins opinbera og lög-
gjöf um jöfnunarsjóð rlkís- og bæjar-félaga, lík-
an tillögu jafnaðarmanna á siðasta alþingi, sem
varið sé til slíkra framkvæmda. Par sem opin-
25