Almanak alþýðu - 01.01.1930, Page 30
berar atvinnubætur fullnægja ekki, skulu koma
atvinnuleysistryggingar verkalýðnum að kostn-
aðarlausu."
5. Kaup viS oplnbera vinnu.
„Verklýðsráðstefnan ályktar að skora á sain-
bandsþingið og væntanlega sambandsstjórn að
vinna að því af alefli að hækka kauj) vega-
vinnumanna og annara verkamanna ríkissjóðs
og samræma kaupgjald þeirra um land alt.
Jafnframt skorar hún á verklýðsfélögin að
neyta allrar orku til þess að komn i veg íyrir,
að unnið sé við opinbera vinnu i umdæmi
þeirra undir taxta verklýðsfélaganna."
6. Sðmu laun fyrir sðmu vinnu.
„Vinna skal að þvi, að konum og unglingum,
er vinna sömu erfiðisverk og karlmenn, sé
greitt karlmannskaup."
7. Kjðr iOnnema.
„Krefjast skal: 1) styttri námstíma fyrir iðn-
nema, 2) að skólatími sá innifalinn í vinnu-
timanum, 3) að iðnin sé raunverulega kend
nemunum, en þeir ekki aðallega notaðir sem
ódýrt vinnuafl, 4) að kaupgjald þeirra hækki
og sé greitt vikulega í peningum, 5) að einka-
samningar milli meistara og iðnneina séu af-
numdir, en í stað þeirra komi samningar \iö
verklýðsfélögin.“
8. Iðgjöld félagsmunna
„Að því skal unnið að samræma og hækka
ársiðgjöld félagsmanna í félögunum og semja
26