Almanak alþýðu - 01.01.1930, Page 40
þýðuflokksins við núverandi ríkisstjórn, ekki
lengur fyrir hendi.“
Tillaga þessi var samþykt með samhljóða at-
kvæðum.
3. Kosningaréttur 21 árs.
„10. þing Alþýðusambands íslands skorar fast-
lega á alþingi að samþykkja tafarlaust að
lækka aldurstakmark fyrir kosningarrétti niður
í 21 ár við alþingiskosningar, jafnt landkjör
sem kjördæmakosningar."
4. Fœrsla kJSrdngs.
„10. þing Alþýðusambands tslands krefst þess,
að kjördagur til alþingiskosninga verði færður
aftur á sama tíma og áður (haustið), og felur
þingmönnum flokksins að neyta allra ráða til
þess að knýja það fram.“
5. Aljsýðuiloklcnrinn ojj átcngisbSlið.
„þar eð eitt af stefnumálum Alþýðuflokksins
er algert bann á innflutningi áfengis, lýsir
þingið yfir því, að það álítur æskilegt, að feit-
kvæðagreiðsla fari fram meðal almennra kjós-
enda um afnám laga um innflutning Spánarvín-
anna, en þar eð slík atkvæðagreiðsla þarf
lengri undirbúning en til næstu almennra kosn-
inga, tekur þingið fyrir næsta mál á dagskrá."
Þá var enn fremur sainþ. svo látandi tillaga:
„Sambandsþingið lýsir yfir fyllstu samúð með
ráðstöfunum þeim, sem verkalýðurinn í ýmsum
kaupstöðum Iandsins hefir gert til þess að
verjast áfengisflóðinu, og skorar á ríkisstjórn-
ina að gera alt, sem í hennar valdi stendur, til
36