Morgunn


Morgunn - 01.06.1987, Page 47

Morgunn - 01.06.1987, Page 47
Phoebe Payne var orðin fullorðin að henni varð fyrst ljóst að hún skynjaði margt, sem aðrir sáu ekki. Hún var mjög ung, þegar hún fór fyrst að skynja að umhverfis mannlegar verur var orkusvið, sem hún sá breyta um lit og styrkleika eftir því hvern- ig geðshræringum, viðhorfum og heilsufari þeirra var háttað. Eftir þessu lærði hún snemma að meta skapgerð fólks. Henni var alltaf augljós hvers kyns óheiðarleiki í fari annarra og furð- aði sig oft á því hvers vegna öðrum voru þessir hlutir ekki jafn ljósir og henni sjálfri. Á síðari árum hefur hún ásamt eiginmanni sínum, sem er geðlæknir, talsvert fengist við að hjálpa fólki, sem á við vanda- mál að stríða og á þessu sviði hafa hæfileikar hennar komið að góðu gagni. í bók eins og þessari er aðeins hægt að rekja sögu rannsókna á HSP-hæfileikum, en undanfarin ár hafa margar fróðlegar bækur komið út um þessi efni. Meðal annars hefur prófessor William Tenhaeff lýst rannsóknum, sem hann gerði á hæfileik- um Croisets, sjáandas hollenska, en prófessor Tenhaeff er for- stöðumaður Parasálfræðistofnunarinnar við háskólann í Ut- recht í Hollandi. Sumar bækur um þessi efni hafa einnig náð al- mennum vinsældum eins og t. d. bókin „Spádómsgáfan" (The Gift of Prophecy), sem fjallar um hina frægu Jeane Dixon og hæfileika hennar og varð metsölubók. Áhugamenn og vísinda- menn fást við tilraunir hér í Bandaríkjunum og víðar um heim. Pað sem þær rannsóknir leiða í ljós kann að eiga eftir að breyta heiminum. í þessari bók hefur orðið „skynnæmur11 verið notað til að tákna þá tegund hæfileika að skynja út fyrir hin venjulegu takmörk skilningarvitanna, en betra orð þyrfti að finna. Eftir því sem rannsóknum miðar áfram á þessu sviði er nauð- synlegt að fundin verði fleiri og fullkomnari orð yfir þau hugtök og fyrirbæri, sem þar koma fyrir ýmis eldri orð eiga þó rétt á sér °g verður eflaust halfið áfram að nota þau áfram sem hingað til. Morgunn 45

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.