Morgunn - 01.06.1987, Blaðsíða 17
bylgjur, augu, skilningsvit eða heila. Hluturinn er þar fyrir hug-
anum eins og heilinn er þar fyrir huganum í sambandi sem er
ekki í nánd í rúmi eða vélrænu sambandi á nokkurn hátt. í
venjulegri skynjun þá fer ekkert á milli frá hinum virka heila til
hugans.
Engin orka er send frá heilanum og er móttekin í huganum.
Hvað samskipti sem eiga sér stað skilja þau orkuna í efnisheim-
inum eftir óskerta. Les hugurinn heilann ef til vill með skyggnis-
hæfileikanum? Sambandið hlýtur að vera líkt því.
Ef við gerum ráð fyrir að hugurinn verki á hluti úr fjarlægð,
eins og mörg dæmi eru um þá er sú verkan bein, þ. e. án þess
að senda venjulega orku frá huganum til hlutarins.
í venjulegri viljaákvörðun veldur hugurinn orkubreytingu í
taugamiðstöðvum án þess að senda orku til þeirra. í báðum til-
fellum þegar um er að ræða áhrif á hluti þ. e. úr fjarlægð eða
með venjulegri aðferð þá færir hugurinn hlutinn án þess að færa
orku til þeirra.
Ef fjarhrif eiga sér stað eins og haldið er frá huga til huga án
neins efnislegs miðils, á sér stað samband sem hefur enga lík-
ingu við venjulegt samband hugar á heila, en gæti gefið aðra
skýringu en kenningar sálfræðinnar um samband vitundarhugar
við huga á lægri sviðum eins og dýra. Stundum sýnist hugarsam-
band takast, þó kemur fyrir að gegnum hugann kemur
„skyggnilestur" heila sem er annarra (hjálplegt til útskýringa
hvernig persóna getur gripið upp hugsun frá einhverjum sem er
ekki meðvitaður um þessa hugsun á þeirri stundu), eða stund-
um gæti hugur lesið eitthvað í sínum eigin heila sem hefur verið
sent huglægt af öðrum huga (neyðar kall, gæti verið náð með P.
K. sem merking í heila móttakandans.)
í þessum tveimur tilvikum er hægt að skýra með sama hætti
og sömu verkun eins og í venjulegum hugarheila sambandi.
Dulsálfræðingar hallast almennt að fjarhrif sé hugar til hugar
samband en sumir hallast að huga til heila tilgátunni.
Venjulegt huga- heila samband hefur ekkert að segja með
forvitrun, en það skapar grundvöll fyrir að tilvera a. m. k.
tveggja dulsálfræðilegra afla þ. e. P. K. og skyggni sé fyrir
hendi.
morgunn
15