Morgunn - 01.06.1987, Blaðsíða 40
aftur. Innan um sé ég vagna sem eru yfirklæddir, þeir eru mjög
einkennilegir."
Denton prófessor hafði einnig uppgötvað fleira fólk en konu
sína, sem hafði til að bera óvenjulega skynhæfileika, og þar á
meðal var systir hans, sem gædd var frábærum hæfileikum.
Hann skýrir frá allmörgum tilraunum sem sýna vel hve furðu-
legir hæfileikar hennar hafa verið. Eitt sinn fékk hann tvo gull-
mola úr námu í Pike’s Flat í Kaliforníu. Hann fékk henni annan
gullmola, án þess að segja henni hvaðan þeir væru og bað hana
að segja sér hvað hún sæi.
„Mér finnst ég vera stödd í sléttlendi, en í fjarska sé ég allt í
kring lágar hæðir. Hér er gull mjög nálægt yfirborði jarðar.
Þetta er ömurlegt landslag og hér er afar eyðilegt; ekkert gras,
aðeins kyrkingslegur gróður á víð og dreif. Ég sé menn á gangi
með hjólbörur vera að fást við að moka burt óhreinindum ofan
í þró neðanjarðar. Ég sé líka námugöng og menn vera þar að
vinna. Gullið liggur dreift á ýmsum stöðum, ekki í gullæðum
eða hörðum hnullungum, heldur í mjúku og seigu formi og
sums staðar er eins og því hafi verið hellt niður um holur og
sprungur í jörðinni. Náman er mjögu einkennileg og ég sé ein-
livers konar langan geisla fara upp og niður. Námamennirnir
klæðast bláum vinnufötum.“
Mánuði seinna lét Denton systur sína fá hinn gullmolann og
bað hana aftur að segja sér hvað hún sæi. „Ég sé aftur sama
staðinn og í fyrra skiptið - allt virðist eins og áður - skolkerið,
námagöngin og mennirnir með hjólbörurnar. Þetta er mjög
langt skolker og þeir láta í það sand og möl. Þetta eru mjög
harðgerðir menn, ungir og hraustir. Ég skil ekkert í hvers vegna
ég sé þannan sama stað aftur.“
Á eftir sagði hún við Denton að í þetta sinn hlytu áhrifin, sem
hún varð fyrir á einhvern hátt að hafa brenglast því að hún hefði
séð fyrir sér nákvæmlega það sama og í fyrra skiptið, og gæti
það varla verið rétt. Hefði hún jafnvel reynt að komast burtu
frá þessum stað og áleiðis að hæð þar skammt frá, verið neydd
til að hverfa aftur á sama staðinn og áður. Hún varð þess vegna
mjög undrandi þegar Denton skýrði henni frá því að síðari gull-
38
MORGUNN