Morgunn - 01.06.1987, Blaðsíða 9
Fundadagurinn var sem fyrr fimmtudagur í fyrrihluta hvers
vetrarmánaðar. Fundirnir hafa verið allvel sóttir sem fyrr. Þó
virðist vera farið að gæta nokkurrar fundaþreytu hjá félags-
mönnum. Það gæti orðið verkefni nýrrar stjórnar að hugleiða
hvort eitthvert nýtt fundaform gæti glætt áhuga félagsmanna á
félagsstörfum.
Á fundinum 10. apríl flutti Ævar Jóhannesson mjög athygl-
isvert erindi um radionik. Radionik er aðferð til sjúkdómsgrein-
inga og lækninga, þar sem lækningamiðillinn notar rafeindatæki
sem millilið.
Séra Rögnvaldur Finnbogason prestur á Stað á Ölduhrygg
var fyrirlesari á fundinum 2. október. Hann sagði frá ferðum
sínum um Rússland í boði Austurkirkjunnar. Þetta var mjög
fróðlegt erindi þar sem komið var inn á sögu þessarar kirkju-
deildar, kirkjubyggingar, helgihald, íkonamálun og stöðu kirkj-
unnar í samtímanum.
Þann 6. nóvember var Sveinn Ólafsson fyrirlesari félagsins.
Sveinn kynnti bók sem hann hefur þýtt og kemur út á næstunni
um sænska dulspekinginn, sjáandann og vísindamanninn
Emanuel Svedenborg. Sveinn hefur í mörg ár unnið frábært
starf til kynningar á verkum Svedenborgs.
Jólafundurinn var haldinn 4. desember. Að venju var þetta
fundur með blönduðu efni, jólahugvekju, tónlist og upplestri.
Dr. Pétur Pétursson félagsfræðingur og prófessor við guð-
fræðideild Háskólans í Lundi var fyrirlesari 5. febrúar. í erindi
sínu kynnti Pétur samfélagslegan og sögulegan bakgrunn þeirra
andlegu hræringa sem hófust urn aldamótin síðustu og hvaða
áhrif þessar hreyfingar hafa haft á lífssýn íslendinga. Rann-
sóknir Péturs sýna að hugmyndir sálarrannsóknamanna hafa
haft ótrúlega mikil og jákvæð áhrif á hugarheim okkar íslend-
inga.
Eins og við sjáum þá er enginn hörgull á því að fyrirlestrarnir
séu bæði fróðlegir og skemmtilegir, en það sem framar öðru
einkennir félagsfundi Sálarrannsóknafélagsins er það hversu
auðvelt hefur verið að fá fram fyrirspurnir og halda uppi um-
ræðuin að fyrirlestrum loknum. Petta tel ég til mikillar fyrir-
myndar.
MORGUNN
7