Morgunn - 01.06.1987, Blaðsíða 63
skjaldkirtilsstöðinni, og stafa af því að þessir orkupunktar fara
að snúast.
Hjartað er miðstöð tilfinninganna. Ennfremur nefndi hún, að
dæmi væri til þess, að orkustöðvarnar hefðu sést af skurðlækn-
um og vísindamönnum við uppskurði, og lýstu sér þá sem silf-
urlitaðir diskar. Telur hún, að í þessum tilvikum hafi viðkom-
andi vísindamaður fengið skyggni á þessari stundu.
Síðan gerði hún tilraunir með liti. Fór það þannig fram, að
miðillinn yfirgaf herbergið, og á meðan valdi persóna úr salnum
sex liti úr miklu úrvali lita af silkiborðum. Las hún síðan úr
borðunum fyrir viðkomandi persónu. Sýndi hún tvær slíkar til-
raunir, og sögðu viðkomandi, að hún hefði 90% rétt fyrir sér.
Síðan sýndi hún blómalestur. Fór það þannig fram, að áður
höfðu sex manns valið sér blóm sem voru á staðnum. Las hún
síðan úr blómunum fyrir hvern og einn, og voru allir mjög
ánægðir með lesturinn.
Síðan var boðið upp á spurningar. Spurt var af hverju áran
geti verið kyrr og líka á hreyfingu. Svaraði hún því til, að áran
breyttist eftir aldri og ástæðum eins og líkaminn.
Spurt var um álit hennar á endurholdgun. Sagðist hún ekki
vilja tala um það, til að forðast rót, þar sem þar kæmi til greina
mjög persónulegt álit hvers og eins.
Ennfremur var hún spurð um áframhaldandi líf þeirra sem
hafa látist sem fóstur, og svaraði hún því til, að líf þeirra héldi
áfram eins óg annarra sem látnir væru.
Síðan skýrði hún fyrir fólkinu hvernig hún les úr blómunum.
Bar hún saman blómalestur og hlutskyggni, og sagði að hlutur-
inn sendi frá sér tíðni, sem lesið er úr, en blómin eru lifandi
hlutur sem tengist náttúrunni, og þaðan í lifandi persónu, og
kemur þess vegna skyggni til við blómalestur.
Sagði hún að síðustu til gamans, að matur sem væri lagaður
með umhyggju hefði meiri útgeislun en sá matur sem búinn er
til í flýti.
Forseti þakkaði síðan gestum komuna og sagði fundi slitið kl.
22. 30.
Túlkar voru: Aðalheiður Friðþjófsdóttir og Auður Hafsteins-
dóttir. Ritari var Helga Einarsdóttir.
morgunn
61