Morgunn


Morgunn - 01.06.1987, Blaðsíða 56

Morgunn - 01.06.1987, Blaðsíða 56
frá karlmanni endur fyrir löngu. Ég skynja örvæntingu og harm. Mér finnst sem allt sé glatað og ekkert skipti lengur neinu máli. Ástvinurinn er horfinn. Já, mér finnst að þessi hringur hafi ver- ið gefinn konu fyrir ævalöngu í heitu landi. Líklega í Persíu eða Indlandi.“ Við athuganir mínar á hlutskyggni virtust koma fram nokkur almenn atriði. Auðveldara virtist að lýsa hlut, sem við voru bundin sterk áhrif tilfinninga heldur en hlut, sem engin tilfinn- ingaleg áhrif voru tengd við. Einnig virtust hlutir, sem notaðir höfðu verið til trúarathafna og helgisiða búa yfir miklu sterkara orkusvið en hlutir, sem verið höfðu í eigu venjulegs fólks. Þannig komu t.d. miklu fleiri myndir og áhrif fram í gegnum kross, sem notaður hafði verið í kirkju árum saman heldur en ef hann hefði verið í eigu einstaklinga. Ennfremur fullyrtu þeir, sem hlutskyggni höfðu, að málmar og gimsteinar heldur orku- áhrifum sínum mun betur en önnur efni. Pappír virtist ekki halda sérlega vel orkuáhrifunum, en sendibréf, sem hafa að gcyma einhver tilfinningaleg áhrif, virðist liins vegar vera auð- velt að skyggna. Einnig virðist vera auðveldara að lýsa áhrifum bréfa, sem skrifuð eru með blýandi en með bleki. Ég komst einnig að raun um að þegar ég hafði vafið vissri teg- und varnarefnis utan um það, sem hinn hlutskyggni átti að lýsa, svipað og ég hafði notað í sambandi við vatnsleitarhæfileika, veittist honum afar erfitt að ná fram nokkrum áhrifum, en þetta gilti þó ekki um nein önnur efni. Einnig skipti umhverfið miklu máli. Bestur varð árangurinn venjulega ef ég var ein viðstödd eða þá örfáir aðrir, sem höfðu jákvæða afstöðu gagnvart þeim skyggna. Öll neikvæð afstaða dró verulega úr gelu hins skyggna. Næmleiki hans minnkaði einnig við áhrif sumar lyfja. Við tilraunirnar notaði ég eingöngu hluti þar sem hægt yrði að ganga úr skugga um hvort lýsing hins skyggna hefði verið rétt og um leið reyndi ég sem oftast að fá fleiri skyggna til að lýsa sama hlut, án þess að þeir vissu um lýsingu hvers annars. Furð- aði ég mig oft á því hve nákvæmlega lýsingum þeirra bar saman. Ég gat heldur ekki varist undrun yfir því hve vel skyggnilýsingar þeirra samræmdust þeim upplýsingum, sem ég síðar aflaði mér 54 MORGUNN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.