Morgunn - 01.06.1987, Blaðsíða 56
frá karlmanni endur fyrir löngu. Ég skynja örvæntingu og harm.
Mér finnst sem allt sé glatað og ekkert skipti lengur neinu máli.
Ástvinurinn er horfinn. Já, mér finnst að þessi hringur hafi ver-
ið gefinn konu fyrir ævalöngu í heitu landi. Líklega í Persíu eða
Indlandi.“
Við athuganir mínar á hlutskyggni virtust koma fram nokkur
almenn atriði. Auðveldara virtist að lýsa hlut, sem við voru
bundin sterk áhrif tilfinninga heldur en hlut, sem engin tilfinn-
ingaleg áhrif voru tengd við. Einnig virtust hlutir, sem notaðir
höfðu verið til trúarathafna og helgisiða búa yfir miklu sterkara
orkusvið en hlutir, sem verið höfðu í eigu venjulegs fólks.
Þannig komu t.d. miklu fleiri myndir og áhrif fram í gegnum
kross, sem notaður hafði verið í kirkju árum saman heldur en ef
hann hefði verið í eigu einstaklinga. Ennfremur fullyrtu þeir,
sem hlutskyggni höfðu, að málmar og gimsteinar heldur orku-
áhrifum sínum mun betur en önnur efni. Pappír virtist ekki
halda sérlega vel orkuáhrifunum, en sendibréf, sem hafa að
gcyma einhver tilfinningaleg áhrif, virðist liins vegar vera auð-
velt að skyggna. Einnig virðist vera auðveldara að lýsa áhrifum
bréfa, sem skrifuð eru með blýandi en með bleki.
Ég komst einnig að raun um að þegar ég hafði vafið vissri teg-
und varnarefnis utan um það, sem hinn hlutskyggni átti að lýsa,
svipað og ég hafði notað í sambandi við vatnsleitarhæfileika,
veittist honum afar erfitt að ná fram nokkrum áhrifum, en þetta
gilti þó ekki um nein önnur efni.
Einnig skipti umhverfið miklu máli. Bestur varð árangurinn
venjulega ef ég var ein viðstödd eða þá örfáir aðrir, sem höfðu
jákvæða afstöðu gagnvart þeim skyggna. Öll neikvæð afstaða
dró verulega úr gelu hins skyggna. Næmleiki hans minnkaði
einnig við áhrif sumar lyfja.
Við tilraunirnar notaði ég eingöngu hluti þar sem hægt yrði
að ganga úr skugga um hvort lýsing hins skyggna hefði verið rétt
og um leið reyndi ég sem oftast að fá fleiri skyggna til að lýsa
sama hlut, án þess að þeir vissu um lýsingu hvers annars. Furð-
aði ég mig oft á því hve nákvæmlega lýsingum þeirra bar saman.
Ég gat heldur ekki varist undrun yfir því hve vel skyggnilýsingar
þeirra samræmdust þeim upplýsingum, sem ég síðar aflaði mér
54
MORGUNN