Morgunn - 01.06.1987, Blaðsíða 62
Félagsfundur
Félags- og fræðslufundur S.R.F.Í. var haldinn mánudaginn
11. maí 1987 að Hallveigarstöðum og hófst kl. 20.30.
Forseti félagsins Geir Tómasson setti fundinn, bauð gesti
velkomna til þessa fyrsta fræðslufundar á árinu. Síðan kynnti
hann gesti fundarins, breska miðilinn frú Gladys Fieldhouse og
skýrði frá starfshögum hannar. Síðan ávarpaði Geir miðilinn og
bauð henni að byrja fræðsluna.
Frú Gladys byrjaði á því að tala um áruna, lýsti áhrifum
hennar útliti og Iitum. Vitnaði hún m. a. í vísindamanninn Lyall
Watson, sem hefur fundið þúsundir lita og litaafbrigði í árunni,
sem mannlegt auga greinir ekki, og sagði frá Kirian myndavél-
inni sem tekur mynd af hluta árunnar.
Ennfremur vitnaði hún í breska miðilinn Ursulu Roberts,
sem sagði að áran væri eins og kertislogi eða ilmur í kring um
blóm, og að síðustu vitnaði hún í gömlu spekingana, sem
sögðu, að áran væri heilagur hjúpur sem sálin flyti í.
Áran er ekki einungis með lifandi mönnum heldur einnig
með þeim sem farnir eru, ennfremur með ófæddum börnum.
Áran er litlaus hjá nýfæddu barni, en fær smátt og smátt lit við
hvern dag sem barnið lifir.
Áran verður mest áberandi kring um þá hluta líkamans sem
koma til með að móta lífsviðurværi mannsins, hún segir einnig
til um ástand líkamans t. d. veikindi, eiginleika, mistök, reynslu
og tilfinningar. Síðan skýrði hún liti árunnar og leiðrétti ýmsan
misskilning í sambandi við þýðingu þeirra, t. d. rauða litinn,
sem af mörgum hefur verið ranglega túlkaður. Skýrði hún þetta
frekar með því að kveikja á mismunandi litum kertum og líkti
kertaloganum við áruna.
Talaði hún næst um orkustöðvar líkamans. Sagði hún að það
væru margir orkupunktar, og þeir helstu tengjast kirtlum líkam-
ans, ennfremur þar sem taugaendar koma saman. Þýðinga-
mesta orkustöðin er á hvirflinum. Dulrænir hæfileikar koma frá
60
MORGUNN