Morgunn - 01.12.1997, Page 24
Sannanir fyrir lífi eftir dauðann
sínar. Eitt vel skráð tilfelli, áþekkt að ýmsu leyti þeim sem
safnað var af dr. Sabom, var nýlega skráð af ungfrú
Kimberly Clark við Harborview læknastöðina í Seattle í
Washington. Það átti sér stað
þegar hún var að hjálpa konu,
sem var að ná sér af hjartaáfalli.
Konan var í miklu uppnámi
vegna reynslu sem hún hafði
orðið fyrir að því er virtist á
meðan hún var meðvitundar-
laus. Hún sagði Clark frá því að
hún hefði yfirgefið líkamann á
meðan verið var að vekja hana úr
dauðadái. Hún yfirgaf þá her-
bergið og var skyndilega stödd á
palli annarrar hæðar á sjúkra-
húsinu. Þar tók hún eftir tennis-skó með þvældum
framenda. Konan bað fröken Clark ein-dregið að fara og
athuga pallinn, sem hún og gerði. Og þar fann hún
tennisskóinn eftir nokkra leit.
Það sem hafði mest áhrif á rannsóknakonuna var það
HVERNIG sjúklingurinn hafði lýst skónum.
„Eini möguleikinn á að hún hefði séð hann frá þessari
hlið,“ skrifar hún, „var sá að hún hefði svifið rétt fyrir
utan og mjög nálægt tennisskónum.“
Rannsóknafólk, sem hefur áhuga á þessu fyrirbæri, vill
beina jafnvel meiri athygli að „kjarna“ eða „sértækri"
nær-dauða reynslu. Það eru frásagnir sem ganga lengra en
einfaldar reynslusögur af ferðum utan líkamans, þar sem
hinn deyjandi virðist ferðast til andlegs sviðs.
Þessari ferð virðist oftast vera lýst sem för í gegnum
göng eða tómarúm á meðan viðkomandi er skilinn við
22 MORGUNN