Morgunblaðið - 22.02.2009, Side 4

Morgunblaðið - 22.02.2009, Side 4
4 FréttirVIKUSPEGILL MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2009 Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is Þ að hefur aldrei verið eins mikil þörf á því að velferðarkerfið virki og nú,“ seg- ir Heiðar Guðnason, forstöðumaður Samhjálpar. Allt frá því snemma árs 2008 hefur verið stígandi aðsókn í þjónustu hjálparsamtaka, jafnt hjá Samhjálp sem og Hjálparstofnun kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd, Fjölskylduhjálp og Hjálpræðishernum. Sífellt meira ber á atvinnulausum í þessum hópi, fjölskyldufólki sem aldrei fyrr hefur þurft að reiða sig á aðstoð og hefur leitað allra annarra úrræða áður en þau þungu skref eru tekin að leita til hjálp- arstofnana. Gangi atvinnuleysisspár eftir búast að- standendur þessara stofnana við því að þeim fjölgi í jöfnu hlutfalli sem eygi engin önnur úrræði til að fæða sjálfa sig og fjölskyldur sínar. Þá er hætt við því að gæta muni vaxandi heilbrigðisvandamála hjá því fólki sem upplifir að fótunum hafi skyndilega verið kippt undan því. Margir enn að klóra í bakkann „Maður er smeykur um hvað gerist hjá þeim sem farið er að fjara undan,“ segir Heiðar Guðna- son hjá Samhjálp. Þar á bæ hafa menn áhyggjur af því að sá stóri hópur samfélagsins sem er á bata- vegi eftir að hafa sótt meðferð síðustu ár sé sér- staklega viðkvæmur fyrir ástandinu og hjá þeim eigi enn eftir að koma harður skellur. Heiðar bendir á þá staðreynd að stór hópur fyrr- verandi skjólstæðinga Samhjálpar hafi fundið sér lifibrauð í byggingariðnaði, þar sem vaxandi at- vinnuleysi hefur komið hvað harðast niður. „Marg- ir eru ennþá að klóra í bakkann áður en skellurinn kemur. Það er til dæmis fullt af mönnum sem hafa verið edrú núna í 1-10 ár og hafa smám saman ver- ið að byggja sig upp, koma sér upp bíl og íbúð, en sjá fram á að missa það kannski allt. Hættan er að þeir leiti í það sem þeir þekktu áður til að deyfa sársaukann.“ Vilhjálmur S. Jóhannsson, umsjónarmaður kaffi- stofu Samhjálpar, þar sem allt að 120 manns reiða sig nú daglega á matarskammta, tekur í sama streng. „Það er hætt við því að alkóhólisminn banki upp á hjá mörgum núna. Þessi sjúkdómur virkar þannig, skrattinn kemur og segir: „Jæja, ertu þá kominn til mín aftur.““ Hjá ákveðnum hópum fari allt úr böndunum í kreppuástandi og þar sé með- ferðatengdi hópurinn viðkvæmastur, ekki síst þeir sem fóru aftur út í samfélagið eftir meðferð þegar góðærið stóð sem hæst. „Batagrunnurinn verður ekki eins sterkur í góð- æri, þegar allir vegir eru færir án fyrirhafnar,“ segir Vilhjálmur. „Góðærið hjálpar fólki að finna sér farveg, þú færð strax vinnu, íbúð og pening í stað þess að þurfa að hafa fyrir því að koma undir þig fótunum, en að sama skapi verða þessar varnir ekki eins sterkar eftir langvarandi góðæri.“ Hætta sé á því að fleiri í þessum hópi fari nú út af sporinu en ella. Til að bregðast við þessu, og helst af öllu fyr- irbyggja það, vonast Samhjálp til að geta eflt starf göngudeildarinnar. Þangað leita nú æ fleiri ein- staklingar sem eru hræddir um að þeir séu að missa tökin og vilja aðstoð við að halda sér réttum megin við línuna í neyslu. Þórarinn Tyrfingsson, yf- irlæknir á Vogi, hefur svipaða sögu að segja. „Fólk hefur stuðningskerfi til að verjast falli, og manni virðist okkar hópur, sem þegar hefur fengið með- ferð, vera duglegri að sækja svona stuðning núna, sem bendir til að hann sé á varðbergi.“ Áfengissýki fyrr fram en geðrænn vandi Þórarinn segir hins vegar erfitt að fullyrða um hvernig málin þróast, en á Vogi hafi strax á fyrstu mánuðum eftir bankahrunið orðið hlutfallsleg fjölg- un á karlmönnum 40 ára og eldri í meðferð. „Sem studdi þá tilfinningu okkar að það væri a.m.k. ákveðinn hópur skjólstæðinga sem væri í meiri fallhættu undir þessu álagi. Margir hafa þær kenningar að við séum fyrst núna að nálgast þá tíma að áfallið fari að koma niður á fólki. Mín til- finning er sú að okkar hópur, áfengissjúklingar, bregðist fyrr við, eins og við höfum þegar séð, en fólk með ýmiskonar geðrænan vanda, það muni kannski fremur fara að birtast núna.“ Vilborg Oddsdóttir hjá Hjálparstarfi kirkjunnar segir þá sem illa eru staddir eiga erfiðara með að taka inn á sig þjóðfélagsumræðuna og verði fyrir huglægri kreppu sem sé litlu skárri. „Auðvitað er það frábært sem hefur verið gert, að koma upp að- stöðu fyrir atvinnulausa að hittast á, það er nauð- synlegt að halda sér virkum svo ekki bætist þung- lyndi og kvíði við atvinnuleysið, en það breytir því ekki að fólk á enn ekki fyrir mat og fyrir reikning- unum. Þetta óöryggi er það versta.“ Mörgum hætt við falli  Sjaldan hafa fleiri þurft á úrræðum hjálparstofnana að halda  Hætt við því að þeir sem eru viðkvæmir fyrir kikni undan álaginu og andleg kreppa fylgi í kjölfarið Morgunblaðið/Sverrir Hjálp Hátt í 200 fjölskyldur reiða sig nú vikulega á Fjölskylduhjálp og Hjálparstarf kirkjunnar. Á Kaffistofu Samhjálpar sam- einast hjálpfúsar hendur við að útdeila mat daglega. Þangað hafa sótt allt að 120 manns á dag undanfarnar vikur. Morgunblaðið/Golli „VIÐ finnum fyrir því að sumir þeirra sem koma og hafa misst vinn- una upplifa tvöfaldan vanda,“ segir Vilborg Oddsdóttir hjá Hjálp- arstofnun kirkjunnar. „Þetta á við um eldri menn sem eru bæði að missa vinnuna í fyrsta skipti á æv- inni og finnst þeir hafa brugðist sem fyrirvinna, en á sama tíma upp- lifa þeir að eiga kannski aldrei aft- urkvæmt á vinnumarkaðinn, jafnvel þótt ástandið breytist. Maður finnur mikla örvæntingu hjá þessu fólki sem hugsar með sér að jafnvel í góð- ærinu hafi verið erfitt fyrir eldra fólk að fá vinnu, hvað þá núna.“ HLUTI þeirra sem nú sjá sér ekki annað fært en að sækja matargjafir eru öryrkjar og aðrir tekjulágir sem hingað til hafa getað náð endum saman á bótum en í verðbólgunni hefur það orðið ómögulegt. „Þetta fólk býr enn í sama hús- næði og er með sömu, föstu tekjur en þær duga ekki lengur. Maður veit ekki hvernig það þróast, ef gengið styrkist aftur og verðlag lækkar er hugsanlegt að þessi hópur komist aftur í þá stöðu að þurfa ekki á okk- ur að halda,“ segir Vilborg. „Maður sér líka að þetta fólk á ekki fyrir tómstundum barnanna sinna.“ ÁSGERÐUR Jóna Flosadóttir, for- stöðukona Fjölskylduhjálpar, segir kreppuna ekki koma eins illa við þennan hóp, öryrkja og tekjulága, og þá sem eru atvinnulausir. „Áfallið er minna, því þau höfðu svo lítið milli handanna fyrir. Yf- irleitt er þetta fólk í félagslegu hús- næði sem það þarf ekki að hafa áhyggjur af að missa eins og hinir, sem eru vanir því að hafa allt sitt á hreinu en sjá núna allt í einu ekki til lands og það er náttúrlega það versta, það er þetta óöryggi sem fer mjög illa með fólk. Til okkar leita líka barnmargar fjölskyldur og koma stundum með börnin með sér og við sjáum það að þetta er mjög erfitt fyrir þau og hefur slæm áhrif.“ „KREPPAN, hún kemur verst niður á börn- unum,“ segir Sigurbjörg Árnadóttir, sem bjó lengi vel í Finnlandi og hefur áður bent á að al- varlegar afleiðingar kreppunnar sem þar varð á tíunda áratugnum ættu að vera Íslendingum víti til varnaðar. „Aldrei nokkurn tíma í finnskri sögu hefur verið jafnmikið af öryrkjum undir þrítugu eins og er í dag, og það eru þeir sem voru börn í kreppunni og ólust upp við þær kring- umstæður að foreldrarnir voru atvinnulausir, lentu í dópi eða brennivíni og það var ekki til matur. Það þarf fyrirbyggjandi aðgerðir ef við ætlum ekki að sitja uppi með það sama hér.“ Sigurbjörg segir kreppuna hér enn vera að þróast með svipuðum hætti og hún gerði í Finnlandi. „Þetta er nákvæmlega sama þróun- in; atvinnuleysi eykst, fólk missir húsnæðið, vextir eru háir. Nema við erum verr stödd ef eitthvað er því við höfum ekki sama fé- lagslega kerfið.“ Augljóst má telja að barna- fjölskyldur sem sækja nú í auknum mæli mat- argjafir hjálparstofnana hafi ekki efni á því að borga mat fyrir börnin sín í skólunum. Sigurbjörg segir að kostnaður við lækn- isþjónustu fyrir börnin, skriffæri, bækur og þess háttar sé bágstöddum fjölskyldum mjög íþyngjandi. Þetta hafi allt saman verið ókeypis í Finnlandi. „Ég myndi vilja sjá ókeypis heita máltíð í skólanum fyrir öll börn og er tilbúin að greiða skatt til að börn fái að borða hérna.“ Hún er áhyggjufull gagnvart þeirri þróun að skorið sé niður í forvörnum og meðferð- arúrræðum eins og verið hefur. „Það hefur aldrei verið eins mikil þörf á forvörnum og geðhjálp og í dag. Það var líka skref í alranga átt að hækka áfengisverð svona. Þá kemur heimabruggið og fólk fer að kaupa hvað sem er á svörtum markaði.“ Verði ekkert að gert segir hún viðbúið að áfengis- og fíkniefnaneysla auk geðrænna vandamála aukist jafnt og þétt þótt mörgum finnist fjarstæðukennd tilhugsun að ástandið hér geti nokkurn tíma orðið eins og það var verst í Finnlandi. „Þeir héldu það líka þar, og það hefði verið erfitt að sannfæra mig um það áður en hrunið varð að Finnar ættu eftir að standa í þessum sporum.“ Forvörn og geðhjálp aldrei þarfari en nú Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ekki of seint Sigurbjörgu líst illa á þróunina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.