Morgunblaðið - 22.02.2009, Side 12

Morgunblaðið - 22.02.2009, Side 12
12 Heilbrigðismál MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2009 Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is S amskipti lækna og sjúk- linga skipta milljónum á ári hverju og því miður er ekki hægt að koma alfarið í veg fyrir að eitthvað geti farið úrskeiðis við greiningu sjúkdóma eða að réttri greiningu seinkar, en okkar hlutverk er að stuðla að því að halda þeim tilvikum í algjöru lágmarki. Læknar eru almennt vel menntaðir og tækin góð en sumir sjúkdómar leyna verulega á sér og ekki verður við öllu séð. Sérstaklega þarf að huga að því að upplýsingagjöf og samspil og samskipti milli heilbrigðisstarfs- fólks séu með eðlilegum hætti,“ segir Matthías Halldórsson landlæknir spurður um skilvirkni íslenska heil- brigðiskerfisins þegar kemur að því að greina sjúkdóma. Eins og saga Björgvins Björgvins- sonar í Morgunblaðinu í dag og saga Atla Thoroddsens flugmanns í blaðinu fyrir þremur vikum staðfesta getur röng sjúkdómsgreining haft af- drifaríkar afleiðingar í för með sér. Björgvin lést í fyrra en krabbamein Atla er á lokastigi. Í báðum tilfellum er kvartað undan samskiptaleysi milli lækna. Matthías segir landlæknisemb- ættið reiðubúið að gera ítarlega al- menna kerfisbundna rannsókn á helstu orsökum þess að mistök eiga sér stað í heilbrigðiskerfinu en ekki hafi fengist til þess fjárveiting. „Þetta er mikið verk eigi að gera það almennilega en eins og staðan er í fjármálum íslenska ríkisins núna eru ekki miklar líkur á því að fjárveiting fáist til þess á næstunni. Þangað til við getum gert þessa rannsókn er ógerlegt að segja til um tíðni mistaka af þessu tagi,“ segir Matthías en bætir við að margt bendi til þess að mistök í heilbrigðiskerfinu séu fleiri en komi fram. „Oft virðist tilviljunum háð hvað kemur upp á yfirborðið.“ Rútínuvinna færð til betri vegar Ekki er venja að landlæknisemb- ættið bregðist við málum óumbeðið en Matthías segir embættið í aukn- um mæli farið að breyta vinnubrögð- um sínum á þann veg að það kanni og reyni að færa rútínuvinnu í heil- brigðiskerfinu til betri vegar í stað þess að bregðast við einstaka til- vikum. Nefnir hann sem dæmi klín- ískar leiðbeiningar, þ.e.hvernig eigi að greina og meðhöndla algenga sjúkdóma. Matthías segir rannsóknir á mis- tökum hafa verið gerðar víða erlend- is og oftar en ekki hafi komið í ljós að samspilið milli fólks mætti vera betra. „Þetta er yfirleitt ekki kunn- áttuskortur, heldur eitthvað sem fer úrskeiðis í kerfinu sem slíku.“ Frumvarp um sjúkraskrár liggur nú fyrir Alþingi og segir Matthías rafræna sjúkraskrá fá þar aukið vægi sem komi til með að verða til mikilla bóta, ekki síst þegar sjúkling- ar þurfa að ganga milli ólíkra sér- Fremur sko Erlendar rannsóknir benda til þess að fremur sé um skort á samspili en kunnáttu að ræða þegar sjúklingar fá ranga greiningu. Ekki hef- ur enn fengist fjármagn til að rannsaka þetta til hlítar hér á landi og landlæknir hefur grun um að ekki komi öll mál af þessu tagi upp á yfirborðið. Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is Það er þrautin þyngri aðkenna helstu verk enskrarbókmenntasögu á þessumsíðustu og verstu tímum þar sem hinn almenni háskólanemi í Englandi hefur hvorki nægilega þekkingu á Biblíunni né goðafræð- um til að skilja þau. Þetta upplýsti lárviðarskáld Breta, Andrew Motion, í breska rík- isútvarpinu, BBC, í vikunni. Hann kennir við Konunglega Holloway- háskólann í Lundúnum og segir klassískar bókmenntir ennþá hafa ótvírætt gildi þar sem þær veiti ómetanlega innsýn í mannlegt eðli. Margir nemendur eigi aftur á móti erfitt með að skilja þær. „Fyrir skemmstu varð ég fyrir dapurlegri reynslu þegar ég var að reyna að fræða nemendur mína um Paradísarmissi. Þeir vissu svo lítið um samhengið sem ljóðið er ort í og tilvísanirnar í því að við komumst hreinlega ekki spönn frá rassi. Og þetta voru afburðanemendur,“ sagði Motion. Paradísarmissir er almennt álitið eitt af öndvegisverkum enskra bók- mennta en þetta guðfræðilega sögu- Illa að sér í Biblíunni og goðafræðum LÁRVIÐARSKÁLD BRETA HEFUR ÁHYGGJUR AF FÁ- FRÆÐI HÁSKÓLA- NEMA ÞAR Í LANDI Gottskálk Þór Jensson Andrew Motion Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is BJÖRGVIN Björgvinsson, 32 ára bifvélavirki, lést úr húðkrabba- meini í maí síðastliðnum. Ekkja Björgvins, Telma Magnúsdóttir, og tengdafaðir hans, Magnús Matt- híasson, segja að heilbrigðiskerfið hafi gjörsamlega brugðist en krabbamein Björgvins greindist seint og um síðir eftir að læknar höfðu staðhæft að hann væri heill heilsu. Mistök lækna Björgvin og Telma bjuggu á Tálknafirði árið 2001 þegar Björg- vin varð var við fæðingarblett á baki. Læknir á staðnum fjarlægði blettinn og sendi í ræktun. Í ljós kom að um var að ræða illkynja sortuæxli. „Við fórum til Reykjavík- ur þar sem læknar rannsökuðu Björgvin og sendu hann síðan í að- gerð. Eftir það fór Björgvin nokkr- um sinnum í eftirlit sem byggðist aðallega á því að kanna hvort fleiri blettir fyndust á líkamanum. Engar blóðrannsóknir eða annað eftirlit fór fram,“ segir Telma. Vorið 2005 átti Telma von á öðru barni þeirra hjóna. Björgvin vildi þá vera alveg viss um að ekkert amaði að honum og fór því í frekari rann- sóknir. Honum var sagt að hann væri laus við öll mein. Sonur fædd- ist þeim hjónum seinna á árinu en fyrir áttu þau fjögurra ára dóttur. Í febrúar 2008 fann Björgvin fyrir miklum verkjum í maga og var fluttur á bráðamóttöku Borgarspít- alans. Við rannsóknir kom í ljós að meinvörp voru í maga. Frekari rann- sóknir leiddu í ljós að meinið var komið út um allan líkamann. Læknar höfðu allt frá árinu 2001 talið að ekkert amaði að Björgvini en nú var ljóst að þeir höfðu haft á röngu að standa. Tæpir þrír mán- uðir liðu frá greiningu þar til Björg- vin lést, 22. maí 2008. Vonin dofnar „Það var ekki fyrr en 19. maí sem okkur varð ljóst að vonin væri orðin lítil um að hann myndi lifa,“ segir Telma. „Læknir á líknardeild í Kópavogi sagði okkur að þetta væri ekki spurning um vikur og mánuði heldur nokkra daga. Þegar Björgvin var fluttur á líknardeild á mánudeg- inum sá ég á honum hvert stefndi því augu hans voru alveg tóm, það var enginn neisti, ekkert líf eftir í þeim. Ég vildi samt ekki trúa því að hann væri að deyja og hélt í vonina um bata. Á þriðjudagsmorgni var hann orðinn rænulítill og hann dó aðfaranótt fimmtudags. Frá þeim tíma hef ég verið að læra á lífið upp á nýtt. Ég stend ein eftir með tvö börn, sjö og þriggja ára, og reyni að útskýra fyrir þeim af hverju pabbi þeirra kemur ekki lengur heim til þeirra. Um leið þarf ég að berjast við sorgina sem fylgir því að missa þann sem maður elskar.“ Magnús segir að þau Telma von- ist til að örlagasaga Björgvins verði til þess að heilbrigðiskerfið verði bætt þannig að rannsóknir og eft- irlit verði markvissara. „Það á ekki að segja við sjúkling: Þú ert orðinn góður – bless! heldur verður að tryggja almennilegar rannsóknir og eftirlit. Fólk á ekki að þurfa að ástæðulausu að missa sína nán- ustu.“ Morgunblaðið/Kristinn Fjölskylda Magnús Matthíasson, tengdafaðir Björgvins Björgvinssonar og Telma Magnúsdóttir, ekkja Björg- vins, segja heilbrigðiskerfið hafa brugðist honum. Sjúkdómur hans greindist seint og um síðir. Látinn Björgvin Björgvinsson lést úr krabbameini aðeins 32 ára að aldri. LÆKNAR SÖGÐU AÐ ALLT VÆRI Í LAGI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.