Morgunblaðið - 22.02.2009, Side 20

Morgunblaðið - 22.02.2009, Side 20
20 Lestur MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2009 Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is Þ að er barnastund í Ár- safni daginn sem blaða- maður og ljósmyndari heimsækja safnið, sem fagnar einmitt fimm ára afmæli í dag. Bókasöfn hafa sér- stakan sjarma og vekja áreiðanlega upp æskuminningar hjá mörgum, sérstaklega þegar gengið er inn í barnadeildina og við blasa bóka- flokkar á borð við Frank og Jóa og Fimm-bækurnar. Ný ævintýri hafa líka tekið við og reyndar halda gömul einnig áfram en Æv- intýradalurinn eftir Enid Blyton kúrir í bókahillu sem merkt er „Nýtt 2008“. Fjögurra og fimm ára krakkar frá leikskólanum Rofaborg eru í heimsókn í safninu og sitja á stólum og sessum í bjartri barnadeildinni og áhuginn leynir sér ekki. Hóp- urinn, sem telur 14 krakka, er að skoða bækur að eigin vali eftir að hafa hlýtt á Bergrós Hilmarsdóttur, barnabókavörð safnsins, lesa æv- intýri við líflega glærusýningu. Hópur frá leikskólanum kemur í heimsókn á safnið í hverri viku sem þýðir að hvert barn mætir á bóka- safnið allavega einu sinni í mánuði. Ársafn sinnir fleiri hverfisleik- skólum og -skólum, en skólarnir panta sögustund hjá Bergrós. Að undanförnu hefur hún gjarn- an lesið ævintýri og tröllasögur fyr- ir börnin. Stundum hafa skólarnir óskað eftir ákveðnu viðfangsefni en á þorranum hefur þjóðlegt efni ver- ið í fyrirrúmi. Meiri umferð í safninu Bergrós hefur tekið eftir meiri umferð í safninu að undanförnu og teljari í inngangshliði staðfestir það. „Þetta er líka einhver ódýrasta skemmtun sem boðið er upp á. Hérna getur fólk komið og fengið sér kaffi og lesið blöðin og nýjustu tímaritin,“ segir hún en einnig er hægt að fá tónlist á safninu og mynddiska. „Margir vita ekki ennþá að það er ókeypis að fá lánað myndefni.“ Hægt er að hafa í láni 15 eintök á barnakorti, sem er ókeypis fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri, en á fullorðinskorti er búið að hækka hámarkið í 40 eintök í einu. Skír- teini eru ennfremur ókeypis fyrir örorku- og ellilífeyrisþega. Bergrós er nýtekin við barna- starfinu í Ársafni. Hún starfaði þar á undan í Gerðubergi en hún er menntaður bókasafns- og upp- lýsingafræðingur og útskrifaðist árið 2006. Þar áður vann hún ýmis skrifstofustörf en henni líkar sér- staklega vel í nýja starfinu. En hvernig skyldi henni finnast stemningin á bókasöfnum núna? „Hún er allt öðruvísi en það sem ég upplifði sem barn, þegar maður þorði varla að opna munninn inni á bókasafni. Þetta er almennings- bókasafn sem á að vera opið fyrir alla, svona eins og félagsmiðstöð. Ég held að fólk sé að átta sig sífellt betur á því. Hér kemur fólk að hitta annað fólk og tekur með sér bækur, myndir og tónlist heim.“ Gott að venjast umhverfinu Það eru ekki bara leikskólarnir sem heimsækja bókasöfnin en yngstu bekkir grunnskóla geta líka pantað sögustundir. Einnig er það fastur liður í starfinu að bjóða upp safnkynningu fyrir 4. bekk. „Snið- ugra er að börnin komi hingað en að kynningin sé í skólunum,“ segir Bergrós og útskýrir að þannig venj- ist börnin bókasafnsumhverfinu. Greinilegt er að sitthvað er gert til að kynna bókasöfn og bækur fyrir börnum og verður ekki allt upptalið hér. Bókasöfnin eru fyrir alla, ekki bara börnin eins og þjónustan „Bókin heim“ ber vott um. Um er að ræða heimsendingarþjónustu fyrir þá sem vegna fötlunar eða ald- urs komast ekki í safnið. Einu sinni í mánuði fær lánþeginn sendar heim 10-15 bækur, sem valdar eru í samráði við hann. Eins og áður segir fagnar Ár- safn fimm ára afmæli í dag og í til- efni dagsins er boðið upp á afmæl- iskaffi frá kl. 13 og eru allir velkomnir. Barnakór Grafarholts- sóknar syngur síðan fyrir safn- gesti kl. 13.15. Morgunblaðið/Heiddi Gæðastund Krakkarnir frá leikskólanum Rofaborg í Árbæ skoðuðu bækur að eigin vali eftir sögustundina hjá Bergrósu barnabókaverði. Opið fyrir alla FIMM koffort með bókum eru í Ár- safni, sem lánuð eru út til leikskóla, tvö eða þrjú í einu. Krakkarnir geta þannig tekið bækur með sér heim úr leikskólanum, tvær í einu og verið með þær í viku. Samvinna milli bóka- safna og leikskóla er því heilmikil og margt gert til að kynda undir bóka- áhuga og stuðla að því að lesið sé fyrir krakkana heima. Þola ekki brauð með sultu Elstu leikskólakrakkarnir koma á bókasafnið í námskeið í meðferð bóka. Farið er í gegnum hvað má og má ekki gera við bækur. Kennt er m.a. að ekki má leggja bækur á „mag- ann“ heldur frekar nota bókamerki. Krökkunum eru sýndar illa farnar bækur og kennt að bækur þoli ekki brauð með sultu, þá geta blaðsíð- urnar límst saman. Bækur eru heldur ekki hrifnar af mjólk eða safa en þá geta blaðsíðurnar krumpast. Að nám- skeiðinu loknu fá krakkarnir við- urkenningaskjal með ýmsum upplýs- ingum og að sjálfsögðu fylgir bókamerki með. Barnabókaverðlaun barnanna Til viðbótar gefur Borgarbókasafn Reykjavíkur lesendum á aldrinum 6- 12 ára tækifæri til að velja bestu barnabækurnar af þeim sem komu út árið 2008. Hver lesandi má velja allt að þrjár bækur með því að fylla út kjörseðill í bókasöfnum eða með því að senda póst á thorbjorg.karlsdott- ir@reykjavik.is. Nánari upplýsingar um hvaða bækur er um að ræða er að finna á borgarbokasafn.is. Tvær bækur verða verðlaunaðar, önnur frumsamin íslensk og hin þýdd. Skila þarf atkvæðum fyrir 20. mars og fá heppnir þátttakendur glaðning. Úrslit verða kynnt við há- tíðlega athöfn á sumardaginn fyrsta, 23. apríl. Morgunblaðið/Heiddi Litríkir kassar Bergrós við kist- urnar góðu sem geyma barnabæk- ur af ýmsu tagi og leikskólarnir fá lánaðar. Leyndardómar koffortsins BERGRÓS bókavörður segir að lestur fyrir börn ætti að vera sjálfsagður þáttur í uppeldi allra barna og segir lestur sögukorns helst á hverjum degi leggja grunninn að farsæld barnsins. Stundin þarf ekki að vera löng en hefur margt að segja. Að lesa fyrir barn:  Eflir málþroskann  Venur barnið við að hlusta  Er róandi  Veitir öryggi  Veitir hlýju og nálægð  Örvar ímyndunaraflið  Eykur skilning  Auðveldar nám  Eykur þekkingu Morgunblaðið/Heiddi Góður gestur Það er engum blöð- um um það að fletta að þessi unga stúlka hafði gaman af heimsókn- inni á safnið. Að lesa fyrir barn Grímur kokkur ehf | sími 481 2665 | grimurkokkur@grimurkokkur.is www.grimurkokkur.is Munið eftir bolludeginum Gríms fiskibollur eru hollar og góður kostur fyrir þá sem hugsa um heilsuna. þær eru fulleldaðar og þarf aðeins að hita upp í ofni eða á pönnu og inni- halda aðeins um 1% fitu. mánudaginn 23. febrúar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.