Morgunblaðið - 22.02.2009, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 22.02.2009, Blaðsíða 40
40 Guðfræðin og hrunið MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2009 stæða einangrunar og vísar til mikilvægs grunngildis sem kristin trú deilir með fjölmörgum siða- kerfum öðrum. Orðið getur virst yfirborðskennt og óþægilegt. Af þeim sökum og ýmsum öðrum er umræðu um kristin gildi líka oft mætt með fálæti. Slíkt tómlæti stafar ekki alltaf af því að fólk taki afstöðu gegn gildum af þessu tagi heldur getur það stafað af söknuði eftir innihaldi. Það virðist sem þau hafi skort þann hljómgrunn í sam- félaginu sem fólk jafnvel óskar. Hér á landi tilheyra langflestir kristinni kirkju. Við getum því ætl- að að almenningur byggi líf sitt á gildum sem sótt eru til hennar en samfélagið allt, lagaumhverfi okk- ar, saga og menning byggja á þeim grunni. Á undanförnum árum hef- ur verið vegið að þessum gildum og þau smámsaman máðst út úr umhverfi okkar. Þessi gildi sem flest eru sammannleg þarf því að endurreisa þar á meðal náunga- kærleikann sem tengir okkur sam- an og minnir okkur á að við mynd- um eina heild. Það skiptir máli en hefur gleymst á tímum hraða, græðgi og áherslu á eigin hag – oft á kostnað náungans. Hegðun af þessu tagi hefur kallað fram sárs- auka og við verðum að þora að finna til. Við þurfum að horfast í augu við þá óþægilegu tilfinningu að við höfum verið svikin. Stefna einstaklingshyggju og hug- myndafræði um markað sem stjórnaði sér sjálfur og leiddi sjálf- krafa til bestu niðurstöðu fyrir samfélagið hefur beðið skip- Glerhýsi í stað dómkirkju Tíðarandi hins rangláta kerfis sýnir okkur hvaða verðmæti eru sett efst í þeirri heimsmynd sem því tilheyrir. Í drottnunarkerfum eru það völd og auður. Það sem auðkennt hefur vestræn þjóðfélag í seinni tíð umfram önnur er ein- mitt þetta: vægi auðs og valda. Flest önnur þjóðfélög litu horn- auga græðgi og auðmenn sem bár- ust á. Nútímaþjóðfélag á Vest- urlöndum er hins vegar orðið að „hagkerfi“ þar sem neysluhyggja er meginuppistaðan; glerhýsi er komið í stað dómkirkju, milljarð- armæringur í stað hetju, forstjóri í stað dýrlings og hugmyndafræði græðginnar í stað trúarbragða. Kærleikurinn bestur Það er ekki ofsagt að reiði og sársauki hafi sett svip sinn á und- anfarna mánuði – innibyrgð hjá mörgum, en sem betur fer hafa margir látið í sér heyra og krafist réttlætis. Reiði verður að fá útrás og réttlætið verður að ná fram að ganga ef möguleiki á að vera á því að hún sefist. Undir því er fé- lagsleg velferð og líðan okkar allra komin. Aðkoma okkar sem ritum þessa grein að umræðu dagsins er frá sjónarhóli guðfræðinnar, fræði- greinar sem er samofin arfi krist- innar trúar og húmanískrar hefð- ar. Það að mæta þeim sem á vegi þínum verða eins og þú vilt að þér sé mætt er lífsregla margra trúar- bragða. Í kristinni trú er kærleik- urinn til náungans sú undirstaða sem gefin er til leiðbeiningar í samskiptum. Allar rannsóknir sýna að samskipti við aðra skipta höfuðmáli í lífi okkar. Þetta vita þau sem um hafa hugsað. ,,Maður er manns gaman“ kvað höfundur Hávamála. Hugsanir okkar, til- finningar og gerðir mótast af því hvernig við umgöngumst annað fólk. Þess vegna er einmanaleiki tærandi en náungakærleikur nærandi. Oftrú á frjálsan markað Það er alvarlegt þegar sam- keppni er allsráðandi en sam- kennd, samvinna, samhugur og um leið samviska eru lögð til hliðar. Samkeppni, einstaklingsfrelsi og oftrú á fyrirbæri eins og frjálsan markað leiðir til einangrunar og einmanaleika sem jafnvel þau sem virðast hafa allt til alls og aðgang að öllu og öllum finna fyrir. Það getur líka virst klisjukennt að tala um náungakærleika sem er and- S ársauki hefur hríslast um íslenskt samfélag síðustu vikur og mánuði, sársauki brostinna vona. Kvíði og ótti hefur seytl- að inn hjá ungum jafnt sem öldn- um. Í ævintýraheimi barnanna verður kreppan að ófreskju. Fólk á öllum aldri sem hélt að það byggi við fjárhagslegt öryggi í skipulegu og góðu samfélagi finnur jörðina gliðna undir fótum sér. Ungt fólk berst nú við að halda húsnæði sínu sem allt látbragð samfélagsins sagði því að óhætt væri að kaupa. Tugþúsundum saman horfir fólk á eftir atvinnu sinni, ungir sem aldn- ir horfa á eftir glötuðu sparifé sem ætlað var til húsnæðiskaupa, til efri ára eða til að stuðla að öryggi afkomendanna. Íslenskt samfélag hefur upplifað ranglæti sem snert- ir okkur öll. Upplifunin er sterk og hún er vond. Við getum orðað það svo að við höfum verið rænd, vel- ferðinni hafi verið stolið og allt átti þetta sér stað í dagsbirtu fyrir framan nefið á okkur. Framtíð barnanna okkar hefur verið sett í uppnám. Þetta eru skrýtnir tímar, umbrotatímar og það er sársauki í samfélaginu okkar. Við erum líka með sektarkennd vegna þess að við trúðum á það sem var að ger- ast, vorum flest hver ekki á varð- bergi, ekkert frekar en þau sem áttu þó að vera á verði fyrir okkur, stjórnvöld og eftirlitsstofnanir. Gætum einnig að líðan þeirra. Klassískum gildum ýtt út Tíminn eftir efnahagshrunið hef- ur gengið nærri einstaklingum, fjölskyldum og þjóðinni allri. En hrunið kom ekki úr tóminu, það er ekki eins og allt hafi verið með felldu en svo hafi skyndilega dreg- ið ský fyrir sólu. Hægt og bítandi hefur klass- ískum gildum verið ýtt til hliðar. Orð eins og samkeppni, velta, vöxtur og verðbréfamarkaður voru orðin flestum töm. Fátíðari voru hins vegar orð eins og samvinna, umhyggja, sannleikur og vinátta. Glansmyndir voru dregnar upp af ríku fólki og það sett á stall. Gegndarlaus fjáraustur í hégóma var hafinn upp til skýjanna. Pen- ingar og gróði urðu mælikvarði lífshamingju. Spurt var um hvað væri löglegt, ekki hvað væri sið- legt eða réttlátt. Vangaveltur um að viðskipti og aðrir gjörningar væru löglegir en siðlausir voru meira hafðar í flimtingum heldur en að siðleysi væri fordæmt. Út- koman var hörmuleg, um það er ekki deilt. brot. Eftir stöndum við hnípin, reið og full blygðunar. Við köllum eftir réttlæti, köllum eftir raun- verulegri iðrun sem er forsenda allra sátta og fyrirgefningar en hún er síðasta skrefið í erfiðu sáttaferli. Þess verður ekki krafist að þolendur fyrirgefi án þess að í ljós verði leitt hverjir beri ábyrgð á því hruni sem orðið hefur og þeir geri yfirbót, bæti fyrir brot sín með áþreifanlegum hætti. Erindi guðfræðinnar Sá vandi sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir nú er ekki aðeins hagfræðilegur eða pólitísk- ur heldur ekki síður guðfræðileg- ur. Guðfræðin býr að orðfæri sem talar inn í sársauka samtímans. Guðfræðin fjallar um gildi sem snúast um velferð, um náungakær- leika, um samskipti og sjálfskoðun. Guðfræði á erindi í umræðu um mannleg kjör. Hún sér fyrir sér samfélag þar sem félagslegt rétt- læti ríkir og þar sem menn bera virðingu hver fyrir öðrum og láta sig skipta aðstæður hver annars. Allt eru þetta grundvallarþættir í kristinni kenningu og eru síður en svo einkamál þeirra sem kalla sig stjórnmálamenn eða hreyfinga sem kalla sig flokka. Kannski er hluti af óförum okkar fólginn í því, hver sem við erum, hvað sem við fáumst við, hverjar sem vonir okk- ar og þrár eru, að við létum of fáa um að leiða umræðuna sem leiddi okkur inn í öngstrætið. Við sem hér skrifum ætlum að láta af því að okkar leyti og deila sýn okkar með öðrum. Við ætlum að leggja orð í belg í fleiri greinum hér í blaðinu, fjalla um líðan fólks eftir hið efnahagslega hrun og benda á hvaða gildi við teljum að leggja eigi áherslu á í því samfélagi sem við hljótum að byggja hér upp í sameiningu. Það verður að vera réttlátt samfélag þar sem fyrst og fremst er tekið tillit til þeirra sem höllum fæti standa, samfélag þar sem kristin og sammannleg gildi um kærleika, hógværð, umhyggj- una verða lögð til grundvallar. Guðfræðin getur að sjálfsögðu ekki svarað öllum spurningum sem leita á hugann, ekkert frekar en hagfræðin, stjórnmálafræðin, læknisfræðin eða lögfræðin. Nálg- un hennar að viðfangsefninu er önnur og hún er gagnleg. Það er hafið yfir allan vafa af því að guð- fræðin spyr fyrst og síðast um það sem mestu máli skiptir – manninn í samfélagi við skapara sinn og alla sköpun. Þessi grein er því aðeins upptaktur hjá okkur sem hér rit- um. Við munum á næstunni fjalla um íslenskt samfélag á yfirstand- andi tímum sem valda mörgum svo miklum sársauka. Anna Sigríður Pálsdóttir Arnfríður Guðmundsdóttir Baldur Kristjánsson Hjalti Hugason Pétur Pétursson Sólveig Anna Bóasdóttir Sigrún Óskarsdóttir Sigurður Árni Þórðarson Höfundar eru guðfræðingar Sársaukinn í samfélaginu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.