Morgunblaðið - 22.02.2009, Side 51

Morgunblaðið - 22.02.2009, Side 51
Minningar 51 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2009 ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna andláts eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRIS RAFNS GUÐNASONAR múrara, Hraunbæ 190, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 12. febrúar. Útför hans fór fram frá Seljakirkju fimmtudaginn 19. febrúar. Sérstakar þakkir fyrir frábæra umönnun til Karitas hjúkrunarkvenna og séra Ólafs Jóhanns Borgþórssonar. Minningargreinar um Þóri eru á mbl.is/minningar. Guðrún Bjarnadóttir, Jóhanna Þórisdóttir, Ingþór Jónsson, Guðni R. Þórisson, Guðbjörg E. Ingólfsdóttir, afabörn og langafabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi okkar, KRISTJÁN EGGERT RAGNARSSON, Kirkjubraut 20, Höfn í Hornafirði, sem andaðist á Hjúkrunarheimili Hornafjarðar mánudaginn 16. febrúar, verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju, Hornafirði þriðjudaginn 24. febrúar kl. 14.00. Steinlaug Gunnarsdóttir, Karel Kristjánsson, Högni S. Kristjánsson, Ásgerður I. Magnúsdóttir, Ragnar G. Kristjánsson, Þórunn Scheving Elíasdóttir, Jónína L. Kristjánsdóttir, Jón H. Kristinsson og barnabörn. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Ég hef eytt ófáum stundum heima hjá ömmu og afa um æv- ina, það var svo gott að koma heim til þeirra. Í heilan vetur í grunnskóla fór ég alltaf í Safamýrina eftir skólann í pössun. Það var líka styttra að fara heim til ömmu og afa heldur en að labba heim til mín og því fór ég oft þang- að, jafnvel þótt ég þyrfti ekki pöss- un. Ég man eftir mér liggjandi á stofugólfinu hlustandi á geisla- diskana hennar ömmu með Whit- ney Houston og Lindu Ronstadt. Það voru ekki margar ömmur sem hlustuðu á svo „framúrstefnulega“ tónlist, hvað þá áttu geislaspilara. Eða áttu örbylgjuofn sem nú er orðinn sögufrægur innan fjölskyld- unnar eftir litríkt ferðalag ömmu með blessaðan ofninn frá Banda- ríkjunum. Það var svo hlýlegt og heim- ilislegt hjá ömmu, hún tók alltaf vel á móti manni. Ef maður var með kvef var amma alltaf tilbúin með heitt sítrónuvatn með hunangi og hrísgrjónagrauturinn hennar ömmu með miklum kanilsykri var með því besta sem maður fékk. Ég man líka alltaf eftir því þegar ég var pínulítil og amma var að svæfa mig, þá hélt hún í höndina á mér og strauk þumlinum á handarbak- inu. Óskaplega þótti mér það nota- legt. Í seinni tíð horfðum við saman á Leiðarljós og hneyksluðumst á vit- leysunni sem var í gangi þar, amma sagði mér sögur frá því í gamla daga af langafa og lífinu í Fljótavíkinni og þegar hún fór ung í vist. En við spjölluðum líka um nýstárlegri hluti. Það er mér enn minnisstætt þegar við Auður systir vorum í kvöldmat á Háaleitisbraut- inni og Auður fór að geifla sig eitt- hvað og fíflast og amma spurði hvort hún væri að rappa? „Fyrst,“ sagði amma, „fordæmdi ég rapp og fannst þetta allt bölvaðir vitleys- ingar, en svo fór ég að hlusta og þá var þetta bara skemmtilegt. Í guð- anna bænum ekki segja neinum að amma ykkar hafi gaman af rappi!“ Amma var stolt af fjölskyldunni sinni og öllum barnabarna- og barnabarnabarnafjöldanum og þótti henni fátt skemmtilegra en fjölskylduboð þar sem allir voru mættir að dást að henni og hún að okkur. Í minningunni lifir skemmtileg, lífsglöð, einstaklega félagslynd og brosandi amma, ég á eftir að sakna hennar. Ýrr Geirsdóttir. Mig langar að minnast elsku ömmu minnar, Önnu Júlíusdóttur. Ef ég væri beðin að lýsa ömmu í nokkrum orðum væri það bros- andi, bjartsýn, hlæjandi og full lífsvilja. Ég held bara að amma hafi verið ein hamingjusamasta manneskja sem ég hef þekkt. Sama hvað á bjátaði hélt hún bæði fast í bjartsýni sína og óþrjótandi lífsvilja. Það er kannski vegna þessara kosta að hún skilur eftir sig stórt skarð í dag. Amma og afi nutu þeirrar gæfu að eignast mikinn fjölda afkomenda og í þeim lifir amma áfram. Dillandi hlátur, óþrjótandi lífsvilji og bjartsýni endurspeglast í börnum hennar, barnabörnum og barnabarnabörn- um. Síðustu daga hef ég mikið hugs- að til hennar ömmu og minninga tengdra henni. Ólíkt eldri kynslóð afkomenda hennar varð ég ekki þeirrar ánægju aðnjótandi að upp- lifa Bakkagerðistímabilið. Hins Anna Júlíusdóttir ✝ Anna Júlíusdóttirfæddist á Atl- astöðum í Fljótavík í Sléttuhreppi 12. des- ember 1923. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 8. febrúar síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Dómkirkjunni 17. febrúar. vegar var ég oft hjá ömmu og afa í Safa- mýrinni en þau bjuggu þá rétt hjá okkur fjölskyldunni sem gat stundum komið sér vel. Mér er eitt atvik mjög minnisstætt. Foreldrar mínir höfðu keypt nýveidd- an rauðmaga í mat- inn við Ægisíðu. Þeg- ar heim var komið hófust þau handa við að verka fiskinn. Verkunin hófst og um leið gaf fisk- urinn frá sér ægilegt óp. Flúðu þá foreldrar mínir út úr eldhúsinu og hringdu beint í Önnu ömmu. Hún myndi vita hvað skyldi gera við æpandi fiska sem lægju á eldhús- borðinu. Amma var ekki lengi að hlaupa milli húsa og verka æpandi fiskinn örugglega. Hikaði ekki einu sinni. Ég man að ég stóð í dyra- gættinni, vart eldri en 7-8 ára, og dáðist að röskum handbrögðum þessarar konu. Já, þetta var sko amma mín og svona vildi ég verða þegar ég yrði stór. Hún kunni að verka æpandi fiska. Við andlát Önnu ömmu kom mér í hug brot úr kvæði eftir Huldu; Sorg. Allar stundir ævi minnar ertu nálæg, hjartans lilja. Þó er næst um næðisstundu návist þín og angurblíða, ástarljós og endurminning. Allar stundir ævi minnar, yndistíð og harmadaga, unaðssumur, sorgarvetur sakna ég og minnist þín. Vigdís Eva. Við systkinin urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga yndislega ömmu sem var heima og gat hugs- að um okkur á daginn þegar for- eldrar okkar voru að vinna. Margar minningar koma upp í hugann og þá ekki síst auðvitað margar frá Bakkagerðinu þar sem við eyddum miklum tíma sem börn. Heimabakað brauð, besti hrísgrjónagrautur í heimi, falskur héri sem manni þótti alltaf jafn leyndardómsfullur, kringlum dýft í dísætt kaffi, nammiskápurinn, lín- herbergið, angandi af eplalykt um jólin og herbergi 107 þar sem við fengum að hnoðast og rusla til. Þetta voru yndislegir tímar. Bakkagerðið var einfaldlega æv- intýraheimur fyrir okkur krakkana hvort sem það var við leik í garð- inum á sumrin með svefnpoka og teppi, hjólað um götuna á allt of stórum hjólum eða rennt niður innkeyrsluna á veturna með sleða eða allt of stór skíði. Það var hvergi eins gott að vera þegar maður var veikur eins og hjá ömmu. Þar var manni hjúkrað af alúð, færðir heitir drykkir í rúmið og kalt handklæði sett á ennið. Já, ekta amma. Það má líka til gamans geta að á þessum tíma voru fjórir unglingar á heimilinu, yngri systkini móður okkar. Við barnabörnin fundum aldrei fyrir sérstöku álagi því fylgjandi, þvert á móti gerði þetta veruna hjá ömmu enn skemmtilegri. Allar veislurnar, þorrablótin, jólaboðin! Í minningunni var amma alveg sérstaklega veisluglöð og var reglulega með stórfjölskylduna í mat. Hún var heldur ekki lengi að snara upp skírnarveislu og stúd- entsveislu fyrir okkur systurnar þegar okkur vantaði húsnæði fyrir slíkt. Já, það var alltaf líf og fjör í kring um ömmu og afa. Amma var einstaklega blíð manneskja og hláturmild og hvern- ig sem við rifjum upp þá munum við ekki eftir að hún hafi nokkurn tímann verið annað en jákvæð og aldrei sparaði hún hrósið. Anna amma fylgdist vel með pólitík og heimsmálunum og hafði sterka réttlætiskennd. Hún var alla tíð mjög upptekin og stolt af fjölskyldu sinni, barnabörnum og barnabarnabörnum. Hún hringdi reglulega í fólkið sitt og var alltaf með það á hreinu hvað allir voru að gera. Vinkona hennar sagði ein- hverntímann við hana að hún væri mjög „afkomendaglöð“ og það lýsir henni vel, alltaf stolt af sínu fólki, jákvæð og glöð. Elsku Anna amma, þín verður sárt saknað, þú varst einstök manneskja og þannig munum við allaf minnast þín. Elsku afi, megi guð styrkja þig. Sigyn Eiríksdóttir, Signý Eiríksdóttir, Óskar Eiríks- son. Elsku amma. Þær eru ófáar minningarnar sem koma í hugann þegar ég hugsa til þín. Það fyrsta sem mér dettur í hug sem lýsir þér hvað best er eflaust að þú varst dama fram í fingurgóma. Þú varst aldrei svo veik að ekki væri hægt að laga á þér hárið og gera þig fína. Það vantaði líka aldrei jákvæðnina og alltaf þegar maður hélt að nú færi að síga á seinni hlutann hjá þér þá varstu búin að fá þig útskrifaða af sjúkrahúsinu, komin í kjól og farin út að borða eða bara heim til afa. Það er samt ekki laust við að maður sakni þín dálítið, sakni þess að fá hjá þér grjónagrautinn góða sem enginn annar kunni að búa til, sakni þess að spjalla við þig uppi í rúmi og sakni þess að koma og sjá þig uppdressaða með hárið fínt, skælbrosandi og tilbúna í matar- boð. Einhverstaðar heyrði ég að ekk- ert sem væri þess virði að berjast fyrir væri létt og því fékkstu að kynnast. Þú barðist fyrir að vera með okkur sem lengst og það var svo sannarlega þess virði því þú gafst mér persónulega mikið og mótaðir mig með jákvæði þínu og baráttuhug. Ég gekk inn í svefnherbergið þitt um daginn, eftir að þú varst farin og sá þar stærsta hárspreys- brúsa sem ég hef á ævinni séð og ég gat ekki annað en brosað því það minnti mig á hvað þú varst mikil dama og hvað þú hafðir gam- an af því að hafa þig til og þrátt fyrir að afi sé þessi karlmannlegi karl sem gefur ekki mikið fyrir að vera í ósamstæðum sokkum og þú þessi dömulega dama þá sá maður að þið sköpuðuð fullkomið jafnvægi ykkar á milli og elskuðuð hvort annað til enda og það er öfunds- vert. Ég man eitt sinn þegar ég var að flytja til Selfoss 4 eða 5 ára gamall og komst ekki fyrir í bíln- um svo ég þurfti að vera eftir heima hjá ykkur afa við mikinn grát minn en þú brostir og gafst mér meira „After eight“ en ég hafði áður séð, sem er kannski lýs- andi fyrir ykkur afa, nóg af nammi í nammiskápnum og nóg af kær- leika, gleði og ást handa öllum sem þurftu á að halda og þannig ætla ég að muna eftir þér. Hvíldu nú í friði og hafðu það gott á himnum. Kær kveðja, Kolbeinn Karl Kristinsson. Mig langar að kveðja Önnu Júl- íusdóttur nokkrum orðum. Um leið leitar hugurinn til Guðmundar sem nú sér á bak lífsförunauti sínum í rúm 60 ár. Vonandi megnar fjöl- skyldan sem þau Anna skópu að hjálpa honum að takast á við sáran missi. Það eru að verða 20 ár síðan ég kynntist Önnu, ömmu konunnar minnar. Þessi kvika og glaðlega kona tók mér opnum örmum og það var auðvelt að finna hjá henni að ég var velkominn í fjölskylduna. Það mátti samt alveg finna líka að hún ætlaðist til að ég stæði mig og reyndist elsta barnabarninu henn- ar vel. Aðrar kröfur gerði hún ekki. Við fórum strax að spjalla og þó hún væri auðvitað búin að frétta eitthvað um mig kom eðlislæg for- vitni hennar um fólk strax í ljós. Henni fannst sjálfsagt að vita hvaðan menn bar að og hverra manna þeir voru. Allt var þetta án hnýsni, en að gömlum og góðum sveitasið vildi hún vita deili á sam- ferðamönnunum. Henni var nefni- lega ekki sama um fólk. Þegar frá byrjun var mér ljóst hvað fjöl- skyldan var henni mikilvæg og ég dáðist að dugnaði hennar við að fylgjast með því hvað allir voru að fást við, án þess að vera að grípa fram fyrir hendurnar á fólki, þó auðvitað vildi hún líka leggja sitt af mörkum. Við sveitafólkið töluðum stund- um um sveitirnar „okkar“ og hún hafði alltaf jafn gaman af því að segja frá Fljótavíkinni. Hana lang- aði mikið til að yngra fólkið í fjöl- skyldunni kynntist svæðinu. Þó hún kæmist ekki þangað síðustu árin þá leyndi sér ekki að hugurinn leitaði oft á æskuslóðirnar og hún gladdist með okkur þegar við fór- um norður á ströndina við ysta haf fyrir nokkrum árum. Í huga Önnu bjuggu Hornstrandirnar yfir verð- mætum sem ekki féll á, þrátt fyrir allar þær nýjungar sem hún varð vitni að á langri ævi. Hún tókst á við tilveruna af sjálfsögðu æðru- leysi og jákvæðni var henni í blóð borin. Það kom sér vel fyrir hana því hún átti oft við heilsuleysi að stríða. En stúlkan frá Fljótavík bjó líka yfir seiglu og það var ótrúlegt að sjá hana rísa upp aftur, hressa og káta og tilbúna að takast á við lífið af fullum krafti þó þrautirnar hefðu lagt hana í rúmið um tíma. Oft fékk maður svipað svar þegar spurt var um heilsuna. „Ég var nú ansi léleg í gær en ég er miklu hressari núna.“ Ég held að þessi lífsafstaða hafi haft mikið að segja um það hversu hárri elli Anna náði, þrátt fyrir erfiða heilsu. Að takast á við erfiðleika af jákvæðni og hafa gaman af því að ganga með fólkinu sínu gegnum lífið, þó það sé ekki alltaf dans á rósum, er nokkuð sem hún kenndi okkur og það er kjarninn í minningu okkar um hana. Þannig muna drengirnir mínir eftir langömmu sinni. Þannig arf er ekki ónýtt að fá að eiga með fjölskyldu þeirra Guðmundar. Friðrik Dagur Arnarson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.