Morgunblaðið - 22.02.2009, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 22.02.2009, Qupperneq 58
58 Menning MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2009 Nýdönsk gerði duglegan skurk í eyrum landsmanna með hinu frísklega „Hólmfríður Júlíusdóttir“ fyrir réttum tuttugu árum og fór með himinskautum hins íslenska poppheims í kjölfarið. Sveitin fetaði einstigi framsækinnar og fágaðrar popptónlistar og vinsældavænni tegundar hennar af mikilli list en þraut svo örendi árið 1994 eftir fimm plötur á jafn mörgum árum. Sveitinni hef- ur svo skotið upp reglulega síðan, nú síðast í fyrra en þá snaraði hún út nýrri hljóðversplötu, Turninum. Það tekur ekki langan tíma að þurrausa hljómleikarúntinn á Íslandi. Nýdanskirleituðu því til útlanda til að reyna sig og skerpa á sér. Jakob Frímann Magnússon, menningarfulltrúi vor í Lundúnum, greiddi götuna eins og hann gat en pot sveitarinnar í útlend eyru varð endasleppt. Stóri plúsinn var hins vegar platan Himnasending sem var tekin upp í nágrenni London og komu breskir nokkuð við sögu á plötunni. Skýrasta dæmið um það má heyra í mögnuðum bakröddum poppsnilldarinnar „Horfðu til himins“. Platan sló allar fyrri plötur sveitarinnar út hvað sölu og vinsældir varðar. Nýdönsk var alltaf höfð í handraðanum af meðlimum til aðveita lögum og almennri spilunarþörf útrás. Um Pólfarir höfðu þeir félagar þetta að segja, og kímdu efalaust við: „Við fengum einu sinni þann dóm í Mogganum að nokkur lög á plötunni Regnboga- land væru hrútleiðinleg ... Núna ákváðum við að gera þetta í anda Hermanns Gunnarssonar, vera hressir og ekkert stressaðir. Leiðinlegar plötur eru bara ekki jafnskemmtilegar og skemmtilegar plötur.“ Síðasta ár var æðiannasamt hjá sveitinni. Og unnendur sveitarinnar fengu góðar fréttir í upphafi þess er tilkynnt var um inngöngu Daníels Ágústs í sveitina á nýjan leik eftir fjórtán ára fjarveru. Öxul- veldið Daníel og Björn Jörundur, Yin-ið og Yangi-ið, gengið saman aftur. Í enda árs var ný plata gefin út, Turninn. Segja má að upphafslag hennar sé lýsandi fyrir þann nett græskufulla og kaldhæðnislega húmor sem fylgt hefur sveitinni frá fyrstu tíð. Lagið heitir „Leiðinlegasta lag í heimi“. 5 Fyrsta starfsárið kom Nýdönsk fyrir, sjónrænt hið minnsta, sem listræntþenkjandi tilraunapoppsveit með annan fótinn, og mögulega báða, utan- garðs. Sveitin tróð upp máluð og skrýdd furðubúningum. Stofnárið sigraði sveitin í hljómsveitakeppni í Húsafelli og fyrsta lag sveitarinnar sem kom út á plasti var lagið „Síglaður“, gefið út á safnplötu Skífunnar, Smellir, árið 1987. Lagið hefur ekki komið út á geisladiski enn og mun líkast til aldrei gera úr því að tækifærið var ekki notað er safnplata með sjaldfgæfum og vandfundnum lögum kom út í hittífyrra. Nýdönsk sló vartfeilnótu fyrstu árin sem hún starfaði. Frumburðurinn, Ekki er á allt kosið, er burðugt og metnaðarfullt verk og gat af sér tvö sígild lög sem eru enn þann dag í dag sungin í góðra vina hópi um land allt, „Fram á nótt“ og „Hjálpaðu mér upp“. „Nýdönsk er hljómsveit sem óhætt er að vænta mikils af, ef marka má Ekki er á allt kosið,“ sagði í dómi Morgunblaðsins á sínum tíma. Orð að sönnu. Nýdönsk var þegar hér var komið sögu búin að leggja lýðinn aðfótum sér, bæði popphænsn og jaðarhunda. Dr. Gunni, sem var á þeim tíma kirfilega bundinn í seinni básinn lýsti því t.d. yfir í gagnrýni að platan væri meistaraverk. Björn Jörundur sagði á þessum tíma sveitina vera metnaðarfullt poppband sem spilaði á böllum og lýsir það eigindum sveitarinnar vel. Nok- kurs konar popp fyrir þá þenkjandi en um leið nægilega grípandi fyrir fjöldann. Þetta tvíþætta aðdráttafl sveitarinnar orkaði hvað sterkast um þetta leyti. 3 Gr af ík :M or gu nb la ði ð/ El ín Es th er Gengisvísitala Nýdanskrar 1988 Goðsagnir Ofurstjörnur Stjörnur Frægir Þekktir Efnilegir Óþekktir 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2 6 1 4 3.000 eintök 1987 4.000 eintök 5.000 eintök 2.000 eintök 8.000 eintök 4.000 eintök 8.000 eintök 3.000 eintök 2.000 eintök 1.500 eintök 3.000 eintök 1 1987: Nýdönsk stofnuð af MH-ingunum Birni Jörundi Friðbjörnssyni og Valdimari Braga Bragasyni. 2 1989: Nýdönsk gefur út sína fyrstu hljóðversplötu undir hatti Steina hf. Ein snarpasta - og um leið drýgsta - vinnulota íslenskrar popphljómsveitar frá upphafi er sett í gang. 1990: Nýdönsk sannar að ei er tjaldað til einnar nætur með sumarsmellinum „Nostra- damus“ og um haustið kemur hin mjög svo hippíska Regnbogaland út. Kvarnast hafði úr sveitinni og Possibillies-meðlimirnir Jón Ólafsson og Stefán Hjörleifsson gengnir til lið við þá Björn Jörund, Daníel Ágúst og Ólaf Hólm. Sveitin hóf sig upp á annað stig við þessar breytingar. 1988: Lagið „Hólmfríður Júlíusdóttir“ slær rækilega í gegn. Lagið er tekið af safnplötunni merku Frostlög þar sem m.a. Todmobile reið á vaðið með lag sitt „Sameiginlegt“. Nýdönsk átti eitt lag til á plötunni, „Eða hvað“ en það vakti hins vegar litla, ef nokkra athygli. 1994: Nýdönsk tekur að sér „frílans“ verkefni, spilar undir í hinni gríðarvinsælu sýningu Þjóðleikhús- sins, Gauragangi, auk þess að leika undir hjá Megasi á tónleikum meistarans í MH. Tónleikarnir komu út á plötu, Drög að upprisu. Sveitin er sett í salt og menn fara hver í sína áttina, Björn Jörundur gefur t.a.m. út sólóplötuna BJF. 1997: Gott gengi safnplötunn- ar 1987-1997 færir heim sanninn um að sveitin lifir enn góðu lífi í hjörtum landans. Ári síðar er nýrri hljóðversplötu, Húsmæðragarðinum, stungið út en nú er Daníel Ágúst fjarri góðu gamni. 5 2001: Nýdönsk rís reglulega upp við dogg og alltaf eru lög á lager. Platan Pólfarir er tekin upp á Möltu og dagskipunin er að einfalda lagauppbyggingar og strípa þær niður. Lagið „Flugvélar“ öðlast allnokkrar vinsældir. 2002: Platan Freistingar, þar sem nýdanskir véla um eigin lagasmíðar, kemur út. Daníel Ágúst, sem hafði ekki komið nálægt sveitinni í bráðum áratug og var sárt saknað af aðdáendum lagði þar til nýtt lag, hið undur- furðulega „Fagurt fés“. 2004: Á tímabili var sem allar popp- sveitir landsins væru skyldaðar í sinfóníska yfirhalningu. Nýdönsk var þar að sjálfsögðu ekki undanskilin og var afraksturinn borinn á borð í líki hljómskíf- unnar Skynjun. 2007: Tuttugu ára afmæli sveitarinnar fagnað með veg- legum safnkassa, safnplötu og plötu með vandfundnum lögum og munaðar- lausum. Afmælinu er og fagnað með tón- leikum ... en enginn Daníel Ágúst? 6 2008: Daníel gengur til liðs við sína gömlu félaga í upphafi árs og hörð- ustu aðdáendur nýdanskra komast við. Sveitin er ötul við spilamennsku út allt árið og því er svo slúttað með nýrri hljóðversplötu, Turninum. 2009: Spánýjasta fréttin af nýdönskum er heldur óskemmtileg en í vikunni bárust þær fréttir að Björn Jörundur Friðbjörnsson væri flæktur í kókaínmál. Það er þó spurning hvaða áhrif þetta hefur á feril sveitarinnar, ef einhver. Og er slæmt umtal ekki betra en ekki neitt? 1991: Árið sem allt gekk upp. Sveitin innsiglaði sig sem helstu poppsveit landsins, fyrst með stuttskífunni Kirsuber og svo með breiðskífunni Deluxe, sem margir vilja meina að sé meistaraverk sveitarinnar. 3 4 1992: Nýdönsk slær ekki slöku við og sköpunarmátturinn nær hæstu hæðum í hinni tilhlýðilega nefndu Himnasending. Menn eru auk þess farnir að skyggnast til útlanda og brúka til þess nöfn eins og Arctic Orange og Kind. Úff... 1993: Fimmta platan á jafnmörgum árum, Hunang, lítur dagsins ljós en nú er farið að sljákka nokkuð í hersingunni og ekki nema von enda keyrslan búin að vera gríðarleg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.