SunnudagsMogginn - 16.05.2010, Qupperneq 16
16 16. maí 2010
Þ
að minnti á gamla tíð þegar níu
gamlir en tignarlegir eikarbátar
lögðu úr höfn á Dalvík í bítið
síðastliðinn miðvikudags-
morgun. Jafnmargir slíkir ku ekki hafa
siglt saman, a.m.k. ekki á þessum slóð-
um, frá aldamótum. Stálskip og plast-
bátur komu í kjölfarið, stefnan var tekin
á Hrólfssker sem er sjö kílómetrum
norðan við Hrísey, til móts við Ólafs-
fjörð og þar renndu keppendur fyrir fisk
í fyrsta skipti þann daginn. Þorsk, ýsu
og karfa höfðu menn upp úr
krafsinu þar, eftir að
kapteinninn hrópaði
stangir upp úr
brúnni var siglt
nær eynni og
rennt fyrir
flatfisk
og þannig koll af kolli. Daginn áður
hafði verið skítakuldi, svo ekki sé talað
undir rós, gráðurnar ofan við núllið
voru teljandi á fingrum annarrar handar
þegar haldið var af stað þennan morg-
uninn en heldur betur rættist úr og sólin
sleikti vanga bátsverja í logninu allt þar
til komið var í land á ný um tvö-
leytið.
Blaðamaður Morgunblaðsins
var sem fluga á vegg um borð í
Húna II, en þar var á annan tug
veiðimanna frá sjö löndum. Þessi fjöl-
þjóðlegi hópur var greinilega himinlif-
andi með daginn; þótt fiskurinn hefði
almennt mátt vera stærri fengust
nokkrir mjög vænir og veiðimennirnir
komu allir komu í land með bros á vör.
Það er Íslandsdeild EFSA, Samtaka
evrópskra sjóstangveiðimanna, sem hélt
mótið að þessu sinni en um er að ræða
stærsta árlega viðburð EFSA. Þátttak-
endur voru frá Belgíu, Danmörku, Eng-
landi, Gíbraltar, Írlandi, Íslandi, Ítalíu,
Noregi, Portúgal, Rússlandi, Skotlandi,
Sviss og Þýskalandi. Um er að ræða
stærsta árlegan viðburð EFSA.
Tvisvar áður hefur EM verið á Íslandi,
1974 frá Akureyri og 1968 frá Keflavík.
Horft út yfir borðstokkinn; keppendur biðu spenntir en þó yfirvegaðir eftir því að biti á.
Allan Riboe frá Danmörku var hrifinn af kjöt-
súpunni sem í boði var um hádegisbil.
Patrick Burns frá Írlandi hefur lengi stundað íþróttina og víða farið með sjóstöngina sína.
Jakob Kárason, einn skipverjanna á Húna II, býður Roberto Melandri frá Ítalíu upp á ávexti.
Múkkinn var ekki lengi að nýta sér það þegar bita af afgangsbeitu var fleygt í sjóinn.
Allt vill
lagið hafa
Bak við tjöldin
Fjölmennt Evrópumót í sjóstangaveiði var í
Eyjafirði í vikunni. Gert var út frá Dalvík og alls
mætti 141 keppandi frá 13 löndum til leiks.
Texti og myndir: Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Sitt lítið af hverju var í aflanum. Mary Gavin Hughes frá Írlandi fékk 2 fyrir 1.
Scott Gibson frá Skotlandi
sem var hlutskarpastur um
borð í Húna II þennan dag.