Morgunblaðið - 27.11.2010, Side 35
22 Jólablað Morgunblaðsins 2010
O
kkur finnst gaman að
þessu og höfum í nokkur
ár spreytt okkur á kon-
fektgerð. Þetta hófst
með því að ég fór á námskeið í
Húsasmiðjunni og prófaði þá fyrst
að steypa súkkulaði sem karlinn féll
alveg fyrir,“ segir Dagný Ásta,
spurð um konfektgerð þeirra hjóna,
og hlær.
Pakkaði súkkulaðinu inn
Börnin hafa gaman af því að vera
með en eru þó helst til ung til að
aðstoða við konfektgerðina. Syn-
inum, Oliver, finnst gaman að fá að
smakka og er aðeins farinn að
hjálpa til. Hann átti til að mynda að
setja núggat á marsipansneið og
loka því og rúlla, en móðir hans var
búin að skera hráefnið niður í litla
bita. Hann skildi þó ekki alveg að
rúlla þyrfti molunum og tjáði móð-
ur sinni að hann væri búinn að
pakka súkkulaðinu inn og nú gæti
hún prófað. „Appelsínutrufflurnar
eru mitt uppáhald. Við höldum okk-
ur mest við sömu uppskriftirnar en
samt er alltaf ein og ein ný upp-
skrift sem fær að slæðast með.
Fjölskyldan hans Leifs hittist all-
ltaf og gerir laufabrauð fyrir jólin
og þá höfum við tekið með konfekt
sem okkar framlag,“ segir Dagný
Ásta. Þau hjónin halda úti upp-
skriftavefnum kjanaprik.is/
uppskriftir þar sem finna má ýmiss
konar góðgæti.
Mozartkúlur
250 g blød nougat frá Odense
250 g konfektmarsípan frá
Odense
100-200 g hjúpsúkkulaði
Mótið litlar kúlur á stærð við
baunir úr núggatinu.
Skerið marsípanið í þunnar
sneiðar, fletjið hverja sneið lauslega
út með lófanum og vefjið utan um
núgatið. Rúllið hverjum mola í fal-
lega kúlu og hjúpið með hjúpsúk-
kulaði.
Appelsínutrufflur
200 g Síríus rjómasúkkulaði
150 g Opal hnappar (þessir app-
elsínugulu)
1 dl rjómi
2 msk. smjör
1 1/2 tsk. rifið hýði af appelsínu
(einnig má sleppa berkinum og
setja góðan líkjör í staðinn eins
og t.d. Grand marnier)
Hitið rjómann að suðu, lækkið
hitann, bætið súkkulaðinu út í og
þeytið. Bætið smjörinu og appels-
ínuhýðinu út í, kælið. Setjið truffl-
urnar í konfektform.
Marsípan/daim-konfekt
500g Odense Ren Rå marsípan
eða Odense kókosmarsípan
2 pakkar Daim-kurl
200g ljóst Odense-súkkulaði
Kókosmjöl
Lúxus kasjúhnetur, saltaðar og
ristaðar
Marsípan er skorið í tvö jafn stór
stykki og flatt út. Bræðið súkku-
laðið, skerið útflatta marsípanið í
þríhyrnd stykki þannig að 2-4 Da-
im-kúlur rúmist á þríhyrningi, hell-
ið kókosmjöli á disk, dýfið þrí-
hyrndu stykkjunum ofan í brædda
súkkulaðið, látið umframsúkkulaðið
leka af stykkjunum, leggið því næst
súkkulaðihjúpaðan þríhyrninginn
ofan á kókosmjölið og setjið 2-3 Da-
im-kúlur ofan á. Takið síðan stykk-
ið af kókosmjölinu og geymið í kæli.
Steyptir súkkulaðimolar
Bræðið Odense-súkkulaði í skál.
Best er að hafa aðra skál með
heitu vatni utan um og skipta
reglulega um vatnið svo súkku-
laðið sé vel heitt. Hellið súkku-
laðinu yfir súkkulaðimót og hellið
af. Skafið aukasúkkulaði af með
spaða (t.d. nýjum kíttisspaða).
Setjið í kæli (ekki frysti) í nokkr-
ar mínútur. Setjið fyllinguna á, en
gætið þess að um 3 mm vanti
upp á. Hellið súkkulaði aftur yfir
og skafið aukasúkkulaði frá
þannig að hvert mót sé sléttfullt.
Setjið aftur í kæliskáp í nokkrar
mínútur. Sláið súkkulaðimolana
létt úr. Einnig er hægt að setja
smá hvítt súkkulaði fyrst til
skreytingar, með því að mála það
á mótið eða láta drjúpa af hnífs-
oddi.
Fylling
4 tsk. hindberjasulta
1 tsk. sítrónusafi
u.þ.b. 1,5 dl flórsykur eða þar til
áferðin er á við hunang. Einnig er
hægt að blanda rommi, marsípani
og flórsykri eða nær hverju sem
er saman við.
Bounty-kúlur
3 msk. lint smjör
4 dl kókosmjöl
4 dl flórsykur
1 eggjahvíta
2 msk. þeyttur rjómi
Byrjið á að setja smjör, kókos og
flórsykur saman og hrærið vel. Að
lokum er eggjahvítunni og rjóman-
um bætt við. Kælið og gerið svo
kúlur sem dýft er svo í súkkulaði að
eigin vali.
maria@mbl.is
Marsipan Úr marsipani og öðru góðu hráefni má búa til gott og girnilegt jólakonfekt. Girnilegt Af jólakonfekti hjónanna má nefna Mozartkúlur, appelsínutrufflur og Bounty-kúlur.
Bounty-kúlur og trufflur
Hjónin Dagný Ásta
Magnúsdóttir og Leifur
Skúlason Kaldal búa til
girnilegt konfekt fyrir
jólin. María Ólafsdóttir
fékk þau hjónin til að
deila nokkrum girni-
legum uppskriftum
með lesendum jóla-
blaðsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölskyldan Hjónin Leifur Skúlason Kaldal og Dagný Ásta Magnúsdóttir ásamt litlu hjálparkokkunum Oliver og Ásu Júlíu.