Morgunblaðið - 27.11.2010, Page 41

Morgunblaðið - 27.11.2010, Page 41
28 Jólablað Morgunblaðsins 2010 M argir gætu haldið að í matreiðslubók þar sem matreiðslumeist- ararnir í kokkalands- liðinu leggja til uppskriftirnar úði og grúði af flóknum uppskriftum með óteljandi hráefnum. Svo er þó aldeilis ekki í nýrri matreiðslubók sem nefnist Einfalt með kokkalandsliðinu. Þar er að finna fjöldann allan af girnilegum uppskriftum að forréttum, aðal- réttum, meðlæti, eftirréttum, drykkjum og fleiru. Hver uppskrift inniheldur aldrei fleiri en fjögur hráefni svo hver sem er ætti að geta klambrað saman dýrindis réttum í eldhúsinu eftir uppskriftunum góðu. Hér gefur að líta nokkrar upp- skriftanna; marineruð epli, sult- aðan lauk og girnilega súkku- laðidrykki. Marineruð epli 2 græn epli 400 ml repjuolía (hægt er að nota hvaða olíu sem er) 1 dillbúnt Skrælum eplin, skerum þau í litla bita og söxum dillið fínt. Setj- um allt í ílát og blöndum vel sam- an. Geymum eplin í ísskáp yfir nótt. Marineruð epli eru snilldargóð með bæði svína- og lambakjöti. Sultaður laukur 500 g laukur 1 grein garðablóðberg 100 ml hvítvín olía Hitum olíu í stórum potti, bæt- um niðurskornum lauknum út í og eldum hann í fimm mínútur án þess að hræra í. Hrærum svo við- stöðulaust þar til laukurinn verður karamellubrúnn – ekki láta hann brenna við! Þá setjum við hvítvín og garðablóðberg út í og sjóðum niður þar til allur vökvi er farinn. Setjum sultuna á krukkur. Það má gjarnan setja sykur saman við, einnig er gott að setja hvítlauk og papriku í blönduna. Gott með fiski og kjúklingi. Heitt súkkulaði 300 g dökkt súkkulaði 750 ml mjólk 3 matskeiðar kakó ½ vanillustöng Í eldhúsinu; 250 ml vatn Blöndum mjólk, vatni, kakói og vanillu saman. Hitum að suðu og blöndum þá súkkulaðinu saman við. Lækkum hitann og látum malla smástund, munum að hræra öðru hverju. Prófum líka að setja nokkrar kanilstangir saman við mjólkina. Kannski rjómaslettu? Heitt súkkulaði með Stroh 1 l mjólk 300 g dökkt súkkulaði 1 vanillustöng 1-2 msk Stroh 60 Hitum mjólkina með vanill- ustönginni, setjum súkkulaðið saman við og hrærum vel saman þar til súkkulaðið er bráðnað. Bætum loks Stroh út í. Gott er að geyma notuðu vanillustöngina í sykri og búa þannig til þinn eigin vanillusykur. Hvítsúkkulaði- mokkadrykkur 1 l mjólk 2 vanillustangir 220 g hvítt súkkulaði 4 msk sterkt nýlagað espresso Hitum mjólkina í litlum potti ásamt vanillustöngunum. Sigtum vökvann yfir í skál og bætum súkkulaði saman við. Hellum súkkulaðinu í fjóra bolla og blönd- um matskeið af espresso saman við hvern þeirra. Súkkulaðimyntu- drykkur 1 lítri mjólk 5 msk mynta 150 g súkkulaði (65%) sykurpúðar Hitum mjólkina að suðu, rífum myntulaufin, setjum þau út í og blöndum saman við. Setjum plast- filmu yfir pottinn og látum drykk- inn standa í 15 mínútur. Tökum plastfilmuna af pottinum og hitum aftur að suðu. Hellum í gegnum sigti yfir súkkulaðið. Blöndum vel saman þar til allt súkkulaðið er bráðið. Setjum sykurpúða í bolla og hellum súkkulaðiblöndunni yfir. Gott er að loka pottinum með plastfilmu því hún einangrar betur en pottlok. Þetta er gert svo vökv- inn dragi í sig bragð. birta@mbl.is Aldrei fleiri en fjögur hráefni Ný og einföld mat- reiðslubók frá íslenska kokkalandsliðinu. Heitt súkku- laði með Stroh Hvítsúkkulaði- mokkadrykkur Súkkulaðimyntu- drykkur Fatnaður í miklu úrvali Náttföt og sloppar LAURA ASHLEY Faxafeni 14 108 Reykjavík S:5516646 Opið virka daga 10-18 og Laugardaga 11-15 Fallegt fyrir heimilið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.