Morgunblaðið - 27.11.2010, Page 71

Morgunblaðið - 27.11.2010, Page 71
Í margra augum snúast jólin að miklu leyti um hefðir. Sama rútína er viðhöfð á aðventunni og þegar kemur að jólamatnum má ekkert útaf bera ár frá ári, allt á að vera samkvæmt venjunni. Svo eru aðrir sem prófa eitt- hvað nýtt um hver jól. Fyrir þá nýjungagjörnu er óhætt að mæla með nokkrum girnilegum eft- irréttum úr nýút- kominni mat- reiðslubók eftir stjörnukokkinn Gordon Ramsey. Bókin nefnist Heimsreisa bragð- laukanna og í henni má finna upp- skriftir Ramsey sem eiga rætur sínar að rekja til allra heimshluta. Í bókinni rýnir Ramsay í matargerð Mið- Austurlanda, Taílands, Bandaríkj- anna, Kína, Indlands, Spánar, Frakk- lands, Ítalíu og Grikklands, auk heimahaganna í Bretlandi. Auk upp- skriftanna geymir bókin upplýsingar um hráefni og krydd sem einkenna viðkomandi matarmenningu. Hér má sjá nokkrar uppskriftir úr bókinni sem gjarnan mætti nýta sem eftirrétti á jólum. Amaretto- og súkkulaðiterta Þessa má gera með góðum fyrir- vara og geyma í kæli. Takið hana út úr kæli 30 mínútum áður en á að bera hana fram. Fyrir 8 Mjúkt smjör 350 g. dökkt súkkulaði 6 msk. amaretto 4 egg, aðskilin 50 g. amaretti-kökur (eða makka- rónur), fínmuldar 200 g. sykur Þeyttur rjómi eða mascar- poneostur Hitið ofninn í 180 °C (160°C með blæstri). Smyrjið kökuform (með lausum botni) vel með smjöri og legg- ið bökunarpappír á botninn. Brjótið súkkulaðið í bita og bræðið það yfir vatnsbaði. Hrærið svo ama- retto saman við þegar það er bráðið. Takið skálina af vatnsbaðinu þegar blandan er jöfn og slétt og setjið hana til hliðar. Þeytið eggjarauðurnar léttar og ljósar. Hrærið kökumylsnunni saman við súkkulaðið og síðan eggjarauð- unum. Stífþeytið eggjahvíturnar. Þeytið svo sykurinn saman við, eina skeið í einu, þar til úr verður nokkurs konar marengs. Blandið svo þriðjungi af marengsinum í senn gætilega sam- an við súkkulaðið. Hellið deiginu í kökuformið og sléttið úr því með sleikju. Bakið í 35- 40 mínútur, þar til kakan hefur lyft sér aðeins og er komin með smá- skorpu. Sprungur gætu verið komnar í yfirborðið, en miðjan ætti að vera rök. Slökkvið á ofninum og látið kök- una standa í ofninum í a.m.k. klukku- stund. Takið tertuna úr ofninum og látið hana kólna alveg áður en hún er tekin úr forminu. Setjið hana á stóran kö- kudisk og dreifið kakódufti yfir. Berið fram í sneiðum með þeyttum rjóma eða mascarpone. Tyrknesk jógúrtterta með sítrussírópi Fyrir 8 Smjör 6 stór egg, hvítur og rauður aðskildar 150 g. sykur 600 g. grísk jógúrt Safi og börkur af 1 sítrónu Klípa af maldonsalti Sítrussíróp: 125 g. sykur 125 ml. vatn Safi og börkur af 1 sítrónu 1 tsk. appelsínublómavatn eða Rósavatn (má sleppa) Hitið ofninn í 180 °C (160°C með blæstri). Smyrjið hliðarnar á köku- formi með smjöri og setjið bök- unarpappír á botninn. Þeytið eggjarauðurnar og sykur- inn saman þar til blandan er létt og ljós. Sigtið hveitið yfir og hrærið ró- lega saman. Blandið jógúrt, sítrónu- safa og -berki gætilega saman við. Þeytið eggjahvíturnar með örlitlu salti þar til froðan myndar stífa toppa. Blandið eggjahvítunum gæti- lega saman við rauðurnar og jógúrt- ina með sleif eða sleikju. Hellið deiginu yfir kökuformið og sléttið yfirborðið. Bakið í 50-60 mín- útur þangað til kakan hefur lyft sér og tekið lit. Til að athuga hvort hún sé bökuð í gegn er prjóni stungið í hana; ef hann kemur hreinn út er kakan tilbúin. Kælið kökuna í forminu, það er eðlilegt að hún falli aðeins. Sjóðið sírópið á meðan kakan er í ofninum. Setjið allt hráefnið í pott og hitið að suðu, lækkið hitann og látið malla í 7-10 mínútur, eða þar til u.þ.b. þriðjungur hefur gufað upp. Kælið sýrópið og hellið því í könnu. Losið kökuna úr forminu á köku- disk og dreifið sírópinu yfir. Berið þetta fram með t.d. sýrðum rjóma eða grískri jógúrt eða jafnvel skyri. Hrísgrjónabúðingur með mangó, límónu og kókos Þennan búðing má bera fram heitan og kaldan. Ef hann er borðaður kaldur er best að bíða með að setja mangóið í hann þar til á að bera hann fram. Fyrir 4-6 250 g. jasmín-hrísgjrón 400 ml. dós af kókosmjólk 80 g. sykur 1 vanillustöng, skorin í helminga eftir endilöngu 2-3 msk. kókosmjöl 1 þroskað mangó 150 ml. rjómi Borið fram með: Lófafylli af söxuðum pistasíum 1 límóna Setjið hrísgrjón, kókosmjólk, syk- ur og vanillu í pott. Hitið að suðu, hrærið oft á meðan, og látið malla undir loki í 15-20 mínútur. Ristið kókosmjölið á þurri pönnu þar til það fer að brúnast og hrærið stöðugt. Hvolfið mjölinu af pönnunni á disk og kælið. Afhýðið mangóið og skerið í bita. Veiðið vanillustöngina upp úr þeg- ar hrísgrjónin eru tilbúin. Hrærið kókosmjölinu, rjómanum og mangó- bitunum saman við. Setjið lokið aftur á pottinn og látið standa í 2-3 mín- útur. Skiptið búðingnum í skálar og dreifið pistasíum yfir. Rífið smávegis límónubörk yfir og berið fram. birta@mbl.is Kokkur Gordon Ramsey kann réttu handtökin í eldhúsinu. Heimsreisa bragðlaukanna Uppskriftir að forvitnilegum eftirréttum eru meðal þess sem má finna í nýrri bók frá Gordon Ramsey. Hrísgrjónabúðingur Tyrknesk jógúrtterta Amaretto-tertan 58 Jólablað Morgunblaðsins 2010 Hildur Hafstein www.hildurhafstein.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.