Morgunblaðið - 27.11.2010, Side 83

Morgunblaðið - 27.11.2010, Side 83
70 Jólablað Morgunblaðsins 2010 Jói er sjálfur mikill veiðimaður og því er að finna fjöldann allan af girnilegum villibráðaruppskriftum í bókinni góðu. Hér má sjá nokkrar slíkar, en bókin fæst í verslunum Eymundsson og Hagkaupa. Léttelduð rjúpa Forréttur Rjúpnabringur Salt og pipar Smjör Garðablóðberg Rifsber Kryddið bringurnar með pipar og salti og léttsteikið þær upp úr smjöri ásamt garðablóðbergi og berjum í 4-5 mínútur. Látið þær standa í u.þ.b. 3 mínútur og berið þær fram strax ásamt sósunni og perubitunum. Gætið þess að allt meðlætið sé tilbúið áður en kjötið er steikt. Rjúpnasoð Bein og innmatur úr u.þ.b. 6 rjúpum 1 stór laukur 2 gulrætur U.þ.b. 10 einiber 2 góðir kvistir garðablóðberg Salt og pipar Vatn Brúnið bein, innmat og niður- skorið grænmeti vel á pönnu. Setjið þetta svo í pott, bætið einiberjum, garðablóðbergi, pipar og salti við, hellið vatni í pottinn svo að fljóti vel yfir og sjóðið í 1-2 klukkustundir. Fleytið froðu ofan af öðru hverju á meðan soðið mallar. Síið soðið þegar það er tilbúið. Rjúpnasósa 3 dl rjúpnasoð 3 dl rjómi 1 msk. gráðaostur Salt og pipar 1 tsk. rifsberjasulta 2 msk. púrtvín, ef vill Setjið allt í pott, látið suðuna koma upp og kryddið vel. Jóa Fel þarf vart að kynna fyrirmatreiðsluáhugamönnum, enhann hefur meðal annars sýntlistir sínar í eldhúsinu í þátt- unum Eldsnöggt með Jóa Fel. Þætt- irnir hafa verið sýndir á Stöð 2 frá árinu 2003 og eru orðnir um 90 tals- ins. Uppskriftirnar sem Jói Fel hefur eldað í þáttunum skipta hundruðum og nú hefur verið gefin út bók þar sem þeim er safnað saman. Bókin heitir Eldað með Jóa Fel og kennir þar ýmissa grasa, eins og þeir sem fylgst hafa með þáttunum vita manna best. Jói eldar jafnt girnilega forrétti, aðalrétti, eftirrétti og smárétti auk þess sem má í bók- inni góðu fá uppskriftir að ýmsum drykkjum, kökum og grillréttum svo fátt eitt sé nefnt. Þá rifjar Jói upp ýmis atvik og skemmtilega gesti sem hafa sett svip sinn á þættina fram til dagsins í dag. Steikt pera 1 pera 1 msk. smjör 1 msk. sykur 1 tsk. kanill Flysjið peruna, skerið hana í litla bita og steikið upp úr smjöri. Setjið sykur og kanil saman við og steikið áfram þar til perubitarnir eru orðnir mjúkir. Hreindýrasteik með púrtvíns- og villisveppasósu Aðalréttur 1 innanlæri (u.þ.b. 1,5 kíló) Matarolía Salt og pipar 5-6 greinar garðablóðberg U.þ.b. 30 rifsber U.þ.b. 10 einiber U.þ.b. 2 msk. saxað ferskt rósmarín Brúnið kjötið á pönnu upp úr olíu og kryddið það með pipar og salti. Setjið kjötið í eldfast mót og setjið nokkrar greinar af garðablóðbergi kringum kjötið og ofan á það. Setjið rifsber, einiber og rósmarín í mótið (eða á pönnuna, best er að setja kjöt- ið í ofninn á pönnunni sem það var brúnað á). Bakið í ofni við 180°C í 20- 30 mínútur, eftir stærð steikarinnar. Notið kjöthitamæli og steikið kjötið þar til kjarnhiti er u.þ.b. 54°C. Látið kjötið standa í u.þ.b. 10 mínútur áð- ur en það er skorið. Kartöflur Steikið kartöflur í teninga. Steikið þær upp úr olíu og kryddið með garðablóðbergi, pipar og salti. Bakið þær í ofni í u.þ.b. 30 mínútur (tíminn fer eftir stærðinni á bitunum). Villisveppasósa U.þ.b. 35 gr þurrkaðir villisveppir 1-2 skalottlaukar Olía til steikingar 1½ dl portvín 3 dl villibráðarsoð 1-3 dl rjómi Salt og pipar Títuberjasulta Gráðaostur Leggið sveppina í bleyti. Saxið laukinn mjög smátt og steikið í olíu, hellið púrtvíni og soði saman við og sjóðið niður um helming. Setjið sveppina út í ásamt rjómanum, sjóð- ið mjög rólega í u.þ.b. 5 mínútur og kryddið með salti og pipar. Gott er að láta sósuna standa í 10-15 mín- útur til að fá meiri kraft úr svepp- unum. Hitið sósuna upp áður en hún er borin fram. Bætið þá sultu og gráðaosti saman við eftir smekk, smakkið og bragðbætið eftir þörf- um. Þykkið sósuna með svolitlu mai- zena-mjöli ef vill. Eplasalat að hætti Unnar 2 dl rjómi 2 sellerístilkar Vínber 2 epli Svolítill sykur U.þ.b. 2 msk. möndlur (má sleppa) Léttþeytið rjómann og skerið sell- eríið mjög smátt. Skerið vínberin í tvennt og eplin í litla bita. Blandið öllu saman og setjið í kæli. birta@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Komin er út ný bók með rúmlega 400 uppskriftum úr smiðju Jóa Fel. Uppskriftirnar eru úr þeim rúmlega 90 sjónvarpsþáttum sem Jói hefur gert undanfarin ár. Matreiðslumaður Jói Fel var að gefa frá sér nýja uppskriftabók með hundurðum uppskrifta. Villibráð að hætti Jóa Fel
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.