Ný saga - 01.01.1990, Page 36

Ný saga - 01.01.1990, Page 36
Gunnar Haröarson TUNGUTAL ÍSLENSKRA BÓKMENNTA Dag nokkurn áriö 1030 eöa þar um bil, horföi kuflklæddur maður yfir kjarrivaxnar hlíðar Flóka- dals, á reykinn sem liöaðist upp frá vallgrónum bæ þar í dalsmynninu. Þetta var enskur maður, kominn um opið haf, með undarlega muni í farteski sínu: krosslíkneski og kaleik, og fáeina bæklinga úr skinni. Hver var þessi maður og hvert var erindi hans? Nafn hans þekkjum við, Hróðólfur hét hann, og við vitum að hér um bil 20 árum síðar steig hann aftur á skipsfjöl; þrír kufl- klæddir menn, íslenskir, horfðu þegjandi á eftir meist- ara sínum þegar hann sigldi út fjörðinn í ofurlítiö haustlegri gjólunni. Við getum ef til vill gert okkur í hugarlund eitt og annað smálegt sem þessi mað- ur kann að hafa séð og skynj- að, en þegar vindinum slepp- ir, jarminu í ánum, hrópum og köllum í fjarska, stöku bauli frá stórgrip, hófadyn, niðnum í Hvítá, garginu í mávunum og öldugjálfrinu, vitum við ekki hvað hann heyrði. Þó eigum við nú, hátt í árþúsundi síðar, þögul vitni sem bera okkur daufan enduróm af kvæðum sem þessi maður kann að hafa heyrt þau nítján ár sem hann var búsettur þarna í Borgarfirðinum. Þessi kvæði eru okkur í senn undr- unarefni og ánægju. Undrun- ar, því það gengur furðu næst að þau skuli enn vera til, á- nægju - og þó líkast til engu minni furðu - því þau eru rit- uð á máli sem kemur okkur kunnuglega fyrir sjónir, máli sem við lesum og skrifum og njótum enn í dag. Þó að fram- burðurinn sem Hróðólfur heyrði þegar hann kom að Bæ í Borgarfirði á fyrri hluta elleftu aldar sé löngu horfinn í veðrin, þá er það samt svo, hversu furðulegt sem það kann að hljóma, að málið sem þau voru rituð á er enn lifandi bókmenntamál í þessu sama landi á ofanverðri 20. öld. Þessi fullyrðing - að forn- málið sé lifandi bókmennta- mál - getur valdið hóstakasti hjá mörgum manninum sem „er sér meðvitaður um annar- leika menningarfyrirbæra fyrri alda,“ og eins víst að hann reyni að skyrpa henni út úr sér eins og hverri annarri flugu. En ástæðan fyrir því að það mál sem kallað er fornís- lenska er lifandi bókmennta- mál enn í dag er sú að það eru engin raunveruleg skil stíga þær og verða sjálfstætt gagnvart stund og stað. Islensk ritmálshefð varð til á 12. og 13. öld og „hefur verið áhrifamikil allt fram á þessa öld“, þó að tungan hafi verið mismunandi á mismunandi tímum (mál 12. aldar annað en mál 15. aldar og mál 18. aldar annað en mál 20. aldar) og það sett sinn svip á ritmál- ið. Hins vegar hefur komist á sú venja að greina á milli forníslensku og nútímamáls og setja tímamörkin um 1540. Er þá miðað við prentun Nýjatestamentisins á íslensku. Þessi skipting er meðal annars / þann tíö var ísland viöi vaxiö milli fjalls og fjöru. Bækur írskar og bjöllur og baglar drupu þar af hverju strái en um íslenska menningu er ekki getiö í heimildum. Myndin er af Bæjarstaöaskógi og Skaftafellsfjöllum í baksýn. milli þess sem hægt er að kalla íslenskt fornmál og ís- lensks nútímamáls þegar bók- menntamáliö, ritmáliö, á í hlut. Með bókmenntamáli á ég við ritmálið sem sjálfstæð- an tjáningarmiðil, óháðan tal- málinu að því leyti að j^að er ekki rígbundið við tilteknar sögulegar aðstæður heldur býr yfir möguleikanum til að yfir- forsenda íslenskukennslu víða erlendis og einnig orðabók- argerðar yfir íslenskt mál, þar sem fornmálið er orðtekið í Kaupmannahöfn en nútíma- málið á íslandi. En sú stað- reynd að skilin milli fornmáls og nútímamáls skuli vera látin ráðast af prentun bókar sýnir glöggt að engin marktæk eða raunveruleg skil eru þarna á 34
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.