Ný saga - 01.01.1995, Side 59

Ný saga - 01.01.1995, Side 59
Sigurður Gylfi Magnússon Siðferðilegar íVrirmvndii' á 19. öld Þj óðfélagsbreytingar Trúarbrögð eiga það sameiginlegt um gerv- alla veröldina að skapa siðferðilegar fyrir- myndir („moral authority“) sem ætlað er að styrkja og styðja fylgjendur þeirra frá vöggu til grafar.1 í flestum samfélögum þar sem ríkja einföld efnahagsleg, pólitísk og félagsleg kerfi hafa trúarbrögðin átt mjög greiðan aðgang að hjörtum mannanna. Ástæðan er einfaldlega yfirburðir trúarbragðanna sem hugmynda- fræðilegs afls. Trúin verður lffakkeri einstak- linganna og haldreipi þeirra í daglegu amstri. Fátt fær staðist samanburð við trúna, hvort heldur stofnanalega uppbyggingu flestra trú- arbragða eða efnislegt innihald. Pað er ekki fyrr en með einhverjum stórkostlegum at- burðum sem slfta sundur samhengi hins vanabundna lífs að lífsafstaða fólks tekur stakkaskiptum. Þetta hefur einna helst gerst með tvennum hætti: í fyrsta lagi þegar nýir herrar af ókunnum slóðuni taka að boða öðr- um fagnaðarerindi sitt án þess að hafa til að bera þolinmæði til að umbera þau trúarbrögð sem fyrir voru. Mörg dæmi mætti nefna úr veraldarsögunni og nægir að minna á þær breytingar sem urðu í Ameríku við landa- fundina miklu eins og við Vesturlandabúar köllum gjarnan þá atburðarás sem olli hruni fornra menningarríkja í Vesturheimi. Þar var að lokum hampað nýjum trúar- og siðferðis- hugmyndum á kostnað hinna sem þjóðir Am- eríku höfðu áður hlýtt og fylgt skilyrðislaust. í annan stað gerast þessar breytingar með tilstuðlan afla innan menningarheildarinnar sem storka ríkjandi hugmyndum og gildum þannig að stofnanir eins og kristin kirkja eiga undir högg að sækja. Sem dæmi um slík átök má nefna þær hreyfingar á nýöld sem kennd- ar hafa verið við vísindabyltinguna og síðar upplýsinguna. Þessar hræringar, sem sigldu í kjölfar landafundanna, ollu gríðarlegum um- skiptum í evrópskum samfélögum og er jafn- vel ekki enn séð fyrir endann á þeirri örlaga- sögu. Framvinda þessara atburða hefur ekki síst mótast af nýjum siðferðilegum fyrirmynd- um sem á stundum hafa verið í beinni and- stöðu við kristna kirkju. Vísindahyggja nýald- ar, sem í mörgum tilvikum kippti fótunum undan fyrri hugmyndum manna um löggengi heimsins og keppti þar af leiðandi beinlínis við trúarbrögðin um siðferðilegt forræði yfir einstaklingum, varð nær allsráðandi víða á Vesturlöndum. Allt þetta hefur orðið sagnfræðingum í for- tíð og nútíð verðugt viðfangsefni og hafa þeir rökrætt ýmsa þætti þessarar þróunar af mikilli þekkingu og list víða um heim. Það er ekki ætlun mín að reyna að bæta í þann sjóð nema á mjög óbeinan hátt. Áhugi minn á félagssögu á íslandi hefur beint athygli minni mjög að menningu 19. aldar og þeim áhrifum sem hún hafði á allt svipmót þjóðfélagsins. Einn angi þeirrar þróunar var afsprengi upplýsingar- byltingarinnar sem skaut rótum á seinni hluta 19. aldar í garði alls þorra íslenskrar alþýðu.2 Ein mikilvægasta breytingin sem fylgdi í kjöl- farið var aukinn aðgangur almennings að ver- aldlegu prentefni. Þeir seni fengist hafa við ritun kirkjusögu virðast vera þeirrar skoðunar að við lok 19. aldar hafi hinni hefðbundnu íslensku kirkju hnignað stórlega. Pétur Pétursson telur til dæmis að mikil breyting hafi orðið á sam- 57
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.