Ný saga - 01.01.1995, Blaðsíða 104
Hvíta stríðið
Mynd 8.
Hvítliðar halda frá
Suðurgötu 14 með
aðra fanga.
þýðublaðið kallar það, eins og það fór fram,
„stjórnarskrárbrot". Broddborgara og auð-
valdsmálgagnið Morgunblaðið hefir látið
rigna hrakaskömmum sífellt yfir Ólaf og jafn-
aðarstefnuna og ég tala nú ekki um bolsivis-
mann, það er nú glatt og lukkulegt og hælist
um og básúnar marga lygi. Á fimmtudags-
morgunn sagði það gleiðgosalega frá hand-
tökunum og „hinu harðsnúna aðstoðarlög-
regluliði", sem hefði gegnt skyldu sinni með
dugnaði og kurteisi(!) svo allt gekk slysalaust
og ekki var einu skoti skotið. Tvö börn urðu
þó fyrir bifreið þegar þeir flengdust organdi
um allt og stórmeiddi þau. Sama tölublað
gapir með það að „flokkurinn sem tók dreng-
inn hefir skotið saman 3000 kr. handa hon-
um“, og muni Morgunblaðið veita gjöfum til
hans viðtöku. En svo fengu þeir dálítinn
snoppung því í Vísi og Alþýðublaðinu í gær
og í Morgunblaðinu í morgun tilkynning á
þýsku frá drengnum sjálfum (hann kvað mæla
á þýsku) að hann tæki ekki við neinunr pen-
ingagjöfum, kveðst ekki vera neinn betlari og
fósturforeldrar sínir, Ó. Friðriksson und Frau,
muni annast um sig, og um leið tilkynnir kona
Ólafs, Anna [Friðriksson], að hún frávisi öll-
um gjöfum fyrir hönd fóstursonar síns. Hún
álítur þennan peningaplástur sem móðgun
sem ekki er að furða. Alþýðuflokksmenn ætla
að krefjast þess að Ólafur verði látinn laus.
Aldrei hefir bæjarlýður verið eins greinilega
skiptur í tvær andstæður eins og nú og nú er
það eins og annarsstaðar orðið hvítt og rautt.
Stjórnin lét „gyllta skrílinn" siga sér upp til að
gera gönuhlaup sem átti að vera til að upp-
ræta bolsivismann, en þar sem lítill neisti var
fyrir hefir hún og hennar lið nú blásið að kol-
unum og hellt olíu á eldinn; sem getur orðið
að geigvænlegu báli.
Laugardagur 17. desember 1921
Ólafi Friðrikssyni var loksins sleppt úr fang-
elsinu miðvikudaginn 30. nóvember á 8. degi,
og hafði hann einskis neytt allan þann tíma
nema drukkið heitt vatn. Hann var furðu
hress og jafnaði sig fljótt. Fór þetta allt gagn-
stætt von hvíta liðsins, sem gerði ráð fyrir 2-8
ára tugthússvist eða hann yrði veikur eða
hrykki einhvern veginn upp af; daginn eftir, 1.
desember, var haldinn afar fjölmennur Al-
þýðuflokksfundur og samþykkt að skora á
landsstjórnina að rannsaka hverjir valdir voru
að stofnun hvíta hersins, vopnabúnaði og að-
förum og láta þá sæta hegningu og einnig að
102