Ný saga - 01.01.1995, Blaðsíða 64

Ný saga - 01.01.1995, Blaðsíða 64
Sigurður Gylfí Magnússon Mörg börn sáu til dæmis á eftir systkinum sínum ígröfina, vinnuhjú komu og fóru úr lífi þeirra og eldri ættingjar týndu eðlilega hratt tölunni að ég varð að fara frá fóstru minni til vandalausra, sem smaladrengur og oftast að sumarlaginu aleinn og langt inn til fjalla, að ég þá yrði óþreyjufullur og óyndisgjarn. ... Grét ég því oft og lengi, og fannst mér að slíkt Iíf og tilvera væri verri en engin. Og þótt ég að öðru leyti þráði lífið og umfram allt að vera stór, svo stór og sterkur, að ég engum manni þyrfti að lúta, þá komu mjög þau augnablik - að mér fannst ég heldur vilja losast við lífið en lifa því.'4 Þegar þetta allt er tekið saman þá blasir við frekar nöturleg mynd af lífi barna í íslensku bændasamfélagi. Þó verður að taka það fram að þetta var reynsla langt frá því allra sem ólust upp á 19. öld. Aðstæður voru að sjálf- sögðu ólíkar en dauðinn fór hins vegar ekki í manngreinarálit og trú fólks (sérstaklega eldra fólks) á yfirnáttúruleg fyrirbæri var al- menn. Margt ungmenna á þessu tímabili fékk því að kynnast þessum þáttum mannlífsins, þó ekki væri nema af afspurn, dauðanum, mikilli vinnu, umræðunni um yfirskilvitleg öfl og einstæðingsskap. í stuttu máli má því segja að öryggisleysi hafi verið tilfinning sem allir þekktu og stíf þátttaka í daglegum störfum var nokkuð sem allir fengu að reyna. Það er óhætt að leggja áherslu á að foreldr- ar fengu takmarkað tækifæri til að sinna börnum sínum, jafnvel við hin ákjósanlegustu skilyrði 19. aldarinnar, svo ekki sé minnst á aðstæður eins og þær sem Lárus J. Rist ólst upp við. Vinna fullorðna fólksins var svo knýjandi og tímafrek að börn nutu takmark- aðrar athygli foreldra sinna. I stað þeirra komu eldri ættingjar, vinnuhjú og systkini en oft voru höggvin stór skörð í þennan hóp. Mörg börn sáu til dæmis á eftir systkinum sín- um í gröfina, vinnuhjú komu og fóru úr lífi þeirra og eldri ættingjar týndu eðlilega hratt tölunni. Útkoman var því sú að börn voru mikið til afskipt í lífi fullorðinna fram yfir tíu ára aldurinn eða þar til þau fóru að taka virk- ari þátt í daglegri vinnu við hlið fullorðna fólksins og sem jafningjar þess. Fram að þeim tíma urðu þau að takast á við harðan veru- leikann oft ein á báti og búa við mikið mót- læti. Og þó svo að þau ættu eitthvert athvarf þá sat eftir sú tilfinning að það skjól gæti hæg- lega reynst haldlítið. Kristileg hvatning Það sem einkennir mannskepnuna öðru frem- ur er ótrúleg aðlögunarhæfni og hæfileiki til að takast á við aðstæður sem við fyrstu sýn virðast vera allt að því óyfirstíganlegar. Þessi eiginleiki kemur snemma í ljós. í fyrstu eru börnin í eigin heimi en fara smám saman að greina sig sem sjálfstæða einstaklinga og læra að þekkja þær meginreglur sem þau verða að fylgja. Þættir í auknum þroska þeirra tengjast brjóstagjöf, að þekkja líkama sinn, samspili tilfinningalegs atlætis og refsinga og leitinni eftir siðferðilegum fyrirmyndum. Það er erfitt að rekja sig eftir þessari þróun einstaklingsins fyrr á tíð þar sem heimildir eru af skornum skammti en það er hins vegar Ijóst að hver lið- ur hennar var mikilvægur fyrir heill barnsins. Við vitum að á 19. öldinni vantaði oft upp á að börn nytu þess atlætis sem nauðsynlegt er talið fyrir vöxt þeirra og viðgang. Þar má sem dæmi nefna að brjóstagjöf var óalgeng nánast alla 19. öldina og því hefur verið haldið frarn að það hafi haft mjög alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir tilfinningalegt uppeldi barna.15 Þegar við bættist ákveðið tómlæti og fjarlægð foreldra í lífi barna má segja að þörf þeirra fyrir utanaðkomandi leiðsögn hafi margfaldast. Fyrirmyndir í 19. aldar samfélag- inu urðu því lykilatriði í lífi þeirra. Með þetta í huga er áhugavert að athuga hver viðbrögð barna voru við erfiðum að- stæðum sínum. Hvar leituðu þau sér huggun- ar, tilfinningalegs skjóls og styrks til að fást við sitt daglega amstur? Þessum spurningum er að sjálfsögðu ekki auðvelt að svara en beinast liggur við að horfa til kirkjunnar og mótunaráhrifa hennar á mannssálina. I til- tölulega einhæfu hugmyndafræðilegu um- hverfi hafði vel skipulögð kirkja eins og sú ís- lenska algjöra yfirburði hvað varðar siðferði- legar fyrirmyndir. Stofnunin var sérstaklega sniðin að því hlutverki að veita þegnum sín- um leiðsögn og styrk. Grunntónninn var sleg- inn á strengi þeirrar trúarheimspeki sem siða- boðskapurinn hvíldi á. Hinn lútherski rétttrúnaður sem ríkti hér á landi frá 17. öld og fram á 19. öld, með boð- skap manna eins og Hallgríms Péturssonar á oddinum, var trúarstefna sem var „vitræns 62
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.