Ný saga - 01.01.1995, Blaðsíða 93
Að byggja sér veldi
Mynd 5. Grunnmyndir húsa geta veriö afar mismun-
andi. Um þessar tvær óiíku grunnmyndir ritaði Hörður
Ágústsson í 3. hefti Birtings 1960: „Af annarri teikn-
ingunni má ráða einfalda og skýra hugsun, er skipar
hverri rúmeiningu eðlilega niður. Á hinni mætir okkur
óróleiki; í myndinni er enginn ákveðinn ás, hvað hleðst
utan á annað, eins og byggt sé við á árafresti og af
hendingu. “
kostnaði, svo að koma mætti sem flestum í
sæmandi húsnæði. Ymsar leiðir voru farnar til
að auka húsnæði í bænum á sjötta áratugnum.
Fjölbýlishús voru byggð í stórum stíl, einbýl-
is- og raðhúsahverfi risu eftir sömu eða
áþekkum teikningum og byggingameisturum
var úthlutað byggingarleyfi fyrir húsum eða
blokkum sem þeir seldu síðan hverjum sem
vildi.50 Ekki voru menn alltaf sáttir við þetta
því óheppilegt gat verið að byggja hús án þess
að vita hverjum þau væru ætluð og hætt við,
að ekki væri nægilega vel gætt að sjónarmið-
um íbúanna.
A tímum hafta og erfiðra aðdrátta stóð
skortur á góðu byggingarefni húsagerð fyrir
þrifum.51 Bölvað basl var að komast yfir bygg-
ingarefni. Þegar ástandið var sem erfiðast um
1950 þurfti nánast leyfi fyrir hverri spýtu sem
reka skyldi í jörðu.52 Þegar svo stóð á urðu
menn að forðast bruðl eftir mætti, því það
sem til þurfti var bæði torfengið og dýrt. Fólk
varð að vera séð og nýta efni sem best, því
flestir höfðu úr litlu að spila.55 En vegna nýtni
og útsjónarsemi húsbyggjenda þótti arkitekt-
úrinn sem upp spratt ekki alltaf upp á marga
fiska.
Ekki bætti úr skák að margir voru sjálfir á
kafi í byggingu eigin húsa, aðrir höfðu tekið
við íbúðum fokheldum eða tilbúnum undir
tréverk og gengu frá þeim. Iðnaðarmenn voru
oft fengnir til að sjá um erfiðustu hlutina, svo
tóku íbúarnir við, iðulega með aðstoð vina og
vandamanna, og ekki var ætíð byggt af þekk-
ingu og leikni.54 Fólk var ekki alltaf að láta
húsameistarana vita þegar það vék frá upp-
haflegum teikningum, það breytti bara sínu
eigin húsi eftir eigin smekk og geðþótta.
Enda þótt húsameistarar væru ekki reiðu-
búnir að kyngja hverri hugdettu húsbyggj-
enda lögðu þeir ríka áherslu á náið samráð
við tilvonandi íbúa þegar þeir teiknuðu hús. í
starfsreglum arkitekta var þetta sjónarmið í
hávegum haft.55 Sú vísa þótti ekki of oft kveð-
in að samstarf húsbyggjanda og húsameistara
91