Ný saga - 01.01.1997, Page 43
„Vinnan göfgar...“
Karlar híma med hendur í skauti
en konur elda graut
Það segir sig sjálft að miklu minna var um
vinnu yfir hörðustu vetrarmánuðina. Sátu
fangar því einatt iðjulausir á veturna. Eftir að
farið var að skrá þann lið sem kallast „intet“ í
skrárnar í júní 1807 er sá liður stærstur yfir
vetrarmánuðina. Þetta iðjuleysi fanga yfir
vetrartímann var mörgum þyrnir í augum.
Einstaka embættismaður leigði fanga til
vinnu og þá jafnan fáa daga í senn. Sú litla
vinna sem var stunduð fór því öll fram innan
veggja tukthússins. I raun og veru er ekki rétt
að tala um litla vinnu því sumir höfðu nóg að
gera meðan aðrir sátu auðum höndum. Þar
má helst nefna eldamennsku, fataviðgerðir,
þrif og ullarvinnu. Ullarvinnan var lftil í fyrstu
en átti eftir að aukast smám saman. Konur
sinntu fyrst og fremst þessum störfum, bæði
yfir vetrar- og sumarmánuðina, en í minna
mæli á sumrin. Þá var meiri vinna í boði og
gengu þá konur óhikað að erfiðisvinnu líkt og
karlmenn, til dæmis mótekju, hleðslu grjót-
garða og annarri byggingarvinnu. Á vetrum
sinntu konur eingöngu innistörfunum og það
var einna helst að karlmenn sinntu tóvinnu
eða gerðu við föt sín ef fátt var kvenfanga
innan veggja. Yfirleitt sá sama konan um
eldamennsku þann tíma sem slíkt er skráð,
frá desember 1807 til júní 1808. Þuríður Niku-
lásdóttir, dæmdur þjófur, sinnti því starfi
lengst af.42 Eldað var ofan í fangana, en einnig
kom fyrir að eldað var ofan í fátæk börn í
bænum.43 Þessi fátækrahjálp var tilkomin
vegna Frydensbergs landfógeta. Hann fékk
Þorleif ráðsmann til að samþykkja að eldaður
yrði vatnsgraulur í desember 1807 og framvís-
uðu börnin miðum sem landfógeti útvegaði
þeim. Á miðunum sem hafa því miður ekki
varðveist átti að koma fram nafn barnsins,
aldur og hversu stóran skammt það átti að
fá.44
Dauðsfalla er getið í vinnuskránum og
voru þau skráð vegna þess að kringum þau
skapaðist vinna, líkkistusmíði og greftrun.45
Hins vegar virðast hugmyndirnar um iðnað-
arstofnunina hafa gengið treglega í fram-
kvæmd eins og nú verður lýst.
Mynd 10.
Reykjavík 1801.
Fremst á myndinni
er lækurinn.
Hreinsun hans var
mikið óþrifaverk.
41