Ný saga - 01.01.1997, Side 47
„Vinnan göfgar...“
Niðurstöður
Tukthúsið á Arnarhóli getur tæplega flokkast
sem hefðbundinn „letigarður“. Markmiðið
með byggingu þess var, fyrir utan það að vista
þar sakamenn til lengri eða skemmri tíma, að
gera úr mönnum nýta þjóðfélagsþegna. Því
var reynt að leggja áherslu á að fangar ynnu
einhvern þarflegan starfa.
Mesta vinnuframboðið var á sumrin þegar
fangar gátu unnið ýmiss konar útivinnu svo
sem mótekju, garðhleðslu og róðra. Dýrara
var að leigja fanga yfir sumartímann sem stóð
frá aprfl og fram í október. Minna var um
vinnu yfir vetrartímann og oft voru fangar
lengi iðjulausir, það er að segja karlarnir því
konurnar sinntu heimilisstörfum innan veggja
tukthússins. Eftir umbótatilraunir Magnúsar
Stephensens haustið 1809 sést veruleg aukn-
ing á ullarvinnu og hún jókst jafnt og þétt þar
til skráningu lauk 1810. Þá voru fangar einnig
farnir að stunda netagerð sem var ein af þeim
nýjungum sem Magnús lagði áherslu á.
Fangaleiga einskorðaðist nánast við embætt-
ismenn, kaupmenn og faktora, þó að hand-
verksmenn og einstaka bóndi tækju einnig
fanga á leigu. Mjög mikið var leigt af föngum
árið 1807, en strax árið eftir hrundi fjöldi
vinnudaga og fór þeim fækkandi þar til leiga
var bönnuð haustið 1809. Á sama tíma fækk-
aði föngum í fangelsinu og urðu þeir fæstir á
valdalíma Jörundar árið 1809.
Vinnuskrárnar veita ekki einungis upplýs-
ingar um störf fanga og leigu heldur má þar
finna ýmsan fróðleik um heilsufar og fleira.
En fyrst og fremst má sjá að fangar sátu ekki
auðum höndum og reynt var smátt og smátt
að efla vinnu innan fangelsisveggjanna. Fang-
ar hafa því sett töluverðan svip á bæjarbrag-
inn í Reykjavík á árunum 1807-10 með úti-
vinnu sinni og vinnu hjá leigutökum um allan
bæ.
Tilvísanir
1 Jón Espólín, íslands Árbcekur í söguformi. XII. deild,
Xdi hluti (Köbenhavn, 1855), bls. 45.
2 William Jackson Hooker, Journal of a Tour in Iceland
in the Summer of 1809 I (London, önnur útgáfa, 1813),
bls. 16: „The most conspicuous feature in this town was a
pretty large white building, roofed with boards, which, I
concluded, was the residence of the governor, but was
surprised on being told it was the work house, or house
of correction. On drawing nearer, however, it was not
such a comfortable place as it appeared in the distance."
Þýðing höfundar. Sbr. Klemens Jónsson, Saga Reykjavík-
ur I (Reykjavík, 1929), bls. 184.
3 Sektir sem menn urðu að greiða fyrir lögbrot eða mis-
gerðir.
4 Lovsamling for Island III, bls. 346 og 748. - Bjöm
Þórðarson, Refsivist á fslandi 1761-1925 (Reykjavfk,
1926), bls. 30.
5 Björn Þórðarson, Refsivist á fslandi, bls. 40-41.
6 Sama heimild, bls. 55-56.
7 Lovsamling for Island V, bls. 18-19.
8 Björn Þórðarson, Refsivist á íslandi, bls. 40. - Lovsam-
ling for lsland III, bls. 510-11.
9 Lovsamling for Island V, bls. 23-26.
10 ÞÍ. Skjalasafn stiftamtmanns III. Nr. 229-245. Skjöl
urn tukthúsið á Arnarhóli 1745-1819: Nr. 237. Skrár um
fangahald 1785-1802.20. mars 1786, ársfjórðungsskýrslur
um fanga 1785, 1. apríl, 1. júlí, 2. október 1786, 2. janúar
1787 og ársfjórðungsskýrslur um fanga 1786. - Sólveig
Ólafsdóttir og Sesselja G. Magnúsdóttir, „Fangaskrár
1804-1811.“ Gagnagrunnur unninn í námskeiðinu
„Glæpur og refsing á 18. og 19. öld“ við Háskóla íslands,
vorönn 1992. Kennari Gísli Ágúst Gunnlaugsson. - ÞÍ.
Skjalasafn landfógeta XV. 33. Ýmis hegningarhússkjöl II.
Skrár yfir fangahald 1804-1811.
11 Árni Óla, Reykjavík fyrri tíma. Sögukaflar 3 (Reykja-
vík, 1986), bls. 165.
12 Björn Þórðarson, Refsivist á fslandi, bls. 114.
13 ÞÍ. Skjalasafn landfógeta XV. 33. K. Fangavinna 1807.
J. 3, 630 og J. 3, 896.
14 Sama hcimild. K. Fangavinna 1807. J. 3,1154.
15 Sama heimild. K. Fangavinna 1807. J. 3,1199.
16 ÞÍ. Skjalasafn stiftamtmanns III. Nr. 237. Skrár um
fangahald 1785-1802.20. mars 1786, ársfjórðungsskýrslur
um fanga 1785 1. apríl, 1. júlí, 2. október 1786, 2. janúar
1787, ársfjórðungsskrá unt fanga 1786 og nr. 238. Vinnu-
skrá fanga 1785-1807. 12. ágúst-31. desember 1785, 19
skrár merktar A-T, 2. janúar-28. maí 1786,21 skrá merkt
A-V.
17 ÞÍ. Skjalasafn landfógeta XV. 33. K. Fangavinna 1807.
.1. 3,1006.
45