Ný saga - 01.01.1997, Síða 52

Ný saga - 01.01.1997, Síða 52
Viðtal við Arthur Marwick Ég er hlynntur því að söfn og merkir sögustaðir séu auglýstir og gerðir eins aðgengilegir og kostur er en ég held samt að hugarfar sölumennsku sé farið að ráða um of ferðinni THE DELUGE British Societyand the First World War Arthur Marwick sagnfræðinámi. Síðar benti ég á fleira, t.d. að í heimi þar sem bylja á okkur upplýsingar, réttar og rangar, er sagnfræðingurinn færari að greina og vinna með þessar upplýsingar en flestir aðrir. í þriðja lagi veita viss efahyggja og hluttækar spurningar af því tagi sem sagn- fræðingar spyrja nauðsynlegt mótvægi við því menningarlega andrúmslofti sem nú ríkir, þar sem margir hrífast af stórum kerfishugmynd- um og endanlegum svörum við knýjandi vandamálum. Enn eitt gagnið af sagnfræðinni er ritgerð- arvinnan og sú færni sem hún þjálfar með nemandanum: Hann greinir heimildirnar og dregur þær saman, athugar ýmsar hliðar við- fangsefnisins og dregur síðan ákveðna niður- stöðu af viðfangsefninu. Þetta þurfa stjórn- endur að gera og í raun allir þeir sem gegna valdastöðum. Stundum er litið á háskólasagnfræði sem eitt og miðlun sagnfræðilegrar þekkingar til almennings annað. Hér hef ég ekki aðeins sögukennslu í skólum í huga heldur menning- ararfsiðnaðinn (the heritage industry) sem fer vaxandi á íslandi eins og í Bretlandi. Hvaða augum lítur þú þessi mál? Auðvitað ættu ekki að vera skörp skil milli háskólasagnfræði og alþýðlegrar sagnfræði eða miðlunar hennar. Fær sagnfræðingur með mikla reynslu ætti að fást við margt og nefni ég fyrst afmarkaðar rannsóknir á frumheim- ildum. Niðurstöður þeirra eru síðan birtar í greinum eða bókum, sem hafa í eðli sínu ekk- ert sérstaklega almenna skírskotun. Þjálfaðir sagnfræðingar ættu líka að skrifa kennslu- bækur fyrir háskólastigið sem höfða kannski ekki heldur til alls almennings en eru skýrar og draga saman þekkingu. Ef til vill langar sagnfræðinginn einnig að þróa sitt sérsvið en jafnframt að setja þekkingu sína fram á þann hátt að hún höfði til almennings. Svo ég taki dæmi af sjálfum mér þá lauk ég fyrir stuttu miklu ritverki um félagslegar og menningarlegar breytingar á sjöunda ára- tugnum í fjórum löndum, Bretlandi, Banda- ríkjunum, Frakklandi og Ítalíu. Útgefendur spurðu mig hvaða lesendahópi þessi bók væri ætl’ið. Eg svaraði því til að markmið mitt væri að komast að því hvað hefði gerst á sjöunda áratugnum, hvert væri sögulegt mikilvægi þess og hvað hefði orsakað þessar breytingar. Ég hóf því verkið án þess að hafa sérstakan lesendahóp í huga. Ég tel að maður eigi alltaf að skrifa skýran og einfaldan texta og ég ætla að þessi bók hafi víða skírskotun. En ég vona líka að sérfæðingar á þessu sviði telji hana nýtt og mikilvægt framlag og að sjálfsögðu fyndist mér verkið misheppnað ef kollegum mínum þætti lítið til þess koma. Þetta er það sem skiptir mestu máli. En ég óska þess líka að hinn upplýsti almenningur hafi áhuga á henni. Þannig að þetta er ekki annað hvort eða. Ég legg áherslu á að sagnfræðingurinn á ekki bara að hafa aðra fræðimenn í huga. Besta sagnfræðibókin er sú sem eykur þekk- ingu manna, fær umfjöllun á fræðilegum vett- vangi og er vitnað til, en vekur jafnframt áhuga hins almenna lesanda. Ég er sannfærð- ur um að upplýstir lesendur vilja fyrst og fremst bækur sem þeir geta treyst. Menningararfsiðnaðurinn snýst ekki bara um söguna heldur líka menningu, tónlist, myndlist og fleira. Ég tel að þarna sé um óheppilega þróun að ræða. Það er hægt að ganga of langt í því að gera söguna að fáfengi- legri verslunarvöru. Það er gott að kveikja áhuga hjá fólki á því sem fortíðin hefur skilið eftir sig með söfnum og sögustöðum. Ef ég hefði ekki leiðsögubók um ísland þá myndi ég ekki vita hvaða staði ég ætti að skoða. Kynning er því ávallt nauðsynleg. Það sem nú er deilt um í Bretlandi er hins vegar mynd- bandasýningar og annað þvíumlíkt sem nær ekki að draga fram andrúmsloft fortíðarinnar heldur speglar miklu frekar nýjustu tækni og vinnur jafnvel gegn því efni sem verið er að fjalla um. Ég er hlynntur því að söfn og merkir sögustaðir séu auglýstir og gerðir eins aðgengilegir og kostur er en ég held samt að hugarfar sölumennsku sé farið að ráða um of ferðinni. Þegar hagnaður af sögustað eða safni er orðin viðmiðunin þá er hætta á að vikið sé frá hinu ósvikna, upprunalega, sem á að að vera í fyrirrúmi. Því meir sem markaðs- sjónarmið ráða þeim mun ríkari verður til- hneiging til þess að fegra hlutina eða gera þá æsilegri en þeir eru í raun og veru. Menning- ararfsiðnaðurinn er því að mfnu áliti gerólík- ur ábyrgri og heiðarlegri vinnu sagnfræðings-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.