Ný saga - 01.01.1997, Page 58

Ný saga - 01.01.1997, Page 58
Arthur Marwick Mikilvægi sjöunda ára- tugarins liggur ekki í smáhópum eins og bítlum og hippum í skrítnum fötum heldur í þeim miklu breytingum sem urðu á dag- legu lífi alls þorra almennings Ég ræði um ólíkt mat manna á sjöunda ára- tugnum. Flestir eru sammála um að þessi tími hafi verið mikilvægur en greinir á um hvort hann hafi orðið til góðs eða ills. íhaldsmenn eins og Margaret Thatcher telja að góðar og gamlar dyggðir hafi verið forsmáðar á sjö- unda áratugnum og samfélagið ofurselt ýmiss konar vitleysu. Ég hafna þessu, en ég er held- ur ekki sammála þeirri skoðun öfgavinstri- manna að á þessum árum hafi verið góðar forsendur fyrir byltingu sem síðan hafi verið svikin. Að því búnu set ég fram mína eigin skoðun sem er á þá leið að það hafi aldrei ver- ið neinn möguleiki á byltingu, en að meiri breytingar hafi orðið en vinstrimenn vilja við- urkenna, breytingar sem voru venjulegu fólki til meiri hagsbóta en Thatcher og hennar fylgjendur telja. Ég ræði sérstaklega um hinn frjálslynda, umburðarlynda og sáttfúsa hluta valdamanna sem gegndi mikilvægu hlutverki með því að leyfa samfélaginu að verða fyrir áhrifum rót- tækra hugmynda og andófsmenningar. Aðal- kenning mín er sú að sjöundi áratugurinn sé mikilvægur vegna þess að andófsmenningin gegnsýrði og umbreytti stöðugt hinni opin- beru menningu - ekki vegna þess að til varð andófsmenning sem var í andstöðu við hina opinberu menningu. Ástæðan var annars veg- ar sköpunargleði og athafnaþrá hinna ýmsu andófshreyfinga, en hitt skipti ekki síður máli að þeir sem voru við völd voru tilbúnir að taka við þessum hugmyndum. Mikilvægi sjö- unda áratugarins liggur ekki í smáhópum eins og bítlum og hippum í skrítnum fötum heldur í þeim miklu breytingum sem urðu á daglegu lífi alls þorra almennings, sambandi fólks hvers við annað svo sem hjóna, foreldra og barna og samskiptum kynjanna. Annað atriði sem oft gleymist er athafna- gleðin, en hún varð mikilvægt hreyfiafl á sjö- unda áratugnum. Þetta sést greinilega í til- raunaleikhúsum, ljósmyndastofum, tísku- hönnun og verslunum, sem voru auðvitað snar þáttur neyslusamfélagsins, og græddu sumir vel. Pað er alrangt að nýjungarnar á sjöunda áratugnum hafi eingöngu verið gerð- ar í óeigingjörnum tilgangi eða í andstöðu við markaðssjónarmið. Ef menn gera sér ekki grein fyrir þessari athafnagleði misskilja menn atburði þessa tíma og ástæður þess að þeir leiddu ekki til byltingar og afnáms neyslusamfélagsins, vegna þess að margt af því sem þá gerðist styrkti í raun neyslusamfé- lagið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.