Ný saga - 01.01.1997, Qupperneq 71
Endurreisn lýðræðisins
stjórnskipulags.22 Fulltrúi sjálfrar bresku lá-
varðadeildarinnar, Newton lávarður, sagði
eftirfarandi:
vér Englendingar höfum ávallt hrósað oss
og ekki verið lítið upp með oss af því, að
vér hefðum orðið fyrstir til þess að koma á
þingræði nútímans. Höfum vér verið vanir
að kalla þing vort „móður þjóðþinganna".
Nú vitum vér, að í þessu hefur oss skjátlazt.
Vér höfum nú komizt að raun um, að með-
an vér bjuggum við konung og lénsherra
höfðu íslendingar komið á hjá sér þingræð-
isstjórn, og búið við hana öldum saman.23
Það var þó einn erlendur fulltrúi á Þingvöll-
um árið 1930 sem ekki var á þeim buxunum
að gefa Islendingum mestan heiðurinn af lýð-
ræðinu en það var enginn annar en fulltrúi
Tékka, Jean Malypetr, sem ég minntist á í
upphafi. Malypetr ræddi þannig í ræðu sinni
ekki aðeins að þessar tvær þjóðir, íslendingar
og Tékkar, ættu sér líka sögu heldur einnig að
þær hefðu „jafnan haldið hátt á lofti hugsjón
frelsis og mannúðar.“ Tékkneska þjóðin hefði
eins og íslenska þjóðin „ávallt verið trú lýð-
ræðinu þrátt fyrir erfiða tíma í sögu hennar."24
Og þegar tékkneska lýðveldið var stofnað
árið 1918 var, líkt og þegar íslenska lýðveldið
var stofnað árið 1944, litið svo á að nú væri
tékkneska þjóðin loksins að rísa aftur til sinn-
ar fornu frægðar, það væri verið að endur-
vekja gullöld hennar og lýðræði frá því á mið-
öldum.25 í fyrstu ræðu sinni á forsetastóli þann
22. desember árið 1918 sagði Masaryk að
„eftir þrjúhundruð ár væri spádómurinn nú
uppfylltur":26
öll saga okkar, inntak hennar og tilgangur,
tengdi okkur við lýðræðisþjóðir heimsins.
Siðbótarhreyfing okkar og hugsjónir henn-
ar, þjáningar okkar þegar siðbótin var bar-
in niður... og sömuleiðis endurfæðing
þjóðarinnar sem einkenndist af hug-
myndafræði mannúðar og afleiðingu alls
þessa: lýðræðisins - örlög tékknesku þjóð-
arinnar eru á rökréttan hátt tengd Vestur-
löndum og nútímalýðræði þeirra.27
Hugmyndinni um að íslenskt nútímalýðræði
sé endurreisn lýðræðis sem ríkt hafi á íslandi
á miðöldum bregður enn fyrir á hátíðis- og
lyllidögum. Á fimmtíu ára afmæli íslenska
lýðveldisins á Þingvöllum 17. júní 1994 sagði
Vigdís Finnbogadóttir, þáverandi forseti, að
lýðveldið íslenska grundvallaðist á „lýðræði
sem samofið er sögu þjóðarinnar.“28 í nýársá-
varpi frá árinu 1993 talaði hún einnig um
hvernig sambandslögin árið 1918 hefðu ekki
aðeins rutt braul að „fullu sjálfstæði þjóðar-
innar“ heldur einnig að „endurreisn lýðveldis
á íslandi.“29 í núverandi Tékklandi er það
einnig ennþá hluti af hugmyndaheimi þjóðar-
innar að lýðræðið sé samofið sögu hennar en
í nýársræðu árið 1990 sagði forseti landsins,
Václav Havel, að orsökin fyrir því að unga
fólkið sem alið væri upp í alræðiskerfi þráði
frelsið væri sú að tékkneska lýðræðishefðin
hefði haldist við í undirmeðvitund þjóðarinn-
ar.30
Aðferð þessara tveggja þjóða við að byggja
upp þjóðernislega sjálfsmynd meðal þegna
sinna svipar þannig saman í veigamiklum at-
riðum. íslenskir og tékkneskir þjóðernissinn-
ar og stjórnmálamenn leituðust við að sýna
fram á hvernig þjóðir þeirra hefðu blómstrað
á gullöld og þá þegar haldið á lofti sömu hug-
sjónum og stjórnkerfi Vesturlanda byggist á
nú á dögum. Þegar lýðveldið Tékkóslóvakía
varð til árið 1918 og íslenska lýðveldið stofn-
að árið 1944, var almennt aldrei litið svo á að
sjálfstæði þjóðanna væri ávöxtur af flókinni
stjórnmálalegri atburðarás undanfarinna alda
og áratuga. Þvert á móti var litið svo á að hin
sönnu örlög fornra lýðræðisþjóða væru nú
loksins uppfyllt.
Tilvísanir
1 Magnús Jónsson, Alþingishátíðin 1930 (Reykjavík,
1943), bls. 201.
2 Ingi Sigurðsson, íslenzk sagnfrœði frá miðri 19. öld til
miðrar20. aldar. Ritsafn Sagnfræðistofnunar 15 (Reykja-
vík, 1986), bls. 42-43.
3 Sjá Hans Kohn, „Western and Eastern Nationalism",
Nationalism. Ritstj. John Hutchinson og Anthony D.
Smith (Oxford, 1994), bls. 162-65.
4 Anthony D. Smith, The Ethnic Origins of Nations
(Oxford, 1986), bls. 191-92. - Sami, National Identity
(London, 1991), bls. 59-67.
5 Ingi Sigurðsson, íslenzk sagnfrœði frá miðri 19. öld til
miðrar 20. aldar, bls. 24-25, 81-83,109-11.
Mynd 10.
Lord Newton.
Mynd 11.
Jean Malypetr
69