Ný saga - 01.01.1997, Side 95

Ný saga - 01.01.1997, Side 95
Síðustu misseri Árna Magnússonar Í7r^.y g. (s |£ta>c /bfLu3*,l jjk ^^3' ®^ j) * K**^*^**^ it^X^ I+J ( '\,'ÝaftfiX'* (j**-*)' &*. í j9<u^_w■ i £•'1‘ ' Í'7'ÍL'iJ Vy.*»t> J f S- // o u1^ ^v<‘-'(* M\?ií/ 7. Eldivið þurfti Árni að hafa í húsakynn- um sínum í Aðmírálsgötu og 30. september 1729 fékk Hans Becker hjá honum 35 ríkisdali „som siden komme til Regenskab i mellem os, og got- gióres i det Brænde som ieg faae af hannem". Fyrsta l'aðm eldiviðar hafði Árni þá þegar fengið og borgaði sérstaklega. Þetta skrifaði Árni á framhlið seðils, en á bakhliðinni, sem myndin er af, skráði hann sendingarnar jafnóðum og þær bárust. Þar kemur fram að annan faðm fékk hann 8. október, næst 9. nóvember, þá 1. desember og loks 22. desember, tveimur dögum áður en hann veiktist. Ekki fæst úr því skorið hvort tíðari sendingar hafi komið til af veðurfari eða versn- andi heilsu Árna, cn þessar línur eru þær síðustu sem hann skrifaði og ég hef fundið í fórum hans. Lítil veikleikamerki eru á skriftinni, nema helst nokkur titringur í síðustu færslunni. aminn klæddur úr áður en hann kólnaði. Á Is- landi fann karl nokkur það á sér að Árni væri allur svo það vissu margir áður en fyrstu bréf komu um vorið.25 Utförin fór fram frá Þrenningarkirkju fimmtudaginn 12. janúar 1730, en Árni var grafinn norðan megin í kór illa farinnar Vor- frúarkirkju. Sjö pör hefðarmanna, vina hans, fylgdu honum til grafar og tólf stúdentar báru kistuna, þeirra á meðal vafalítið þeir sjö ís- lendingar sem vöktu yfir líkinu síðustu nótt- ina.26 Fáeinum dögum síðar spurðist að lík- ræningjar hefðu grafið kistu Árna upp og brotið, en dregið nakið líkið úr henni og látið liggja þar sem það var komið. Þetta nefndi Jón Ólafsson í áðurnefndu bréfi vorið 1730, en útskýrði ekki: „Kann það létt að ske á Is- landi svo langt burtu, milli slaðurgefins fólks, sem þar er margt, að hér í staðnum tóku nokkrir, sem kannski vildu svo hefði verið, að ympra á ósönnum sögnum um hans nýjarð- sett lík. En þá ég kom þar í bland, kunni ég með rökum að reka það með öðru sannara til baka.“ Finnur Jónsson fullyrðir að þau rök hafi verið á þá leið að kaupmenn hefðu kom- ið sögunni á kreik og að lík konu nokkurrar hefði lent í þessu, en ekki lík Árna.27 Liggur Árni því enn á sínum stað og verður vonandi aldrei fluttur yfir hafið, þótt meirihluti hand- rita hans sé kominn í eldfasta og þjófhelda geymslu á íslandi. Tóku likræn- ingjar nakið lík handritasafnar- ans mikla úr gröfinni norðan- megin í kór Vorfrúarkirkju og skelltu því á gólfið Tilvísanir 1 Arne Magnussons private brevveksting. Kristian Kálund gaf út (Kaupmannahöfn, 1920), bls. 639 (til séra Hjalta Þorsteinssonar 2. júní 1727). Framvegis nefnt Pri- vate brevveksling. Eg þakka Margréti Jónsdóttur fyrir yf- irleslur og góðar ábendingar. 2 Sbr. orðalag erfðaskrár Árna um styrki handa íslensk- um námsmönnum „til Fædrenelandets og Publici Nytte", sjá Árni Magnússons levned og skrifter I, 2. Finnur Jóns- son gaf út (Kaupmannahöfn, 1930), bls. 118. Framvegis nefnt Levned og skrifter. 3 Arne Magnussons i AM. 435 A-B, 4to indeholdte hándskriftfortegnelser. Kristian Kálund gaf út (Kaup- mannahöfn, 1909), bls. 55. Framvegis nefnt Hándskrift- fortegnelser. 4 H&ndskriftfortegnelser, bls. 3-48. 5 Katalog over den Arnamagnæanske hándskriftsarn- ling I. Kristian Kálund gaf úl (Kaupmannahöfn, 1888), bls. 1-288. Framvegis nefnt Katalog, sem og síðara bind- ið (Kaupmannahöfn, 1894). Skrá Jóns Olafssonar frá 1730 hefur ekki verið gefin út. 6 Hándskriftfortegnelser, bls. 30-31. Um handrit sem nefnd verða hér á eftir, sjá Katalog og Sýnishorn úrseðla- 93
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.