Ný saga - 01.01.1997, Síða 99
Agnes Arnórsdóttir, doktorsnemi í
sagnfræði við Oslóarháskóla:
Þingið var einstaklega vel heppnað. Loksins
gafst okkur tækifæri til að kynna rannsóknar-
verkefni og niðurstöður og ræða þær sameig-
inlega í vinsamlegum tón. Gróskan er greini-
leg, sérstaklega er áberandi að grundvöllur er
að skapast fyrir skoðanaskipti, meðal annars
vegna þess að fleiri fræðimenn eru farnir að
sinna sambærilegum rannsóknum. Fjölmiðlar
og aðrir voru sérlega uppteknir af þessari
ungu kynslóð sagnfræðinga sem mætti til
leiks. Það voru þó ekkert endilega fyrirlestrar
þeirra yngstu sem vöktu mesta athygli. Mér
þótti náttúrunafnakenning Þórhalls Vilmund-
arsonar í dýrlingalíki skemmtilegust. Skipu-
lag þingsins var til fyrirmyndar, sérstaklega ef
við hugleiðum hversu mikil sjálfboðavinna lá
að baki. Hugsjónin lifir. Dagskráin var þó
stundum helst til viðamikil, en það kom af
góðu. Það voru svo margir sem óskuðu eftir
að taka þátt í ævintýrinu. Þar sem svo margt
var í gangi samtímis skipti miklu að fara eftir
fyrirfram ákveðinni áætlun. Það tókst manni
hins vegar ekki alltaf nægilega vel.
Árni Danícl Júlíusson, doktor í
sagnfræði frá Hafnarháskóla:
íslenska söguþingið var sögulegur viðburður
eins og vera ber. Hér uppskáru menn árangur
af starfi ekki bara starfi síðustu ára, heldur
áratuga. íslensk sagnfræði er eins og ljóti and-
arunginn, sem allt í einu leit í spegilinn, og
sjá! Hér var enginn ljótur andarungi, heldur
kröftug, sjálfstæð og spennandi fræðigrein,
sem líkleg er til frekari afreka. Ef hægt er að
tala um vandamál má kannski segja að þetta
hafi verið of mikið af því góða. Maður komst
ekki yfir að tala við nema fáeina þeirra sem
mann langaði til að tala við, hvað þá að heyra
nema hluta af þeim fyrirlestrum sem boðið
var upp á. Ég fylgdist auðvitað með því efni
sem mér var skyldast, Heimili og samfélag, og
var stoltur af að vera með í þeim hópi. Mér
fannst þar koma fram nýr hópur fræðimanna
í viðfangsefni sem um skeið hefur verið frem-
ur lítið sinnt, íslenskum miðöldum, hópur
sem menntaður er í ýmsum löndum, en hefur
L
97