Birtingur - 01.01.1959, Qupperneq 34

Birtingur - 01.01.1959, Qupperneq 34
fornum tréskurðarmyndum, málverk sem voru á að líta sem mismunandi raðir af tilskornum kubbum eða flötum. Nú tóku menn að gefa gaum þeim tilfinningum eða kenndum sem litur og form gátu vakið innra með manninum, ofan eða handan við lit og form, dularfullum, óvituðum, jafnvel draumkenndum. Það þarf engan að undra að þessi bylting var fremur verk skáldanna en málaranna, að minnsta kosti áttu þau frumkvæðið. André Breton birti Súrrealistaávarpið í París 1924, en það hafði geysisterk áhrif langt inn í raðir málaranna. Samhliða þessum meginstraumum runnu aðrir. Einkum hefur ein hreyf- ing styrkzt á seinustu árum. Hún er í raun ekki annað en úrvinnsla úr öllu sem fundið hafði verið á undanförnum áratugum. Þó eignast hún sína eigin talsmenn, sem auðga hana að nýjum hugmyndum frá eigin brjósti. Hún leggur megináherzlu á skipan myndforma og lita, sem eiga að spretta beint innan úr dýpi sálarlífsins og lýsa hreinni innri reynslu. Náttúrustælingin er algerlega felld í burtu, málaralistin er sett á borð með hljómlistinni. Þetta er það stig þróunarinnar sem við stöndum við í dag, og kallað hefur verið abstrakt list. Hafa verður í huga að nútímalist er í eðli sínu ,,tabula rasa“, algert endurmat á öllum þeim hugmyndum, sem gilt höfðu um list til þessa, tilraun til þess að byggja frá grunni. Hún er eðlilegt andsvar við hug- myndafræði natúralistanna, sem var að drepa sjálft verkið og einkum þó litinn. Hann var ekki lengur stilltur saman við aðra liti eftir því lögmáli og tilfinningu sem slíku ræður og skapar listræna heild, heldur var hann notaður til að stæla annan lit sem málarinn hafði séð í náttúrunni. Enda ber einmitt það mest á milli nútímamyndar og myndar frá öldinni á undan, að nútímamyndin á sér eins og líf í sjálfri sér, en hin er ávallt háð fyrirmyndinni. Þar með er vitanlega ekki lagður neinn úrslitadómur á listrænt gildi hverrar einstakrar myndar. Bylting nútímalistar hefur aldrei borizt út fyrir viss takmörk. Skynsvið vitundarinnar eru þau sömu og áður. Ungur málari dirfist ekki, þrátt fyrir uppreisnarhug sinn að snerta við nokkrum heimspekilegum eða sál- fræðilegum undirstöðuatriðum, stöðu mannsins milli tveggja skauta: innri og ytri veruleika. Hins vegar er afstaða hennar mörkuð á annan stað milli þeirra. Hún er huglægari en sú list sem var undanfari hennar. Athyglin beinist að þeim sviðum náttúrunnar er næst standa manninum, ekki sízt hugmyndunum og því viðtæki sem þær grópast í. I nútíma- myndlist skipta hugmyndirnar um hlutina og þannig tilfinningin fyrir þeim meira máli en hlutirnir sjálfir. Hún beitir hvort tveggja rannsókn sinni og lætur berast með þeim eins langt og lögmál málverksins leyfa. Eitt af því sem einkennir hin nýju viðhorf og ekki hefur áður þekkzt í myndlist, eru tilraunir hennar til þess einsog að skyggna tilveruna með 32 Birtingur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Birtingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.