Birtingur - 01.01.1959, Side 44

Birtingur - 01.01.1959, Side 44
Wenn es mal regnete Und es begegnete Ihnen ’ne neue Rasse ’ne braune oder blasse Da machen sie vielleicht daraus ihr Beefsteak Tartar. verður í þýðingunni: Því hermenn herja og her sinn verja frá Kap til Kútsj Behar, og ef þeim leiðist þar og ekkert veiðist þar, þeir kúga nýjan kynþátt og kreista úr honum sinn mátt, svo hann er einsog illa farið ónothæft skar. Látum vera, þótt þarna væri frítt útlagt, en ekki hefur þessu viðlagi farið fram við fríheitin. Ef einhver skyldi ekki heyra það, þá rímar „sinn mátt“ þarna á móti „kynþátt“. Hinar hermannlegu kreistingar eru algjör upp- fundning þýðandans, og ekki skil ég þá matreiðslulist að búa til „ónothæft skar“ úr Beefsteak Tartar. I næsta söng á eftir koma svo upplýsingar um vonlausa tjáningu ástarinnar eins og „þjófur“ úr heiðskíru lofti: „Und weiss ich auch nicht, woher dein Brautkleid stammt / Und ist keine Myrte im Haar —“ verður á íslenzku: ,,og vafasamt hvaðan brúðarkjóll- inn er, / og vonlaust sé ástina að tjá —“ Að endingu þetta til að sýna þá stuðlasetningu sem yfirleitt tíðkast: Söngur Pollý Það var mér ljúfast, en nú er því lokið, láttu sem nú sé í öll skjól fokið. Hvað gagna öll kvein þín, kom María, veit náð mér, því kæra gamla mamma vissi hvað var að mér. Síðasta vísuorðið á að vera þýðing á „Wenn meine Mutter selber wusste all das vor mir?“ Þessi dæmi eru aðeins valin af handahófi, en það mætti fylla heilt Birt- ingshefti af svona tilvitnunum. Einhverra hluta vegna virðist leikdóm- endum blaðanna ekki hafa brugðið neitt við að sjá „hið fræga leikhús- verk“ í þessum búningi. En hvað um það. Það má segja, að einmitt sá smáborgaraskapur sem Brecht var að skopast að hafi sigrað með glæsi- leik í Iðnó. 42 Birtingur

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.