Birtingur - 01.01.1966, Blaðsíða 25
THOR VILHJÁLMSSON: BERTOLT BRECHT
I
Aldrei hefur þýzk menning átt ömurlegra
skeið í landi sínu heldur en þann tíma er
Brecht semur helztu verk sín útlægur. IJjóð
hans marséraði undir hinu svívirðilega mann-
hatursteikni nazismans. Skáld Þýzkalands og
fremstu andar þess hröktust til framandi
landa og það mátti virðast svo sem þýzkar
bókmenntir væru um sinn úr sögunni. Hið
fólska öskur nazismans dundi á eyrum heims-
ins sem rödd Þýzkalands og yfirgnæfði allt
annað í nafni þess.
En þýzku höfundarnir og skáldin sem héldu
áfram að semja verk sín á tungu Goethe og
Rilke, nú bjarga þau menningarheiðri Þýzka-
lands á þessu skeiði Joví það kemur á daginn
þegar rottum lokræsanna hefur loksins verið
skilað hæfilegri næringu í Mein Kampf og
Der Stúrmer og boðskap Rosenbergs um kyn-
þáttaofbeldið, — þá víkur fnykurinn og ilmur
vaknar af engi og ljóðmál laufskóganna grein-
ist þegar öskrið er sprungið, en bækurnar sem
hinir hálfgleymdu bókmenntafrömuðir settu
saman í útlegð sviftir lesendum sínum og að-
eins stundum á vitorði fárra úrvalsmanna
meðal erlendra starfsbræðra og nokkurra
landa þeirra sem voru líka á flótta, þessar
bækur standa nú með afreksverkum evrópskr-
ar menningar. Á síðustu árum hefur orðið
Ijóst að það eru einmitt menn einsog Her-
man Broch og Robert Musil, Brecht, Feucht-
wanger, Stefan Zweig, Freud, Thomas Mann,
Heinrich bróðir hans, þessir menn eru með-
al ágætustu vitna tímans, túlkarar manneskj-
unnar og friðþægjendur þjóðar sinnar í fári
glæpaverkanna.
Bertolt Brecht varð að flýja Þýzkaland 1933
þegar nazisminn náði völdum og flæktist í
útlegðinni land úr landi, varð oft að flýja
með skömmum fyrirvara og eignaðist ekki
varanlegt griðland unz hann settist að í Aust-
ur-Berlín árið 1948 og dvaldist þar þangað
til hann lézt 1956. En á þrotlausum hrakn-
ingi skapar þessi maður sérkennilegasta leik-
listarskóla aldarinnar og skilur eftir arf sem
varðar alla sem hugsa um leiklist og bók-
menntir í dag. Verk hans vekja spurningar sem
enginn kemst hjá að reyna að svara fyrir sig.
Bertolt Brecht fæddist árið 1898 í Augsborg
í Suður-Þýzkalandi þar sem blandast bæ-
heimskt og svabneskt þjóðlíf og manneskjurn-
ar eru léttari og ódrundhjassalegri heldur en
í Norður-Þýzkalandi, mennskari og fúsari að
njóta þess að vera til. í Augsborg var stönd-
ugur borgaraskapur sem stóð á gömlum merg
og fann notalega til sín í skugga blómlegrar
fortíðar. Þessir borgarar þóttust eiga ramm-
byggilegan hugmyndaheim þar sem þrengsl-
in voru við vöxt þeirra einstaklinga sem þetta
birtingur
23