Birtingur - 01.01.1966, Side 32

Birtingur - 01.01.1966, Side 32
unni sé ósvarað fer það í háttinn. / Það er þeirra starf að tvístíga. / Orötak þeirra er; úrskurði frestað. / Varið ykkur áður en þið lofið efann. Að lofa ekki / þann efa sem er örvænting. / Til hvers er hæfileikinn að efast þeim manni sem getur ekki tekið ákvörðun? Þér getur skjátlast / þegar of lítil hugsun fer á undan athöfn þinni / en verstu mistökin eru þau að á hættustund / haldir þú áfram að hugsa of lengi. II Ýmsir hafa reynt að halda því fram að leik- rit Brechts séu kaldrifjuð og skorti mannlega hlýju, persónurnar séu ekki nógu mennskar en það held ég að sé mikill misskilningur og byggt á ónógri athugun. Þó Brecht sé boðberi sem leiðist stundum of langt í baráttunni fyrir viðhorfum sínum á kostnað listar sinnar, þá gildir það helzt um smærri verk hans sum sem hann samdi á tímabili og minnst var á hér að framan, hin pólitísku kennsluleikrit Lehrstúcke. En í hinum stærri verkum sínum hefur hann skap- að margslungnar og stórbrotnar persónur sem gefa snjöllum leikurum mikil og freistandi tækifæri, persónur sem hafa þegar orðið næst- um þjóðsögulegar í leikhúsi aldarinnar líkt og Jón Iireggviðsson með íslenzkum. l’ersón- ur einsog Mutter Courage, eða Galileo Galilei. Það eru mikil tragísk hlutverk, miklar mann- eskjur. Þessar persónur eru mjög mennskar með sínum þversögnum og samkvæmni. Brecht trúir nefnilega á manneskjuna sem er andstæða við hina glæsilegu hetju sem var kannski svo mikil hetja að hún náði varla með fæturna niður á jörðina. Persónur Brechts eru ekki hetjur í rómantískum skilningi. Á nístandi stund sorgarinnar þegar hin mál- lausa dóttir Mutter Courage hefur verið drep- in meðan hún barði trumbuna til að vara þorpsbúa við atlögu hermanna sem beindu byssum sínum að henni, drepin sem hetja, — og Mutter Courage er að borga bændafólki fyrir útför dótturinnar þá hvolfir hún ekki úr pyngjunni einsog hetjan ætti að gera sem má ekki hugsa um peninga í afdráttarleysi dramans, nei, hún tínir fram skildingana með tregðu hinnar forsjálu kaupkonu og lætur einn jafnvel í pyngjuna aftur úr lófa sínum því þrátt fyrir sorgina er hin ríka eðlishneigð hagsýninnar ekki burtsofnuð. Skyldi þetta clraga úr áhrifum harmleiksins, skemmir þetta samúð okkar með móðurinni? Ég held að þetta orki einmitt til að magna þau áhrif. Gera Mutter Courage ennþá raunverulegri, 30 BIRTINGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110

x

Birtingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.